Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Qupperneq 12

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Qupperneq 12
18. nóvember 2001: Kosningar til danska Þjóðþingsins: Venstre (sem er flokkur hægra megin við miðju) vinnur langþráðan sigur og tekur við stjórnartaumunum af jafnaðarmönn- um. Poul Nyrup Rasmussen, sem var í forsæt- isráðherrastólnum í tvö kjörtímabil, víkur fyrir Anders Fogh Rasmussen, leiðtoga Venstre. Í fyrsta sinn frá 1929 eru borgaralegir flokkar með meirihluta á danska þinginu. Venstre, sem fékk rúmlega 31% atkvæða og 56 þingsæti, náði meira fylgi en jafnaðarmenn sem hefur ekki gerzt síðan árið 1920. Jafnaðarmenn hlutu innan við 30% atkvæða og 52 þingsæti. Ótví- ræður sigurvegari kosninganna er þó Danski þjóðarflokkurinn (DF) undir forystu Piu Kjærs- gaard, sem vinnur 12% atkvæða og 22 þing- sæti. Íhaldsflokkurinn, sem á árum áður var for- ystuafl borgaralegu flokkanna, fékk nú aðeins 16 þingsæti, Sósíalíski þjóðarflokkurinn 12 og Radikale Venstre, sem er frjálslyndur borgara- flokkur, 9. Aðrir flokkar sem komu að manni voru Kristilegi þjóðarflokkurinn og Einingar- flokkurinn með fjögur sæti hvor og þar að auki sitja á þinginu tveir færeyskir þingmenn og tveir grænlenzkir. Hin nýja ríkisstjórn borgaralegu flokkanna nýtur stuðnings þingflokks DF og hefur hann þar með getað sett sitt mark á stjórnarstefn- una. Mjög var hert á innflytjendalöggjöfinni, og hafa þær aðgerðir notið ótvíræðs stuðnings meirihluta þjóðarinnar, þótt margir hefðu gagn- rýnt þær bæði innanlands og utan. Þar sem stóru „meginstraums“-flokkarnir skynjuðu einnig hve mikilvægt þetta mál var í augum margra kjósenda voru þeir farnir að bregðast við með nýjum áherzlum strax fyrir kosningar. Poul Nyrup Rasmussen boðaði sjálfur verulega hertar reglur um innflytjendur, Venstre gekk lengra en DF lengst. 10. september 2001: Kosningar til norska Stórþingsins: Verkamannaflokkurinn tapar stórt, en heldur þó stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins með 24,4% atkvæða og 43 þingsæti. Hægriflokkurinn fékk 21,3%, 6,9% meira fylgi en í kosningunum 1997 og 38 manna þingflokk, 15 fulltrúum fjölmennari en áður. Kristilegi þjóðarflokkurinn, flokkur Kjells Magne Bondevik sem síðan samdist um að tæki við forsætisráðherrastólnum í samsteypu- stjórn mið- og hægriflokkanna, fær 12,5% fylgi og 22 þingmenn. Framfaraflokkurinn undir for- ystu Carls I. Hagen fær 14,7% atkvæða, tapar hálfu prósentustigi frá því í síðustu kosningum, en það var mesta fylgi sem flokkurinn hafði nokkru sinni náð í þingkosningum í 20 ára sögu sinni. Og þrátt fyrir að hafa misst fáein atkvæði styrkist þingflokkur Framfaraflokksins um einn mann, úr 25 í 26. Vinsældir Hagens meðal kjósenda náðu miklum hæðum um hálfu ári fyrir kosning- arnar en vinsældir flokksins döluðu er nær dró kosningun- um, einkum vegna deilna um frambjóðendur í einstökum kjör- dæmum. Nú, ári eftir kosningarnar, eru vin- sældir Framfaraflokksins aftur í hámarki – nýj- ustu skoðanakannanir sýna flokkinn með yfir 33% fylgi, en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna þriggja mælist nú minna en það – og kemst um þessar mundir enginn annar norskur stjórn- málamaður þar sem Hagen hefur hælana hvað vinsældir snertir. Þessum árangri virðist hann hafa náð með tempraðri popúlismablöndu, þar sem viljinn til að taka harðar á innflytjendum og öðrum hópum sem taldir eru „svindla á kerf- inu“ er ótvíræður, en einnig loforð um ýmsar áherzlubreytingar á því hvernig fé úr hinum skuldlausa ríkissjóði – þökk sé olíuauðnum – er ráðstafað. Þótt fáir í flokki Hagens myndu vilja setja sig á bekk með fylginautum hinnar dönsku Piu Kjærsgaard, hins austurríska Haiders eða hollenzka Fortuyns gegnir norski Framfaraflokkurinn ótvírætt svipuðu hlutverki í norska flokkakerfinu og flokkar þessara síðast- nefndu í flokkakerfi sinna landa, þ.e. að hrista upp í stöðnuðu kerfi „meginstraums“-flokk- anna og atvinnustjórnmálamönnum þeirra sem margir virðast oft og tíðum þrælar pólitískrar rétthugsunar. Þannig knýja þessir popúlísku flokkar staðnað flokkakerfi til endurnýjunar; knýja atvinnustjórnmálamennina til þess að leggja betur við hlustir hvað það er sem í raun brennur á hinum almenna kjósanda og gleyma sér ekki í forræðishyggjunni. 7. júní 2001: Þingkosningar í Bretlandi: Þótt fylgið dali í prósentum talið allnokkuð frá síð- ustu kosningum tekst Verkamannaflokknum undir forystu Tonys Blair forsætisráðherra að tryggja sér annan stórsigurinn í röð og ræður yfir 413 af 659 þingsætum í neðri deild þings- ins. Ekki sér fyrir endann á sögulegri lægð Íhaldsflokksins en Frjálslyndir demókratar vinna á, að nokkru leyti með taktísku samráði við Verkamannaflokkinn, og á nú fleiri fulltrúa á þingi en nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir að langt sé frá því að þingmannafjöldinn endurspegli at- kvæðahlutfallið. Í kosningabaráttunni í Bretlandi voru önnur mál en innflytjendamál í brennidepli, einkum hlutverk Bretlands innan Evrópusambandsins og vó það þyngst hvort landið ætti að gerast aðili að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, þ.e. hvort skipta ætti út sterlingspundinu fyrir evru. Í Bretlandi hefur hins vegar spenna í sam- skiptum fólks af mismunandi uppruna farið vax- andi og er þar skemmst að minnast svonefndra kynþáttaóeirða í nokkrum borgum Norður-Eng- lands, þar sem fjöldaslagsmál milli ungra manna ættaðra aðallega frá austanverðri Asíu og (ungra atvinnulausra) innfæddra fóru úr böndunum og skildu eftir sig eyðileggingarslóð og áhyggjusvip á mörgum atvinnustjórnmálamanninum. Niðurlag Ýmsir stjórnmálaskýrendur hafa fullyrt að kosn- ingaþróunin í Vestur-Evrópu á síðustu misser- um gefi tilefni til að tala um að hægrisveifla gangi yfir álfuna. Að mínu mati er sú ályktun þó mjög yfirborðskennd; réttara er að víða hriktir (tímabundið?) í stoðum valdakerfis hefðbund- inna „meginstraums“-stjórnmálaflokka. Allir popúlistaflokkar á borð við Lista Pims Fortuyns í Hollandi, Þjóðarflokk Piu Kjærsgaard í Dan- mörku, Frelsisflokkinn í Austurríki eða Fram- Jörg Heider, leiðtogi Frelsisflokksins í Austurríki. 08 Pólitík Auðunn Arnórs 5.12.2002 17:34 Page 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.