Félagsbréf - 01.03.1963, Side 82
Bœkur
Trúarlýsing í máli
og tnyndum■
Helztu trúarbrögð heims.
Dr. Sigurbjörn Einarsson sá um
íslenzka textann.
Almenna bókafélagið, Rvík 1962.
Engin leið væri að segja, að við
Islendingar værum stríðaldir á rit-
um um trúarsöguleg efni. Til þessa
hefur bók Sigurbjarnar Einarssonar
biskups, Trúarbrögð mannkyns, sem
kom út árið 1954, verið eina yfirlits-
verkið um þau fræði á íslenzku, og
er það góð bók, svo langt sem hún
nær. Nú hefur okkur bætzt ný bók um
sama efni, en þó er hún að gerð allri
og byggingu talsvert annars eðlis. Ber
að fagna því framtaki að gefa bók-
ina út, því að hér er um efni að ræða,
sem mörgum mun hugleikið.
Myndabókin Helztu trúarbrögð heims
er upphaflega samin fyrir bandaríska
tímaritið Life og gefin út á þess veg-
um sérprentuð, en hefur einnig birzt á
fjölmörgum þjóðtungum öðrum en
ensku. Þó væri hæpið að segja, að bókin
hefði verið þýdd á fjölda mála, heldur
hefur að jafnaði sá háttur verið hafð-
ur á, að fræðimenn í einstökum lönd-
um hafa annazt útgáfu textans og fært
46 FÉLAGSBRÉF
hann víða til þess, sem þeir hafa talið
fara betur og vitað réttast. En trúar-
bragðasaga er fræðigrein af því tagi,
að þar eru uppi margar skoðanir um
margt, og fátt sagt um þau efni svo,
að einhverjum þyki ekki eitthvað orka
tvímælis. Er þetta hlutskipti allra
húmanistískra vísinda, ekki sízt
þeirra, sem fjalla um þá hluti
sem mönnum eru helgastir. Ég hef
grun um, að á þennan sama hátt hafi
verið unnið að íslenzku útgáfu bókar-
innar, ekki þýtt í blindni, heldur reynt
að gæta þess um leið, að texti væri
sem traustastur. Mig skortir þó gögn
til að styðja þennan grun ákveðnum
dæmum, en orðalag á titilsíðu bendir
ótvírætt í þessa átt. Og eru þetta enda
sjálfsögð vinnubrögð við útgáfu bók-
ar sem þessarar, sé völ á færum manni
til starfans, og þeirrar heppni erum
við aðnjótandi. En þrátt fyrir hreins-
unareld þess manns, sem bezt er til
fallinn á íslandi fyrir lærdóms sakir,
er ekki þar með sagt, að bókin sé í
engu aðfinnsluverð.
Vankantar bókarinnar eru þó flestir
því að kenna, hve þröngur stakkur
henni er skorinn og hvert eðli hennar
er. Hér er ekki á ferðinni fræðirit,
heildaryfirlit um eiginleika og sögu
þeirra sex trúarbragða, sem fjallað er
um. Á stóru er stiklað, og stundum er