Gerðir kirkjuþings - 2010, Blaðsíða 38

Gerðir kirkjuþings - 2010, Blaðsíða 38
 38 Breytum steinum í brauð. Það var ellefta boðorðið. Og svo mjög ærðust hinir óstöðugu að ekki heyrðust orðaskil úr Guðs munni um samúð og kærleika og umburðarlyndi. Hvað þá að maður ætti að elska náunga sinn. Í árþúsundir hafa trúarbrögðin, heimspekin og siðfræðin reynt að beisla hið illa með okkur og virkja hið góða. Þetta er eilífðarverk mannsins. Andvaraleysið er slæmt og ekki hjálpar þegar komið hefur bein hvatning um að virkja þær tilfinningar og hvatir sem við almennt teljum slæmar, ágirndina og eigingirnina. Best vegnar samfélögum sem eru í góðu jafnvægi, þar sem mannréttindi eru í hávegum höfð, gagnkvæm virðing manna á milli, stofnanir þykja traustsins verðar, réttarkerfið nýtur virðingar og síðast en ekki síst siðleg gildi eru í hávegum höfð. Sagan kennir að mikilvæg gildi fá þrifist án stofnanalegrar umgjarðar. Kristur barðist við stofnanaveldi sinnar samtíðar. Hann skilgreindi sig aldrei í ljósi eigna eða veraldlegra gæða. Þau gildi sem hann boðaði eru grundvöllur siðferðis kristinna manna í fjölbreyttum söfnuðum víða um heim. Stofnanir samfélagsins eiga allt sitt undir sátt í samfélaginu. Styrkur þeirra byggist á samkennd og sameiginlegri siðferðisvitund. Það gildir um Alþingi, um dómstóla um viðskipti hvers konar og það gildir líka um kirkjuna. Og þegar sáttin týnist og siðferðið glatast, riða allar stofnanir til falls. Þegar köllin glymja: Breytið steinum í brauð, svo allir ærast af hávaða, þá bresta hin þykkustu tré. Fáir heyra í þeim sem segir: Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. En nú eru nýir tímar að ganga í garð. Átrúnaðurinn á græðgina og gullgerðaræðið er í rénun. Nú geta þær stofnanir samfélagsins sem standa á góðu siðferði og gildum, byggt sig upp að nýju og orðið hver annarri styrkur. Einhver sagðist vera algerlega á móti aðskilnaði ríkis og kirkju. Það væri meira en nóg að hafa eina stofnun sem reyndi að hafa vit fyrir manni. En þær eru ólíkar þessar stofnanir, ríkið og kirkjan. Þjóðkirkjan er þó betur sett að því leyti að enginn kemur þangað nauðbeygður. Ekki er hægt að segja sig undan ríkinu. Ekki er hægt að segja sig úr þjóðfélaginu. Allar stofnanir þjóðfélagsins eiga undir högg að sækja. Allar stoðir okkar litla samfélags eru í vanda. Verkefni okkar sem störfum í framvarðarsveit stofnana samfélagsins er að endurvinna traust. En það er ekki sama hvernig það er gert. Verkefni okkar er ekki að endurbyggja gömlu húsin eftir gömlu teikningunum. Verkefnið er að finna gallana, endurhugsa alla hluti, efast um allt og vanda til uppbyggingar. Við viljum koma sterkari út úr kreppunni en við fórum inn í hana. Því kreppan var siðferðiskreppa. Og kreppan er enn siðferðiskreppa. Og því er horft til kirkjunnar. En þar starfa líka menn en ekki dýrlingar. Menn sem eru fullir af efa en líka trú. Og þar er líka að finna von og þar er líka að finna kærleika. Og kannski verðum við öll, hvar sem við störfum, að endurbyggja samfélagið með kærleika. Þegar allt um þrýtur og hvorki finnast steinar né brauð, er kærleikurinn það eina sem eftir er. Samúð, samhugurinn, samfélagið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.