Gerðir kirkjuþings - 2010, Blaðsíða 55
55
2. mál kirkjuþings 2010
Flutt af kirkjuráði
Skýrsla kirkjuráðs.
I. Inngangur
Kirkjuráð var kjörið til fjögurra ára á kirkjuþingi 2006, en kosið var til kirkjuþings á
þessu ári. Kirkjuþing 2010 mun kjósa nýtt kirkjuráð til fjögurra ára og lýkur þá kjör-
tímabili kirkjuráðs. Í kirkjuráði sitja auk biskups Íslands, sem er forseti kirkjuráðs
lögum samkvæmt, Jóhann E. Björnsson, fyrrverandi forstjóri, Reykjavík, sr. Halldór
Gunnarsson, sóknarprestur í Holtsprestakalli, Suðurprófastsdæmi, Sigríður M.
Jóhannsdóttir, forstöðumaður heimaþjónustu Akureyrarbæjar, Akureyri og sr. Kristján
Björnsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli, Suðurprófastsdæmi. Í maí sl.
var kosið til kirkjuþings og verður því nýtt kirkjuráð kjörið nú á kirkjuþingi.
Kirkjuráð fer með framkvæmd sameiginlegra málefna þjóðkirkjunnar, þar á meðal
verkefna sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af
hálfu kirkjuþings. Ákvörðunum kirkjulegra stjórnvalda má almennt skjóta til
kirkjuráðs til endanlegrar úrlausnar. Á starfsárinu tók til starfa nýr dómsmála- og
mannréttindaráðherra, Ögmundur Jónasson, en það ráðuneyti fer með málefni þjóð-
kirkjunnar.
II. Störf kirkjuráðs
Störf kirkjuráðs byggjast á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr.
78/1997, svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni
kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem
lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu
kirkjuþings, prestastefnu, samtaka leikmanna, Alþingis og ráðherra. Kirkjuráð
undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið
flest þingmál og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð og ráðgjöf.
Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki ákveðið af
kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum þjóð-
kirkjunnar. Kirkjuráð er stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs og úthlutar úr
sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármálaumsýslunni
felst m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða
sem ráðið stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráð veitir sóknum margháttaða
ráðgjöf um fjármál.
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð heldur fundi að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu og á þessu
starfsári hefur ráðið haldið 15 fundi, þar af einn í Skálholti. Auk kirkjuráðsmanna og
framkvæmdastjóra, Guðmundar Þórs Guðmundssonar, sitja fundi ráðsins Ragnhildur
Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármála-
stjóri Biskupsstofu, og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem ritar fundar-
gerðir. Forseti kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, situr fundi kirkjuráðs þegar málefni
kirkjuþings eru til umfjöllunar. Forsætisnefnd, þ.e. forseti kirkjuþings og varafor-
setarnir, þau Margrét Björnsdóttir og Ásbjörn Jónsson, komu á fund kirkjuráðs þann
10. desember 2009 er ræddar voru ályktanir og samþykktir kirkjuþings 2009. Þá voru
einnig boðaðir á þann fund formenn nefnda kirkjuþings. Að þessu sinni mætti sr. Gísli
Gunnarsson, formaður allsherjarnefndar, en sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, formaður