Félagsbréf - 01.03.1963, Side 37

Félagsbréf - 01.03.1963, Side 37
sína nema fyrir sannanir og vitna í kraftaverk Krists því til staðfestingar. Þess vegna er það stefna þeirra að afla þessara sannana. Og það hefur ekki staðið á þeim. Bók, sem t.d. ber titil- inn „Hundrað sannanir fyrir fram- haldslífi“ ætti ekki að þurfa að skilja eftir neinn vafa lengur. En hví skyldi þurfa hundrað sannanir. Ein sönnun hefur yfirleitt þótt nóg til að sanna eina tilgátu! Vísindamenn þykjast venjulega góðir, ef þeir hafa sannað tilgátu sína, og halda þá áfram rann- sóknum sínum á grundvelli þessarar einu sönnunar. Spiritistar aftur á móti hranna upp sönnunum fyrir að því er virðist löngu sannaðri tilgátu frá þeirra hálfu. Hvað veldur því, að þeir fást alltaf við að leggja sama kapal- inn, fyrst liann gengur alltaf upp? Hér er grundvallar rökvilla spiritista. Þeir kunna ekki að gera greinarmun á sönnun og persónulegri sannfæringu, en það eru þessi tvö hugtök, sem skilja á milli vísinda og trúar. Krafta- verk Krists eru tæplega fordæmi til eftirlíkingar fyrir venjulega menn, ef við teljum þau bera vitni um guðdóm hans. Tæplega má heldur líta á þau sem sannanir fyrir einu eða neinu, heldur aðeins tæki til að veita vantrú- uðum frumkristninnar trú eða sann- færingu. Kristur kvað líka skírt á um það, að trú yrði ekki til fyrir sannanir, heldur fyrir skilyrðislausa móttöku Orðsins, — sannfæringu. II. En lítum nú á hvað spiritismi og sálarrannsóknir hafa fram að færa á íslandi í dag, og athugum síðan, hvað er í rauninni vitað um þessi fyrirbæri, og hverjar ástæður eru til að trúa á framhaldslíf út frá þeim. Ég hef valið þrjár bækur, allar nýj- ar eða nýlegar, til þessarar athugun- ar. Tvær þeirra eru íslenzkar og flest- um kunnar, enda voru þær gefnar út fyrir síðustu jól: Lára miðill, eftir sr. Svein Víking, og Líf er a'S loknu þessu, eftir Jónas Þorbergsson. Hin þriðja er norsk, Det skjulte menneske, eftir prófessor Harald Schjelderup, og kom út í Osló árið 1961. Þessar þrjár bæk- ur tel ég að ættu að vera frambæri- legir fulltrúar fyrir þær þrjár stefnur eða hreyfingar, sem láta sig dulræn fyrirbæri skipta, og ættu að endur- spegla skoðanir þeirra. Hin fyrsta, Lára miSill, er skrifuð af einum stjórn- armeðlimi í Sálarrannsóknarfélagi Is- lands. Önnur Líj er aS loknu þessu, er eftir einn okkar þekktasta og sann- færðasta spiritista. Og hin þriðja, Det skjulte menneske, er skrifuð af þekkt- um sálfræðingi, sem reynir að kryfja til mergjar þá vitneskju, sem við höf- um um dulræn fyrirbæri og leggja vís- indalegt mat á þá vitneskju. Bók séra Sveins Víkings, Lára miSill, fjallar um miðilinn Láru Ágústs- dóttur, líf hennar og starf svo langt sem það nær. Hún hefst á forspjalli um dulræn fyrirbæri og skýringar þeirra, en síðan rekur höf. nokkuð æskuár Láru og fyrstu kynni hennar af sálarrannsóknum. Meginhluti bókar- innar, tæpur helmingur, er svo safn frásagna sjónar- og heyrnarvotta af dulargáfu og miðilsstarfi Láru. Þá er rakinn svonefndur fræðslufundur, þar sem segir frá öðrum heimi, en síðan er FÉLAGSBRÉF 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.