Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 57

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Page 57
um heldur gáfu skilaboð um tengsl samfélags- hópa heima fyrir. Sérstaklega má nefna stuðn- ing sýninganna við almenna kynþáttafordóma sem réttlættu yfirráð ákveðinna hópa heima fyrir yfir öðrum. Áherslan á litarhátt gat til dæm- is verið mikil, eins og eftirfarandi tilvitnun í blaðið Buffalo Express sýnir, en hún birtist í tengslum við sýninguna í Buffalo 1901: Frá hinum leyndardómsfullu innviðum myrk- viða Afríku komu 98 manneskjur til sýningar- innar í gær sem eru eins svartar og spaðar [. . . ], svartar eins og litlaus tjara, svartar eins og kol, svartar eins og aska, svartar eins og krákur, svartar eins og allt sem kemur upp í hugann sem er algerlega án sólar, mána, stjarna. Nótt- in er sem ljós við hlið þeirra (tilvísun úr Rydell 1999:143). Þessi lýsing er sérstaklega áhugaverð í því ljósi að í Bandaríkjunum bjó fjöldi fólks með dökkan litarhátt og litarháttur Afríkufólks hefði því átt að vera lítið undrunarefni. Slíka tilvísun er ein- göngu hægt að skilja útfrá því hversu mikilvæg- ur liturinn „svartur“ var í því að skilgreina Afr- íku. Í ritum og skrifum sem tengjast Afríku tíðkast að taka sérstaklega fram litarhátt fólks og stilla því þannig upp sem frávikinu. Hvítur lit- arháttur verður normið, svo eðlilegur að hann þarf ekki að nefna. Að sama skapi er fjallað um Bandaríkjamenn af afrískum uppruna á hátt sem gefur til kynna að vitsmunir þeirra séu litlu meiri en þeirra sem var verið að sýna. Eins og Rydell bendir á var áhorfandanum því ekki ein- ungis boðið að horfa á vanþróun hins svarta Afríkubúa, heldur voru einstaklingar af sama lit- arhætti heima fyrir einnig skilgreindir.50 Slík til- vísun í tengsl þjóðfélagshópa heima fyrir felur í sér að sýningar á framandi fólki eru settar í beint samband við upplifun einstaklinga. Í sam- hengi við viðurkenndar hugmyndir þess tíma um vísindi og framþróun hlýtur slík tilvísun að hafa verið sérlega áhrifamikil við það að rétt- læta og útskýra forræði þjóða Vesturlanda yfir öðrum þjóðum. Sýningar á fólki og menningarheimum ein- skorðuðust þó ekki einungis við fólk frá þriðja heiminum. Á sumum heimssýningunum voru einnig reist þorp sem átti að sýna þjóðarkjarna ákveðinna hluta hins vestræna heims. Skosk og írsk „þorp“ voru reist á breskum heimssýn- ingum, svo dæmi séu tekin. Bandarískar heimssýningar lögðu sérstaklega mikla áherslu á slíkt, en samkvæmt Benedict má rekja það til þess að þeir voru að vísa í fjölþjóðlegan bak- grunn sinn.51 Áhersla á þjóðerni hefur farið vax- andi, enda er mikilvægur þáttur sýninganna nú í dag að þjóðir setji upp ákveðna skála þar sem þær draga ekki bara fram séreinkenni sín sem þjóða, heldur markaðssetja sig og reyna að koma á framfæri ákveðnum vörum. Ég tel þó að við séum að ræða um mjög ólík fyrirbæri þegar slíkt er borið saman við sýningar á hernumdu fólki á nýlendutímanum og vil þá vísa í það sem ég sagði fyrr út frá hugmyndum Foucaults, að það skipti ekki öllu máli hvað er sýnt heldur mun frekar tengsl milli þeirra sem eru til sýnis og þeirra sem horfa á. Kynning þjóðar almennt á sjálfri sér endurspeglar allt annars konar valdatengsl en þau sem fram koma í tengslum og orðræðu nýlenduherra á viðföngum sínum. Í lok nítjándu aldar og í upp- hafi þeirrar tuttugustu voru einstaklingar frá hernumdum þjóðum felldir inn í ákveðna stór- sögu sem miðaði að því að sýna yfirburði Vest- urlanda og réttlæta yfirráð þeirra yfir ríkjum þessara þjóða. Kynningar á þjóðum, eins og tíðkast nú í dag, eru ekki eingöngu mikilvæg vegna þess að þær fela í sér sjálfsákvörðun þeirra varðandi hvaða þættir eru dregnir fram, heldur einnig vegna þess að þær fela í sér að þjóðirnar koma fram á sama grundvelli. Þær eru áhorfendur um leið og þær eru sýningagripir. Slík síbreytileg staðsetning, milli þess að vera áhorfandi og viðfang, þar sem einstaklingar skoða skilgreiningar annarra á sjálfum sér og skilgreina sig sjálfa fyrir öðrum, felur í sér allt önnur valdatengsl en þegar hópar eru teknir frá hernumdum svæðum og stillt upp undir ákveðnum formerkjum, þ.e. sem hernumdir og vanþróaðir hópar. Orðræður eru mikilvægar, eins og fræði- menn hafa í síauknum mæli lagt áherslu á, vegna þess að þær eru samofnar valdi. Orð- ræður, sem mótandi fyrir sjálfsmynd fólks, geta réttlætt og útskýrt yfirráð ákveðinna hópa yfir öðrum og leiða því af sér ákveðnar athafn- ir. Marx52 lagði áherslu á hugmyndafræði sem mikilvæga við það að ráða gerðum einstaklinga en lagði jafnframt áherslu á tengingu hennar við efnislegan veruleika og aðstæður. Hér má sérstaklega vísa í dialektíska nálgun Marx, þar sem hann leggur áherslu á tengsl manneskju við umhverfi sitt. Grunnhugmynd hans felur í sér að manneskjan sé í gagnkvæmum tengsl- um við umhverfi sitt; hún móti það og endur- skapi að vissu leyti en samtímis mótar um- hverfið manneskjuna. Vegna þess að mann- eskjan mótar umhverfið verður til nýtt mann- gert umhverfi sem hefur svo aftur áhrif á manneskjuna.53 Í gegnum slík dialektísk tengsl má, í samhengi við umræðuna hér, líta svo á að manneskjan skapi ákveðinn efnislegan veru- leika með orðræðum eða með „ímynduðum samfélögum“, og að sá veruleiki endurskapi orðræðuna sjálfa. Orðræður flokka einstaklinga niður í ákveðna hópa og tilgreina þá ákveðin einkenni og hegðun sem móta möguleika og líf þessara einstaklinga. Sem hluti af orðræðu ný- lendustefnunnar studdu heimssýningarnar við og réttlættu yfirráð ákveðinna hópa yfir öðrum og það sem hafði áhrif á líf og lífsviðurværi milljóna manneskja. Í nálgun Foucaults er vald auðvitað mun flóknara en svo að það snúist einfaldlega um yfiráð,54 heldur er það samofið skilningi á heiminum, sem uppspretta bæði þjáningar og vellíðanar. Áhrifamáttur sýninganna fólst í endurspeglun og framleiðslu á ákveðnum ríkj- andi skilningi (meaning) á heiminum. Þær stilltu sjónrænt mismunandi hópum upp í ákveðin valdatengsl og reyndu að túlka slík tengsl og gera þau rökrétt og skiljanleg út frá sjónarhóli Vesturlandabúa. Þær útskýrðu hvort tveggja tengsl þeirra sem skilgreindir voru af mismunandi kynþáttum heima fyrir og tengsl við önnur samfélög sem voru mótuð í skjóli heimsvalda- og nýlendustefnu. Sýningarnar þarf því ekki eingöngu að líta á út frá nytja- hyggju (instrumentalism) heldur endurspegl- uðu þær samtíma sinn og reyndu að gera hann skiljanlegan samhliða því að endurskapa hann. Íslendingar og heimssýningar Leiðari Morgunblaðsins sem vísað var í fyrr leggur áherslu á mikilvægi þess að Íslendingar reyni að nýta sér það „tækifæri“ að kynna sig og móta ímynd sína í hugum annarra þjóða. Sem dæmi um mun á þeirri merkingu sem er í sýningu þjóða á sjálfum sér og sýningu á ný- lenduviðföngum fyrr á tímum má taka viðbrögð Íslendinga fyrir næstum einni öld við sýningu sem átti að halda í Danmörku 1905. Blaðaskrif sem hófust í kjölfar þeirrar ákvörðunar að Ís- lendingar ættu að taka þátt í sýningunni eru hin áhugaverðustu og lýsa berlega þeirri smán sem Íslendingum fannst þeir verða fyrir með því að vera skipað á sama bás og öðrum nýlenduþjóðum. Eftirfarandi frétt úr bændablaðinu Fjallkonan lýsir markmiðum sýningarinnar á nokkuð já- bls. 57Örheimur ímyndunarlandsins 52 Örheimur Ímyndar 6.12.2002 15:25 Page 57

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.