Félagsbréf - 01.03.1963, Síða 40

Félagsbréf - 01.03.1963, Síða 40
aður af hlutlausum kunnáttumönnum. Fyrir höf. er heimur Hafsteins raun- verulegur. Ekki aðeins framliðnir geta komizt í samband við okkur, heldur eru allt í kringum okkur huldufólk. búálfar, Ijósálfar, dvergar, í stuttu máli allt sem ævintýrin hafa sagt okk- ur frá. Ef við viljum trúa, að miðill- inn hafi í rauninni haft samband við framliðna, þá verðum við einnig að trúa á allt hitt, huldufólkið og álfana, dvergana og jólasveinana. Ofin inn í gamla íslenzka þjóðtrú er svo austræn dulspeki um þroskastig framhaldslífs- ins, biðheima, astralsvið og endurfæð- ingu. Að bókarlokum reynir höf. svo að fella inn í þetta helztu atriði krist- innar trúar, en gengur erfiðlega. Hann ásakar kirkjuna fyrir þröngsýni og hvetur hennar menn til að „afla sér nútímaþekkingar“ um framhaldslíf. IV. Bókin Det skjulte menneske er að flestu ólík þeim tveim, er að framan greinir. Grundvöllur hennar er mun breiðari. Ekki er fjallað um neinn einn miðil eða settar fram lýsingar á því sem við köllum dulræn fyrirbæri í þröngum skilningi. Bókin umtekur hið djúpa og dulda í sálarlífi mannsins, hins veraldlega þessa heims manns. Höfundurinn, próf. Harald Schjeld- erup er einn kunnasti sálfræðingur á Norðurlöndum, gáfaður og mikilhæfur vísindamaður. Hann lætur sér fátt mannlegt óviðkomandi og er órag- ur við að takast á við verkefni, sem margir hafa heykzt á að glíma við, svo sem þessi bók ber vitni um. Bókin er skrifuð á aðgengilegu niáli 28 FÉLAGSBRÉF og gerir flóknar kenningar lifandi og skemmtilegar, svo að allir fá notið. Bókin er í senn fræðandi og afburða skemmtileg aflestrar. Bókin skiptist í tvo hluta. Hinn fyrri er um kenningar og rannsóknir á hinu dulvitaða í sálarlífi mannsins. Er þar m.a. fjallað um sálkönnunaraðferð Freuds og þátt dáleiðslu í rannsóknum á dulvitundinni. — I seinni hluta bók- arinnar, „Við mörk hins óþekkta“, ræð- ir höf. um spiritisma, sálarrannsókn- ir og sálfræðilegar rannsóknir á dul- rænum fyrirbærum. Höf. rekur nokkuð sögu spiritismans og segir að hreyfingin sé útbreiddust í 3 löndum: Islandi, Brasilíu og Puerto Rico. — Margir hefðu eflaust haldið, að spiritisminn væri einna útbreidd- astur í Bretlandi, einfaldlega vegna þess, að þar hafa sálarrannsóknir verið einna mest stundaðar. En í Bretlandi eru sál- arrannsóknir og spiritismi ekki eitt og hið sama eins og virðist vera hér á landi. Sálarrannsóknarfélag íslands var upphaflega stofnað að fordæmi brezka sálarrannsóknarfélagsins, en það virð- ist aldrei hafa stundað neinar umtals- verðar sálarrannsóknir eins og hið brezka, heldur orðið hópur innan spirit- ismans, trúflokkur sem iðkar trúarat- hafnir og trúboð af engu minni ákafa en aðrir sértrúarflokkar. Brezka sálar- rannsóknarfélagið hefur aftur á móti ástundað raunverulegar rannsóknir, fundið eðlilegar skýringar á ýmsum dulrænum fyrirbærum, sem athygli hafa vakið, og meira að segja afhjúpað svikamiðla, fyrir utan gaumgæfilegar, kontroleraðar, rannsóknir á að því er virðist ekta dulrænum fyrirbærum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.