Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 23

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 23
Hinn 7. mars birtist hins vegar önnur frétt í blaðinu undir flennistórri fyrirsögn: „Hrafna- krókastríð í Danmörku“. Í greininni er sagt frá opnu bréfi stúdenta- ráðs Hafnarháskóla og kröfur stúd- enta raktar nokkuð nákvæm- lega. Einnig er greint frá hörðum viðbrögðum Laxness í viðtalinu við Berlingske Aftenavis. Athyglisverðast er þó viðtal sem Morgunblað- ið tekur við hann. Þar segir: „Þetta eru aðgerðir gegn mér og Íslandi“, sagði [Halldór]. „Við þessar úthlutanir í Danmörku næstliðin ár hafa slíkar aðgerðir ekki verið hafðar í frammi, þegar verðlaunin hafa farið til heims- þekktra manna [frá t.d. Bretlandi og Sviss]. Engum datt í hug að krefjast þess að þessir menn höfnuðu verðlaununum. En þegar heiðra á Íslending með þessum verðlaunum, fyllast ýmsir menn í Danmörku hetjumóði, sem mjög er erfitt að skýra. [. . . ] Ég tel ekki að menn eigi að gera hrafnakróka sína að út- flutningsvöru. Mér finnst það greinilegt að þeir Danir, sem eru að berjast á móti þessu sjái eftir þessum peningum, sem eiga að fara til Íslands.“ Staðhæfingin sem Morgunblaðið hefur eftir Emil Frederiksen að Ísland sé heiðrað í per- sónu Laxness gefur tilefni til að draga land og þjóð inn í deilu sem snýst um húsnæðisbrask Danans C.J. Sonning nokkrum áratugum áður. Laxness kýs líka að túlka málið í íslenskum fjöl- miðlum sem deilu milli landanna tveggja og árás á persónu hans frekar en deilu sem hafi með skáldskap hans að gera. Þannig eru loka- orð viðtalsins „Ég [. . . ] kær[i] mig ekkert um að prédika móral fyrir Dönum og t[ek] ekki við mórölskum forskriftum frá Danmörku.“57 Á Ís- landi er sem Laxness forðist að vekja upp deil- ur um pólitíska fortíð sína en reyni fremur að styrkja mynd sína sem þjóðskáld og samnefn- ara fyrir það sem íslenskt er. Hann segir: „Þetta eru aðgerðir gegn mér og Íslandi.“ Með öðrum orðum, þetta tvennt verður ekki greint að. Í greininni „Halldór Laxness og aðrir höf- undar“ eftir Ástráð Eysteinsson segir: En ef meta á stöðu Halldórs Laxness í sögu bókmenntanna verður að líta til gjörvallra umsvifa hans í bókmenntalífinu. Þessi um- svif tengjast raunar flest þróun og stöðu ís- lenskrar sagnalistar, og vægi hennar í þjóðar- vitundinni. Og í bókmenntaum- svifum Halldórs Laxness má ef til vill lesa ákveðinn undirtexta, dulda frásögn sem stjórnast af þrá eftir samfelldum og heild- stæðum textatengslum – Sjálfstætt fólk, Heimsljós, Ís- landsklukkan, fornsagnaút- gáfurnar, Hemingway-þýðing- in, og síðan ritgerðirnar um bókmenntir, ekki síst greinar hans um erlendar bók- menntir – allt er þetta liður í krossferð manns sem kapp- kostar að vefa sér og ís- lenskum lesendum mikinn raunsæisvef. [. . . ] Halldór sér fyrir sér, hversu meðvituð sem sú sýn er, ákveðið kerfi frásagnarlistar, epískan vef – og hann er sjálfur kóngulóin. Jafnframt er hann að spinna sína eigin sögu. Ferill Halldórs Lax- ness er einn veigamesti þátturinn í sögu skáldsögunnar á Íslandi um áratugaskeið og það er ekki nóg að beina sjónum að röð verka hans, heldur má lesa þennan feril í senn sem einskonar undirtexta og sem ákveðið „forrit“ í bókmenntasögunni.58 Á sama tíma og Halldór Laxness spinnur „raun- sæisvef“ í skáldverkum sínum vefur hann veru- leikann inn í skáldskap. Íslenskur ráðherra get- ur ekki tjáð hug sinn til skattamála nema í bundnu máli og hvetur þingmenn til að taka undir með sér í söng. Það leiðir hugann að upp- hafi annarrar málsgreinar Vefarans mikla frá Kasmír: „Veröldin er einsog svið þar sem alt er í haginn búið undir mikinn saungleik . . .“59 Er nokkur furða þó að maður missi trúna á mörk raunveruleika og skáldskapar. Í Sonningdeil- unni er erfitt að sjá hver er stærsta kóngulóin og hver situr fastur í vef hvers. Skáldatími – lokaorð Halldór Laxness er snar þáttur í íslenskri menn- ingu á 20. öld ekki síður en skáldskapur hans. Stundum virðist manni sem hann hafi margfalt eðli, leiki aðalhlutverk í leikriti sem hann leik- stýrir og semur ef til vill sjálfur. Í Sonningdeil- unni hittir sögumaðurinn Halldór Laxness leið- sögumanninn og samfélagsrýninn fyrir í árekstri skáldskapar og veruleika. Árekstur af þessu tagi er þó ekki einsdæmi heldur megin- stef í höfundarverki hans. Ég sæki dæmi til Skáldatíma en þar segir um hugtakið „skálda- tíma“: Ég legg enn áherslu á að flest sem ég segi um aðra höfunda eru andlægir dómar sjálfs mín og eiga ekki skylt við bókmentasögu. Ég er hér aðeins að greina frá áhrifum sem tek- ið hafa á sig svipmót í endurminníngu minni. [. . . ] Það er ekki í þeim tilgángi að boða bók- menntalega kenníngu af neinu tagi, heldur aðeins til skilníngs á þeim skáldatíma sem er minn, að ég hef viljað marka hér með sem fæstum orðum bæði nálægð mína og fjar- lægð við höfuðsnillínga einsog Joyce og Proust sem báðir tilheyra kynslóðinni á und- an mér, nokkurnveginn jafnaldrar föður míns, og sömdu bækur í bernsku minni; svo og höfunda einsog amerísku þjóðfélags- skáldin sem ég lifði samtíða á æskudögum mínum vestra.60 Halldór Laxness á nægilega langan feril sem rit- höfundur og skáld til að vera jafnt nálægur og fjarlægur sjálfum sér í tíma. Sá Halldór Laxness sem biðst undan því að tala máli skáldverka sinna við lok sjöunda áratugarins hittir fyrir kjaftforan nafna sinn, þjóðfélagsskáldið og höf- und Sölku Völku sem er um líkt leyti vakinn upp eins og draugur í Kaupmannahöfn af því að sagan af stúlkunni við Óseyri var endurútgefin skömmu áður. Uppgjör við fortíðina er óhugs- andi því fortíðin verður til undir „áhrifum sem tekið hafa á sig svipmót í endurminníng[unni].“ „Skarkali á torgi Vorrar Frúar þegar Laxness tók við verðlaunum Sonnings,“ segir í Þjóðviljanum 22. apríl, „Krig i Nørregade,“ skrifar blaðamað- ur Land og Folk 20. apríl um sama atburð. Á tveimur dögum hefur stríð breyst í skarkala rétt eins og þjóðfélagsskáld breytist á nokkrum tug- um ára í þjóðskáld – það er vonandi til skilnings á þeim skáldatíma sem Halldór Laxness lifði. Þessi grein byggist á rannsókn sem var unnin sumarið 2002. Hún var styrkt af Nýsköpunar- sjóði námsmanna, Sparisjóði Hafnarfjarðar og Eddu útgáfu. Ég vil nota tækifærið til að koma á framfæri þakklæti mínu til þessara aðila, sem og til starfsmanna ONP (Ordbog over det norrøne prosasprog) í Kaupmannahöfn fyrir vinsamlega aðstoð. Um þakkarskuld mína við leiðbeinanda minn Bergljótu S. Kristjánsdóttur og Aðalstein Eyþórsson verður ekkert sagt fáum orðum. bls. 23Sækjum gull í Gljúfrastein Halldór Laxness og Jón Helgason í Kaupmannahafnarháskóla. Myndin birtist í Politiken. 16 Laxness Haukur Ingv 6.12.2002 14:16 Page 23

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.