Gerðir kirkjuþings - 2010, Blaðsíða 71
71
2010. Kirkjumiðstöð Akureyrar í þessari mynd mun því hætta starfsemi um áramót.
Kirkjuráð mun áfram styðja starf ÆSKÞ.
Leikmannastefna
Kirkjuráð fékk sendar tvær ályktanir sem samþykktar voru á Leikmannastefnu sem
haldin var í apríl 2010.
Sú fyrri fjallar um hvatningu til sóknarnefndarfólks um að neyta atkvæðisréttar í
væntanlegum kirkjuþingskosningum og jafnframt til þess að starfsreglur um kjör til
kirkjuþings verði teknar til endurskoðunar í því skyni að efla lýðræði innan
þjóðkirkjunnar og virkni þeirra sem vilja láta sig málefni kirkjunnar varða. Kirkjuráð
tók undir ályktun leikmannastefnunnar og sendi hana til formanna sóknarnefnda og
hvatti jafnframt sóknarnefndir til að halda sérstakan kjörfund sóknarnefnda eða
sóknarnefndarfundi þar sem kosið yrði.
Hin ályktun leikmannastefnunnar varðar sóknargjöld og skerðingu á þeim og hvetur
Leikmannastefna sóknarnefndir til þess að beita sér í vörn fyrir sóknargjöldum
gagnvart þingmönnum og stjórnvöldum. Kirkjuráð tók einnig undir þessa ályktun
leikmannastefnunnar og hefur sent hvatningu til sóknarnefnda þess efnis.
Leikmannaráð óskaði eftir því að kirkjuráð legði fyrir kirkjuþing 2010 tillögu að
starfsreglum um breytingu á starfsreglum um Leikmannastefnu þess efnis að stefnan
fái áheyrnarfulltrúa á kirkjuþingi með málfrelsi og tillögurétt. Kirkjuráð taldi að
beiðni leikmannastefnu um áheyrnarfulltrúa væri ekki í samræmi við
grundvallarhugmyndina að skipan kirkjuþings. Þegar ákveðið var að leikmenn yrðu
fleiri en vígðir fulltrúar á kirkjuþingi 1997 var gengið út frá því að leikmannastefnan
yrði felld niður. Þróunin hefur orðið önnur og leikmannastefnan hefur eflst. Kjörgengi
leikmanna hefur auk þess verið aukið verulega.
Æskulýðsstarf í prófastsdæmum
Á árinu 2009 skipaði kirkjuráð nefnd til að fjalla um æskulýðsstarfið í prófasts-
dæmunum. Nefndarmenn eru Dagný Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri ÆSKR, sr.
Gísli Jónasson, prófastur, sem er formaður, og sr. Stefán Már Gunnlaugsson,
sóknarprestur. Nefndin hefur skilað til kirkjuráðs skýrslu um æskulýðsmál í prófasts-
dæmunum og yfirliti yfir greiðslur og styrki héraðssjóða til æskulýðsmála árin 2006
til 2009. Þessi skjöl eru lögð hér fram sem fylgiskjöl með skýrslu kirkjuráðs.
Upplýsingatækni
Tekinn hefur verið í notkun þjónustuvefur fyrir sóknarnefndir, presta o.fl. Þar eru
umsóknareyðublöð fyrir sóknir vegna Jöfnunarsjóðs sókna o.fl. Einnig er gert ráð
fyrir að starfsskýrslur presta verði færðar þar og ennfremur er þar aðgangur að ýmsum
upplýsingum, t.d þjóðskrá, sem uppfærð er daglega. Gert er ráð fyrir að þjónusta á vef
þessum verði aukin og upplýsingamiðlun efld.
Drög að vímuvarnastefnu þjóðkirkjunnar
Unnin hafa verið drög að nýrri vímuvarnastefnu fyrir þjóðkirkjuna en gildandi stefna
var samþykkt á kirkjuþingi 1998. Þar var unnin stefnumótun fyrir kirkjuna í
mikilvægum málaflokki sem snertir hag einstaklinga og fjölskyldna í landinu og
kemur oftsinnis inn á borð presta og djákna í sálgæslu. Hins vegar hefur þótt vanta í
stefnuna skýrari aðgerðaáætlun. Sömuleiðis skortir í fyrri stefnu verkferla um það
hvernig taka skuli á málum þegar vímuefnavandi kemur upp meðal starfsfólks
kirkjunnar. Drög þessi voru unnin af sr. Karli V. Matthíassyni, vímuvarnapresti,
Marinó Þorsteinssyni, formanni sóknarnefndar Dómkirkjunnar, Rannveigu Guð-