Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 19
Kunne det ikke tænkes, at årsagen til, at stu- denterne reagerer nu, er, at de først er vågnet op nu og at de henvendte sig netop til dig, fordi de regnede dig for ung trods årene, for en ven, for en af de etablerede, der ikke er tilpasset systemet? Nuvel, de tog fejl. Når man kender dit skønne, bidende forfatterskab er det svært at vænne sig til den tanke, at du er som de andre på bjerget.27 Munurinn á þessum bréfum og bréfi stúdenta er sá að nú virðast bréfritarar þekkja til verka Laxness af eigin raun og líta svo á að þeir séu að gera kröfu til hans sem einstaklings. Stúd- entar virðast hins vegar telja að unnt sé að gera siðferðiskröfur til tiltekins manns þannig að það sé persónu hans óviðkomandi. Þeir virðast ekki gera sér fulla grein fyrir á hverju kröfur þeirra byggjast. Þeir elta blaðamann Politiken og Scherfig en reyna að því er best verður séð ekki að skilja út á hvað kröfur þeirra til Laxness ganga. Í stuttum leiðara dagblaðsins Aktuelt er þeirri spurningu varpað fram hvers vegna stúdentar taki einmitt upp á því að mótmæla þegar Hall- dór Laxness taki við verðlaunum? Leiðarahöf- undur telur að stúdentarnir hefðu mátt vænta stuðnings af Halldóri eins og hann komi les- endum fyrir sjónir í skáldsögum sínum. Með því að taka við verðlaununum setji hann hins vegar prinsip sín á útsölu.28 Sama afstaða er lát- in í ljós í Land og folk þegar blaðið lýsir við- brögðum skáldsins við kröfum stúdenta; þar segir „Man har svært v[e]d at genkende digteren der skrev „Salka Valka“ i disse hovmodige udtalelser.“29 Ummæli sem þessi benda til að dregnar séu upp hliðstæður milli raunveruleikans og skáldskaparins. Ætli blaða- maðurinn líti svo á að einhver augljós tengsl séu milli Kaupmannahafnar og Óseyrar við Axl- arfjörð? Ber okkur að lesa atburðarás raunveru- leikans inn í skáldverkið? Eiga vissir einstakling- ar sér þá hliðstæðu í skáldverkinu: er C.J. Sonning Jóhann Bogesen og Halldór Laxness annað hvort Salka Valka eða Arnaldur Björns- son? Er hann kannski einhver allt annar, kannski Beinteinn í Króknum? Hvað sem því líður bregðast Kaupmannahafnarbúar við eins og íbúar Óseyrar við Axlarfjörð: Heimamenn litu á Sölku Völku og spurðu hvað þeir ættu að gera. Þetta er bara helvítis yfirgángur, sagði hún. Þorið þið ekki í þá? [. . . ] Síðan var barist á bryggjunni.30 Hinir raunverulegu heimamenn í þessu máli virðast varpa eigin siðferðisábyrgð á Sölku Völku. Orð hennar standa eins og stafur á bók þrátt fyrir Skáldatíma eða annað uppgjör Hall- dórs, þess vegna er barist í Nørregade árið 1969. Skaparinn mætir afsprengi sínu. Ravnekrogsstridigheder Nu må dette komediespil høre op, en farce med bl.a. folk som Albert Schweitzer, Karl Barth, Alvar Aalto, Laurence Olivier og nu til sidst Halldor Laxness som statister og fru Sonning som hovedperson.31 Það er sem raunveruleikinn lendi í árekstri við skáldskapinn fyrir utan Kaupmannahafnarhá- skóla hinn 19. apríl 1969. Kröfur mótmælenda til Halldórs Laxness byggjast ekki aðeins á hug- myndum sem sóttar eru til skáldverka hans heldur er atburðarásin með slíkum eindæmum að það jaðrar við fáránleika. Blað danskra kommúnista Land og folk birtir daginn eftir verðlaunaafhendinguna frétt á for- síðu undir fyrirsögninni „Krig i Nørregade“ og víst er að hálfgert stríðsástand ríkti fyrir utan Kaupmannahafnarháskóla þennan dag.32 3000 manns lýstu yfir óánægju með úthlutun Sonn- ingverðlaunanna, ýmist á friðsaman eða her- skáan hátt. Þrettán ungmenni voru handtekin eftir átök við lögreglu auk þess sem lögreglubíl var velt og flestu lauslegu fleygt að bygging- unni. Á sama tíma og flöskur og eldsprengjur flugu í átt að lögreglunni með reglulegu millibili lék hljómsveit strengjakvartett Beethovens í c- moll opus 18 nr. 4 fyrir 300 gesti í hátíðarsal skólans en hundgá og slagorð stúdenta eins og „Kapitalisme fører til nazisme“ gáfu flutningn- um sérstæðan blæ.33 Í myndaþætti dagblaðsins Politiken sést upp í opið gin síðhærðra mótmælenda sem vaða reyk í átt að vopnuðum lögreglu- mönnum sem standa vörð um háskólann. Á annarri mynd gefur að líta ungan tvífara Che Guevara liggja eins og lamaðan á götunni meðan tveir lögreglu- menn draga hann í burtu. Önnur mynd sýnir veislugesti í tómleg- um hátíðarsalnum hlýða á strengjasveitina. Að lokum er mynd með undirtextanum „Dag- ens hovedpersoner, Halldór Lax- ness og Leonie Sonning“. Á myndinni stendur Halldór Laxness skælbros- andi í svörtum jakkafötum með konu upp á arminn, sem við fyrstu sýn virðist vera Grimm- hildur Grámann. Nánari athugun leiðir þó í ljós að konurnar eru bara sláandi líkar, þær hafa sams konar hárgreiðslu, gleraugu og perlufest- ar en hvít dragt frú Sonning er ekki í stíl Grimmhildar.34 Í umfjöllun um verðlaunin í Jyllands-Posten 7. mars 1969 gerir pistlahöfundurinn Jens Kruuse grín að þeirri stílfærðu mynd sem dreg- in er upp af Sonninghjónunum og birtist til að mynda í umfjöllun stúdenta. Í stúdentablaðinu Q er til dæmis skrípamynd af frúnni þar sem hún flýgur um með dauðan ref um hálsinn eins og djöfulleg norn. Úr vösum hennar og tösku drífur peninga og í horni myndarinnar sveiflar rotta halanum glaðhlakkalega. Í grein Kruuse segir: Fru Sonning er en dame i kostbare pelse, opsat hår og fine smykker, hun sidder på første række. Fru Sonning og hendes afdøde mand har tjent en masse penge ved at spekulere i ejendomme. Måske har fru Sonning og hendes mand også en gang klappet en lille hundehvalp og givet en kattekilling mælk samt en ældre hushjælp en frakke. Jeg ved intet om det med spekulationen og intet om det med frakken. Jeg gætter bare på, at de er nogle slemme nogen og også måske mennesker.35 bls. 19Sækjum gull í Gljúfrastein 16 Laxness Haukur Ingv 6.12.2002 14:15 Page 19

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.