Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 50

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 50
síðasta áratug og atvinnuleysi 25–30% (opin- berar tölur eru mun lægri). Þó að einungis Sádi- Arabía og Írak eigi meiri olíubirgðir en Íran, sem á auk þess málma og jarðgas, er árleg þjóðarframleiðsla á mann einungis um 1600 dollarar og um helmingur íbúanna lifir undir fátæktarmörkum. Efnahagsástandið er bágbor- ið og í raun vantar atvinnutækifæri en stjórn- völd verða að skapa um 700.000 ný störf á ári hverju. Talið er að þau séu árlega um þriðjung- ur þess. Ungt, vel menntað fólk á sérstaklega erfitt með að fá vinnu við hæfi en fólksfjölgun hefur verið gífurleg. Khomeini hvatti þjóðina til að fjölga hermönnum byltingarinnar og píslar- vottum fyrir stríðsátökin við Írak, en nú hvetur klerkaveldið til ófrjósemisaðgerða og getnaðar- varnir eru auðfáanlegar. Frá 1993 hefur efna- hagskerfinu verið miðstýrt með fimm ára áætl- unum en olíuverð hefur afgerandi áhrif á afkomu ríkisins. Lágt olíuverð, stríðið við Írak, milljónafjölgun á síðasta áratug, auk efnahags- legrar óstjórnar, hafa leitt til mikillar skuldsetn- ingar. Refsiaðgerðir Bandaríkjanna bæta ekki úr skák. Þessar þrengingar hafa leitt til þess að stjórnvöld eiga erfiðara um vik en áður með að viðhalda hernaðarmætti landsins. Vitað er að Íranir eiga eiturefnavopn og undirbúa gerð kjarnorkuvopna þótt þeir séu aðilar að samn- ingi Sameinuðu þjóðanna gegn útbreiðslu þeirra. Af þessu má ljóst vera að klerkastjórnin hef- ur ekki staðið við loforð sín um betri lífskjör. Hvers vegna umbótasinnum hefur ekki tekist að sameina þjóðina gegn vanhæfum stjórn- völdum er íhugunarefni en auk efnahagslegra þrenginga búa Íranir við mikla harðstjórn. Mannréttindabrot klerkastjórnarinnar Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt þarlend stjórnvöld fyrir gróf mannrétt- indabrot og skýrslur Amnesty International og Human Rights Watch lýsa kúgun, harðræði og grimmd þar sem geðþóttahandtökur, fangels- anir, andlegar og líkamlegar pyndingar, afliman- ir fyrir þjófnaði, hýðingar og hengingar á al- mannafæri og aftökur án dóms og laga við- gangast. Börn yngri en 18 ára eru ekki undan- skilin frá þessum refsingum og konur og karlar hafa verið grýtt til bana fyrir framhjáhald. Full- trúar Amnesty og sérstakur mannréttindafull- trúi Sameinuðu þjóðanna hafa ekki fengið leyfi til að heimsækja landið. Þá hefur borgaralegt samfélag verið eyðilagt. Stjórnmálaflokkar, kvennahreyfingar, verkalýðsfélög og fagfélög eru bönnuð. Andstaðan við byltinguna Klerkaveldið í Íran virðist standa nær óhaggað þrátt fyrir andstöðu „sonar byltingarinnar“, Khatamis forseta, lærisveins Khomeinis, „barna byltingarinnar“, hins vinstrisinnaða íslams, fordæmingu ríkja heims á víðtækum og grimmilegum mannréttindabrotum sem verða alvarlegri með auknum kröfum um umbætur, og refsiaðgerðir Bandaríkjanna. Það lýsir ein- stakri stöðu mála í Íran að þjóðhöfðingi landsins sé í forystu stjórnarandstöðunnar. Um leið sýn- ir það bága stöðu róttæku aflanna að leiðtogi andstöðunnar sé einn af helstu stuðnings- mönnum Khomeinis, þ.e. aðrir andstæðingar eru í fangelsi, útlegð eða þaggað hefur verið niður í þeim með öðrum ráðum. Andstaðan gegn byltingunni er óskipulögð, veikburða og verður lítið ágengt vegna hins flókna valdakerf- is sem Khomeini kom á laggirnar árið 1979. Kennimaðurinn sem útnefndi sjálfan sig alvald til æviloka hélt fram rétti þjóðarinnar til að ákvarða um eigin hag en undir alvaldri stjórn hans. Slíkt tvíhliða kerfi trúarleiðtoga og verald- legs valds býður heim átökum, óöryggi og spennu á milli valdhafanna sjálfra annars vegar, til dæmis á milli Khatamis forseta og Khameneis erkiklerks, og á milli valdahafa og þjóðarinnar hins vegar. Staða klerkanna og stjórnkerfi þeirra Byltingin velti úr sessi einu rótgrónasta einveldi sögunnar þar sem leiðtoginn hafði á sér guð- legt yfirbragð. Khomeini var eins og skapaður í hlutverk eftirmanns keisaranna. Khamenei, eft- irmann hans, skortir hins vegar þá dulúð og helgi sem hvíldi á forvera hans. Er það fyrsta vísbendingin um að ákveðin skil séu að verða á milli trúar og stjórnmála í Íran. Trúarleiðtog- ar/mullar hafa alltaf verið áberandi í írönsku samfélagi og sérstaklega í dreifbýli. Þeir hafa verið í nánu sambandi við alþýðu manna og allt fram til síðustu aldar voru dómstólar landsins í þeirra höndum. Ný stjórnarskrá tók gildi árið 1979 þar sem stjórnskipan landsins var ákveðin. Reynt var að koma á tvíhliða kerfi klerkaveldisins og tak- markaðs lýðræðis. Slík skipan leiðir óhjá- kvæmilega til átaka, óöryggis og óánægju þeirra sem markvisst er haldið fyrir utan valda- kerfið. Stjórnarskráin kvað á um stöðu Khomeinis sem alvalds til æviloka. Endanlegar ákvarðanir í stjórnmálum, trúmálum og örygg- ismálum voru hans. Khomeini hafði hins vegar margvíslegar skoðanir og var langt í frá sam- kvæmur sjálfum sér á tíu ára stjórnarferli. Það er ekki síst þess vegna sem mjög reynir á eft- irmenn hans. Í stjórnarskránni er kveðið á um félagafrelsi, málfrelsi og réttláta málsmeðferð. Hins vegar eru öll réttindi skilyrt með ákvæði um að þau megi hvorki ganga gegn hagsmun- um samfélagsins né íslam. Erkiklerkurinn Khamenei og klerkaráðið, sem í sitja tólf klerk- ar, hafa því í raun alræðisvald. Þingkosningar eru haldnar á fjögurra ára fresti. Klerkaráðið hefur fram til þessa ákveðið hverjir fái að vera í framboði. Í kosningunum árið 1992 hafnaði það þriðjungi frambjóðenda eða um eitt þús- und manns, þar af voru um 40 sitjandi þing- menn. Í síðustu kosningum var þessi tala um 5%. Nýlega samþykkti þingið lög þar sem þetta vald klerkaráðsins var afnumið. Ef þau lög taka gildi er það gífurlegur sigur fyrir um- bótaöflin og þróun lýðræðis í hinu íslamska lýð- veldi. Helstu leiðtogar Núverandi forseti Írans og leiðtogi umbóta- sinna, Muhammad Khatami, tók þátt í bylting- unni af fullri einurð. Hann var lærisveinn Khomeinis frá unga aldri og var ráðherra í stjórnartíð hans. Khatmani er menntaður í íslam, heimspeki og vestrænum stjórnmála- kenningum og bjó um tíma í Þýskalandi. For- setinn er eini leiðtoginn sem er kjörinn í beinni kosningu og fékk hann 70% atkvæða árið 1997 og enn betri kosningu á síðasta ári. Fylgi sitt sækir hann til ungu kynslóðarinnar (kosninga- aldur er 15 ár), kvenna, fólks í viðskiptum, menntamanna og stúdenta. Khatmani er þjóð- höfðingi lýðveldisins og samkvæmt stjórnar- skránni á hann að velja stjórn og forsætisráð- 48 Íran 5.12.2002 16:57 Page 50

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.