Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 29

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Blaðsíða 29
bls. 29 Og árið 1968 orðaði einn þingmaður hug sinn til þeirra þingmanna sem vildu láta þjóðina sjálfa skera úr um bjórbannið með þessum hætti: „Mér þykir sennilegast að persónulegar þrár flutningsmanna liggi að baki tillögunnar. Lík- lega eru þeir þyrstir, og trúlega haldnir minni- máttarkennd vegna þess að líkamlegt vaxtar- lag þeirra sé öðruvísi en þeir vilja hafa það. Þeir búast við að verða betur metnir af sam- tíðarfólki, ef þeir verða gildari um miðjuna, hafa heyrt, að öldrykkju fylgdu stærri magar, svonefndar bjórvambir, og telja þær eftir- sóknarverðar . . . Þeir gætu farið til Kaup- mannahafnar í sumar og gengið um ölkrárn- ar. Ef þeir stunda vel drykkjuna gætu þeir sennilega verið búnir að fá álitlegar kúlur framan á sig á næsta hausti, gætu þá komið til þings, hressir og pattaralegir, allvel gildir um miðjuna, lausir við vanmáttarkenndina og vel færir til löggjafarstarfa“ (Skúli Guð- mundsson, 1968). Uppruni og einkenni bjórbannsins Ef saga bjórsins á Alþingi er athuguð í heild sinni verður athuganda fyrst starsýnt á hve hógvær í raun flest frumvörpin voru. Yfirleitt var eingöngu gert ráð fyrir innlendri bjórframleiðslu en ekki innflutningi og að auki aðeins leyfi fyrir bjór sem var ekki nema 1-2,5 prósent yfir þeim styrkleika sem leyfður var samkvæmt lögum. Þrátt fyrir þessa hógværð mættu frumvörpin mikilli andstöðu á Alþingi og í samfélaginu sem bendir sterklega til þess að hér hafi frekar ver- ið um mikið tilfinningamál að ræða en mál sem efnislega skipti miklu til eða frá. Í þessu sambandi er vert að benda á þá kunnu staðreynd að á Íslandi var bjór víðast hvar fáanlegur þrátt fyrir bannið. Heimabrugg var lengi ein helsta tómstundaiðja landsmanna, farmenn fluttu inn bjór til persónulegra nota, ,,bjórlíki“ (léttur pilsner blandaður við sterkt áfengi) var hvarvetna selt á krám síðustu ár bannsins og ferðamenn gátu frá 1979 flutt inn bjór í gegnum fríhöfnina í Keflavík. Hér var því tvímælalaust um táknræna löggjöf að ræða í svipuðum anda og hinn kunni bandaríski fræði- maður Joseph Gusfield hélt fram um áfengis- bannið í Bandaríkjunum en ekki lög sem hvíldu á tryggum efnislegum forsendum. Hið sama má reyndar einnig segja um bann á kannabis sem hvarvetna virðist aðgengilegt fyrir þá sem hafa áhuga þrátt fyrir bann. Í þessu samhengi er hlálegt að uppruni bjór- bannsins var nánast ,,slys“ í öndverðu. Bjórn- um var fórnað í málamiðlun milli stríðandi afla til að auðvelda afgreiðslu á afnámi áfengis- bannsins 1934. Áfengisandstæðingar fengu bjórinn bannaðan meðan andbanningar fengu þeirra hlaut litlar undirtektir á þingi í gegnum tíðina. Grípum aftur niður í málflutning þingmanna gegn bjór og nú árið 1960: ,,Er flutningsmanni alveg ókunnugt um það að allar verksmiðjur og skipasmíðastöðvar í Bretlandi loka verkafólkið inni um vinnutím- ann og gæta þess alveg sérstaklega að hleypa engum út, fyrr en ölkrárnar eru allar komnar örugglega undir lás og loku?“ (Gísli Jónsson, 1960). „Og ég gæti ætlað og hef orðið þess var, að þessi áróður um ágæti 3.5 prósent áfenga ölsins sé þegar farinn að grípa um sig í hug- um unglinga og barna. Ég heyrði það fyrir nokkrum dögum að 13 ára skóladrengur hélt því fram að þeir krakkarnir þyrftu endilega að fá þetta áfenga öl, það væri einhver mun- ur að hafa svona drykki til þess að rífa sig upp á morgnana, áður en þau færu í skólann og ennfremur væri þetta hentugt fyrir heim- ilin líka. Það væri ólíkt handhægara að grípa til ölsins á búrhillunni en þurfa að fara að hita og búa til kaffi eða te . . . . . . geti verið handhægt fyrir verkamenn að grípa til áfengs bjórs sér til hressingar, ekki síst ef honum er haldið að þeim með því, að hann sé þeim heilnæmur, vítamínríkur og hollur drykkur.. (Halldór Ásgrímsson, 1960). „Ölið yrði í fjárhagslegu tilliti til ills fyrir hinn almenna launþega, sem þarf á öllu sínu kaupi að halda, sér og sínum til lífsviðurvær- is“ (Gunnar Jóhannsson, 1960, haft eftir fv. formanni Dagsbrúnar). „. . . að strax og bjór væri almennt fáanlegur, leiðir það af sjálfu sér, að hann verður drukk- inn m.a. af verkamönnum við vinnu“ (Einar Olgeirsson, 1965). „Mér þykir sennilegast að persónulegar þrár flutnings- manna liggi að baki tillögunnar. Líklega eru þeir þyrstir, og trúlega haldnir minnimáttarkennd vegna þess að líkamlegt vaxtarlag þeirra sé öðruvísi en þeir vilja hafa það ...“ 28 Bjórinn Helgi Gunnlaugs 5.12.2002 16:52 Page 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.