Félagsbréf - 01.03.1963, Blaðsíða 17
ur ekki verið kunnugt áður. Á það
sérstaklega við um þáttinn frá síðari
heimsstyrjöld, þar sem birtist í fyrsta
sinn samfelld frásögn af því, hvernig
fjallað var um Island á stjórnarskrif-
stofum ófriðaraðila.
Maíbók II er hin víðkunna rússneska
saga Dagur í líji ívans Denisovichs eftir
Alexander Solzhenitsyn í þýðingu Stein-
gríms Sigurðssonar,(sjá augl. á bls. 64).
Sagan gerist í rússneskum þrælabúðum,
og byggir höfundur á eigin reynslu. Er
bókin bæði stórbrotið bókmenntaverk,
svo að jafnað hefur verið við Dostojevskí
og raunsæ og hleypidómalaus lýsing á
einum degi í Hfi manna, sem einna verst
er komið fyrir á þessari jörð, fanga í
þrælabúðum einræðisríkis.
Júníbókin verður 6. bókin í flokkn-
um Löndurn og þjóSum. Nefnist hún
Indland, höfundur er Joe David
Brown, en þýðandi Gísli Ólafsson.
Þarf sú bók ekki frekari kynningar við.
Indland er með sama sniði og aðrar bæk-
ur í þessum flokki, og fjallar um land,
sem er mikilsvert, en alltof lítið þekkt
meðal vestrænna þjóða. Ætti bókin því
að vera fullforvitnileg íslenzkum lesend-
um.
Júlíbók AB í ár verður HlébarSinn,
skáldsaga eftir ítalska furstann Giu-
seppe Tomasi di Lampedusa, þýðandi
Tómas Guðmundsson. Er þetta saga
sikileyskrar furstaættar, m.ö.o. ættar-
saga höfundarins sjálfs, og hefst 1860
með innrás Garibalda í eyna, en endar
1910. Speglar frásögn bókarinnar frá
bærlega vel hinar miklu samfélagslegu
byltingar, sem gengu yfir Evrópu á
þessu merkilega tímabili. Um þessa
bók má segja, að hún glitri öll af
snilld, en lengst kemst þó höfundur-
inn í túlkun sinni á ást, hnignun,
hverfulleik og dauða. Sagan kom fyist
út 1959 og er talin eitt mesta og sér-
stæðasta afrek í bókmenntum þessarar
aldar, enda farið óslitna sigurför um
allan hinn menntaða heim.
Ágústbókin í ár verður Eldur í
Öskju eftir dr. Sigurð Þórarinsson.
Er það myndabók í stíl við Eld í
Heklu, fögur og svipmikil lýsing á
hinni stórbrotnu fjallaauðn og náttúru-
hamförum þeim, sem þarna urðu.
Fyrir bókinni er ýtarlegur inngangur á
íslenzku og ensku, þar sem rakin er
saga Öskju, bæði frá sjónarmiði sagn-
fræði og jarðfræði. Myndatextar verða
bæði á íslenzku og ensku. Þó að bókin
sé ágústbók mun hún koma út í júní.
HEFTI AF FÉLAGSBRÉFUM
HELGAÐ UNGU FÓLKI
Að lokum þetta: Forráðamenn tíma-
ritsins hafa mikinn áhuga á að helga
eitthvert af næstu heftum Félagsbréfa
eingöngu efni eftir byrjendur, þ. e.
ungt fólk, sem ekki hefur gefið út bæk-
ur áður og lítið sem ekkert birt. Kemur
hvers konar efni til greina, smásögur,
ljóð, leikþættir, ritgerðir, jafnvel brot
úr stærri verkum. Vonum vér, að sem
flest ungt fólk sendi Félagsbréfum
efni í þessu skyni. Stutt greinargerð
um höfundinn þarf að fylgja. Valið
verður úr því efni, sem berst, og
greidd venjuleg ritlaun fyrir, en því
sem ekki verður birt, skilað aftur
ásamt skýringu á því, hvers vegna
það er ekki birt. Efni þarf að hafa
borizt ritstjórninni í hendur fyrir
maílok n. k,
FÉLAGSBRÉF 5