Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 42

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 42
Af örlögum íslenskra hafnarbyggða Ásgeir Jónsson Kvikmyndin Hafið hefur beint athyglinni að ís- lenskum sjávarbyggðum á síðustu misserum, og hefur dregið fram fremur ófegraða – ef ekki ófagra – mynd af lífinu þar um slóðir. Vitaskuld er hægt að deila um hvort þetta sé raunsönn lýsing eða hvort Hafið sé aðeins safn af göml- um og vel tuggðum klisjum. Hitt er aftur á móti ljóst að mörgum íslenskum sjávarbyggðum hefur hnignað mikið vegna fólksfækkunar. Hér er einkum um að ræða þéttbýlisstaði á Vest- fjörðum, Austfjörðum og Norðurlandi, sem eru girtir fjöllum og eiga óhægt með landsamgöng- ur. Margir hafa rakið ástæðurnar til breytinga í sjávarútvegi, og þá sérstaklega til kvótakerfis- ins sem hefur verið ráðandi í veiðistjórnun síð- ustu tvo áratugi eða svo. Og satt er það. Sjáv- arútvegur er helsta atvinnugreinin í títtnefndum sjávarbyggðum og í þeirri grein hafa átt sér stað gífurlegar breytingar, sem má rekja til tæknivæðingar, markaðsvæðingar, kvótavæð- ingar og svo framvegis. En þegar nánar er að gáð sést að hnignun sjávarbyggðanna hófst mun fyrr en kvótakerfið kom til sögunnar, og reyndar mun fyrr en orðin skuttogari og aflaskerðing komust inn í orðabækur lands- manna. Hnignunin hófst um miðbik tuttugustu aldar en þá nam fólksfjölgun staðar í sjávarbyggðum kringum landið eftir mikinn vöxt áratugina á undan. Síðan hefur fólksfækkun tekið við. Fækkun íbúa hefur verið mun hraðari en fækk- un starfa í sjávarútvegi, sem mikill fjöldi erlends farandverkafólks í fiskvinnslu sýnir ljóslega. Sumar byggðir hafa lent í alvarlegum vanda vegna þess að kvótinn hefur verið seldur, en þeir staðir eru samt mun fleiri þar sem afla- heimildir eru til staðar og næg vinna í fiski, en íbúum fækkar engu síður. Til þess að skýra hnignun áðurgreindra plássa er nauðsynlegt að grafast fyrir um rætur þess að sjávarbyggðir á ystu annesjum urðu svo eftirsóknarverðar til búsetu sem raun bar vitni á fyrri hluta tuttugustu aldar og af hverju þær síðan glötuðu aðdráttarafli sínu á síðari helmingi sömu aldar. Hér verður þeirri tilgátu varpað fram að þessi umskipti á högum hafnar- byggðanna megi rekja til tveggja samgöngu- byltinga á Íslandi. Sjávarbyggðirnar urðu skyndilega eftirsóknarverðar til búsetu þegar strandsiglingar hófust eftir 1876. Þá lentu margir staðir í þjóðbraut sem áður voru af- skekktir. Vitaskuld nutu staðirnir þess einnig að sjávarútvegur var þá ört vaxandi og ábatasöm atvinnugrein sem dró að sér fólk. En það að vera miðsvæðis í samgöngukerfi landsins vóg mun þyngra en að vera verstöð þar sem fólk dvaldi um einhvern tíma til þess að veiða fisk en hafði ekki fasta búsetu. Uppgangur téðra staða var því vegna þess að þeir nutu flutninga- hagræðis í vegalausu og óbrúuðu landi og komust þess vegna í hringiðu hagvaxtar og framfara. Af þessum stól var sjávarbyggðunum síðan steypt um leið og vegakerfi landsins var byggt upp eftir 1940 og bifreiðir tóku við af skipum sem samgöngutæki. Það varð til þess að hafn- arbyggðirnar lentu utanveltu og samkeppnis- hæfni þeirra sem atvinnu- og þjónustumið- stöðva rýrnaði verulega. Aftur á móti tóku aðrir staðir fjörkipp er sátu í miðju héraði og lágu vel við landsamgöngum. Þetta bendir til þess að mjög þung undiralda vinni nú gegn búsetu víða um strendur landsins, sem tengist ekki nema að litlu leyti þeim pólitísku þrætum sem nú eru í brennidepli í byggðamálum. Skipabyltingin Á fyrri öldum reiddu landsmenn vörur á hestum eða gengu með þær á bakinu. Skipakostur landsins var smár í sniðum og ekki til siglinga á milli landshluta. Utanríkisverslun landsins var í höndum danskrar einokunar og var sinnt af skipum sem sigldu beint á milli Kaupmanna- hafnar og verslunarhafna hérlendis. Hins vegar voru engar skipulegar siglingar á milli hafna á Íslandi. Það varð m.a. til þess að rekaviðarstafl- ar lágu við afskekktar strandir landsins, þrátt fyrir timburskort í landinu á sama tíma. Einnig mætti geta þess að ein af tillögum Skúla Magn- úsar landfógeta til viðreisnar landsins var að hefja strandsiglingar. Hann fékk tvær skútur til innréttinganna í Reykjavík og önnur þeirra fór eina ferð til þess að sækja rekavið norður á Hornstrandir.1 Íslendingar virðast þegar á þess- um tíma hafa gert sér grein fyrir nauðsyn sjó- samgangna. „Ó, að vér hefðum fiskiduggur, bæði til að afla á djúpinu og líka að flytja bjarg- ræði milli landsins útkjálka.“ Ritaði til dæmis húnvetnski klerkurinn Þorsteinn Pétursson á Staðarbakka árið 1771 í Landbetrunarþönkum sínum til yfirvalda.2 Í þessum málum gerðist þó fátt á næstu áratugum, enda voru Danir fremur áhugalausir um íslenska atvinnuvegi. En þegar Alþingi var endurreist 1845 voru úrbætur í sam- göngumálum eitt tíðasta umræðuefni þing- funda. Til marks um umræðuna á þeim tíma er lýsandi að vitna í bænaskrá frá héraðsfundi í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1863, sem beint var til Alþingis. Þar segir: 42 Samgöngur Ásgeir Jóns 5.12.2002 16:56 Page 42

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.