Félagsbréf - 01.03.1963, Síða 71
I
Fornar sögusagnir lifðu þó um að fær
leið fyndist að upptökum Nílar frá
austurströnd Afríku; og eftir þeirri
sögn hafði Ptolemeus markað farveg
Nílar á hið víðkunna heimskort sitt
árið 150. Samkvæmt kortinu fell-
ur Níl frá tveimur miklum vötnum
inni í miðri Afríku; til vatnanna féllu
ár og fljót frá miklum fjallgarði,
Lunæ montes eða Tunglfjöllum.
Fram til þessa hafði enginn kunnað
frekari skil á upptökum Nílar. En um
miðja 19. öld barst vitnisburður nokk
urra trúboða frá Afríku um vötnin
miklu langt inni í landi og snæviþakta
fjallstinda, Kilimanjaró og Kenýafjall;
á þessar slóðir væri fær leið frá aust-
urströndinni, sögðu trúboðarnir. Síðan
urðu arabiskir þrælasalar til að stað-
festa þessar frásagnir, en öll fáanleg
vitneskja var þó mjög óljós og rugl-
ingsleg. Það urðu þeir II. F. Burton
og J. H. Speke sem fyrstir Evrópu-
manna réðust í leiðangur inn í Afríku
frá Zanzíbar við austurströndina, og
Speke tókst síðar að ráða gátuna um
upptök Nílar. Leiðangur þeirra félaga
hófst árið 1856, og þar hefur Alan
Moorehead frásögn sína í Hvítu-Níl.
Hann rekur í upphafi leiðangra
þeirra Spekes og Burtons, Livingstones
og Stanleys um þessar framandlegu
slóðir, þar sem steinöld ríkti enn sums
staðar en annars staðar höfðu þróazt
sérkennileg siðmenningarafbrigði og
alls staðar biðu leiðangursmanna hin
otrúlegustu harðræði og ævintýri. Og
eftir að gátan um upptök Nílar er
ráðin tekur við frekari könnun þessara
landa, innrás siðmenningar þangað og
bagnýting þeirra. Arabiskir þrælasalar
Alan Moorehead.
sóttu hvern farminn af öðrum á þess-
ar slóðir, stöðugur straumur lifandi
fólks lá á þrælamarkaðina í Zanzíbar
og víðar. Islam og kristindómur börð-
ust, og berjast enn, um hin andlegu
yfirráðin. Khedivinn í Egyptalandi
seildist til valda í Súdan og öllum
löndum upp með Níl, Gordon hershöfð-
ingi ræðst í þjónustu hans að stjórna
landkönnun og landvinningum, Bretar
steypa khedivanum og taka völd í
Egyptalandi, loks logar allt Súdan í
uppreisn Araba gegn hinum hvítu og
kristnu innrásarmönnum. Gordon hers-
höfðingi fellur í Khartoum eftir hetju-
lega vörn. Kitchener hershöfðingi stýr-
ir leiðangri að sigrast á uppreisnar-
FÉLAGSBRÉF 35