Félagsbréf - 01.03.1963, Page 87

Félagsbréf - 01.03.1963, Page 87
haglabyssu gegnum ristina á sér og skríður „óraveg á fjórum fótum“, „nær dauða en lífi af blóðmissi“. Síðan dettur hann fram af bryggju jrar sem lágsjávað var „þrjár mannhæðir í urð niður“. Og svo kemur rúsínan þegar því er lýst er Þorkell missir marks er hann er að skjóta fé í sláturhúsi: „Kúlan kom í sitjandann á honum, á þeim stað, er hvergi sást áverki út- vortis, en streymdi þó niður af hon- hlóðið.“ „Hef ég fyrir satt, að saumuð hafi verið saman ein tíu göt á þörm- um hans og maga og kúlan ekki fundizt fyrr en uppi í þynnd“ (sic). Húmorinn er að vísu ekki allur af þessu tæi, því stundum ætlar höfundur aldeilis að bregða á leik, sbr. fyndnina um Hávamál og hafnarmál, Þorbrand skinnhúfu í Vatnsdælasögu og skinn- húfuverksmiðjuna í Leirhöfn. Hér fer a eftir sýnishorn af þeirri tegundinni: „Það segir Ögmundur Vigfússon sjö- tugur vitsmunamaður, með annan fót- inn krepptan undir þjóhnappa af liða- gigt, handarvana á vinstri handlegg og blindur, að af öllum þeim legum, sem hann hefur legið um ævina, þar með töldum tveimur banalegum, þá séu landlegur einna átakanlegastar.“ Dæmi um tilgerðina má finna á bls. 224 þegar höfundur veltir því fyrir sér á nokkrum blaðsíðum hvernig ljúka skuli ritverkinu: „Hefur enda sagt mér það vitur mað- UL sem sjálfur hefur reynt, að litill vandi myndi að skrifa bók, ef ekki þyrfti að sjá fyrir endi á henni. Er það skammt að segja, að ég þótt- ist eiga, bundinn á sagnasæri mitt, þess háttar hlemm rökréttra afleiðinga, sem vel hefði verið til þess fallinn, að loka með íláti nokkurra vertíðarsagna.“ Og höfundur er ekki lengi að finna þann „hlemm rökréttra afleiðinga“ því bókinni lýkur á hroðalegu um- ferðarslysi, þar sem Pétur tólfti verður fyrir vörubíl: „Og meðan ég var að krúnka yfir honum, heldurðu þá ekki að blóðtaumurinn hafi myndað tölu- stafinn einn í vinstra munnvikinu á honum. Og svo rétt á eftir tvo í hægra munnvikinu á honum.“ Jökull Jakobsson. Skrýtlur úr kirkjugarði GuSmundur BöSvarsson: Saltkorn í mold. Blúfellsútgáfan, Reykjavík 1962. Það er trúlegt að Skeiðarárþorp Edgars Lee Masters — Spoon River Anthology — hafi að einhverju leyti verið Guðmundi Böðvarssyni fyrirmynd að Saltkornum í moldu. En mjög er sú fyrirmynd óhein: Guðmundur hefur notfært sér sjálfa kirkjugarðshugmynd- ina og staðfært liana í íslenzku sveita- umhverfi, en meira hefur hann ekki af Masters. Fyrir honum vakir engin raunsæ mannlífsafhjúpun, engin upp- reisn gegn hefðbundnum og/eða ósönn- um mannskilningi eða listar. í kirkju- garð sinn safnar hann syrpu af gam- FÉLAGSBRÉF 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.