Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 4
„... feikilega skemmtileg
og lífleg saga … ekki er
verra þegar boðskapurinn
er færður í svo glæsilegan
og skemmtilegan búning.“
HELGA BIRGISDÓTTIR / HUGRÁS
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk i slóð 39
sveitarstjórnir Fulltrúi Fram
sóknarflokks í bæjarráði Grinda
víkur sakar meirihlutann um
sýndarmennsku í ráðningarferli nýs
bæjarstjóra.
„Með ástæðulausri uppsögn núver
andi bæjarstjóra sem getur kostað
bæjarfélagið allt að 18 milljónum
króna hlýtur meirihluti bæjarstjórnar
að hafa ákveðinn aðila í huga,“ bókaði
fulltrúi Framsóknarflokksins.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis
flokks og Lista Grindvíkinga sögðust
harma að gefið væri í skyn að þegar sé
búið að ráðstafa stöðunni. „Þær ásak
anir eiga ekki við nein rök að styðjast
og eru hreinn rógburður,“ bókuðu
meirihlutafulltrúarnir og lýstu furðu
sinni á því að framsóknarfulltrúinn
ætlaði „ekki að taka þátt í því fag
lega ráðningarferli sem fram undan
er í stöðu bæjarstjóra.“ Semja á við
Hagvang um að annast ráðningar
ferlið. – gar
Sakar meirihlut-
ann um sýndar-
mennsku
Kjaramál „Mér skilst að fleiri upp
sagnir séu á döfinni, núna á föstu
dag,“ segir Ragnar Þór Pétursson,
trúnaðarmaður kennara í Norð
lingaskóla. Um það bil 70 kennarar
hafa lagt inn uppsagnarbréf á síð
ustu dögum. Þar á meðal sögðu 30
kennarar upp störfum sínum í gær.
Ragnar Þór er einn þeirra kennara
sem sögðu upp í gær.
Samninganefndir Félags grunn
skólakennara og Sambands
íslenskra sveitarfélaga hafa fundað
hjá ríkissáttasemjara í um tíu daga.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segist vera
bjartsýnn á að samkomulag náist.
„Við værum ekki að þessu nema við
teldum að við gætum samið,“ segir
Ólafur.
„Ástæða þess að kennarar eru
að segja upp í hrönnum núna er
að menn ætla sér ekki að glíma við
ástandið ef samningurinn verður
felldur af kennurunum. Menn eru
ekki tilbúnir í verkfallsátök, bæði
vegna þess að þeir hafa enga trú á
að það komi neitt út úr því og svo
líka af þeirri ástæðu að þeir hafa
einfaldlega ekki efni á því,“ segir
Ragnar Þór.
Boðað hefur verið til fundar í dag
hjá ríkissáttasemjara en fundum
helgarinnar lauk án árangurs. Samið
er í þriðja sinn en grunnskólakenn
arar hafa nú þegar hafnað tveimur
kjarasamningum. – þh
Fleiri kennarar munu segja upp störfum
Ragnar Þór Pétursson kennari.
FRéttablaðið/GVa
Róbert Ragnarsson
fráfarandi
bæjarstjóri.
Hornafjörður Íbúar Hafnar í
Hornafirði og starfsmenn leikskólans
Lönguhóla í sveitarfélaginu mótmæla
fyrirhuguðum endurbótum á hús
næði leikskólans. Var bæjarstjórn
afhentur undirskriftalisti á fundi
bæjarráðs í vikunni þar sem hvatt er
til þess að nýr leikskóli verði byggður
nær grunnskólanum og íþróttasvæði
bæjarfélagsins.
Leikskólinn Lönguhólar er í grónu
íbúðahverfi og er að mati mótmæl
enda talið eðlilegt að byggja nýjan
leikskóla og tengja leikskólann betur
við stoðstofnanir í bænum. Einnig sé
mikilvægt að koma leikskólanum út
úr íbúðahverfinu í bænum.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur
ákveðið að halda fund með starfsfólki
leikskóla og í framhaldi af honum
verður fundur með öðrum íbúum. – sa
Vilja nýjan
leikskóla
Frá Höfn í Hornafirði FRéttablaðið/PjetuR
stjórnmál Hugmyndir Vinstri
grænna um auðlegðarskatt,
hátekjuskatt, hærri fjármagns
tekjuskatt og hærra auðlindagjald
stóðu í Viðreisn í stjórnarmynd
unarviðræðunum sem runnu út
í sandinn í gær. Á tveggja manna
fundi Benedikts Jóhannessonar,
formanns Viðreisnar, og Katrínar
Jakobsdóttur, formanns Vinstri
grænna, sem haldinn var um
miðjan dag í gær, tilkynnti hann
henni að sannfæring hans fyrir
þessu samstarfi væri engin.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að þingflokkur Vinstri grænna hafi
óttast að þetta yrði niðurstaðan frá
upphafi viðræðnanna. Fréttablað
ið hafði enda greint frá því áður en
formlegar stjórnarmyndunarvið
ræður flokkanna hófust að nokkrir
þingmenn Vinstri grænna væru
spenntari fyrir samstarfi við Fram
sóknarflokkinn. Sú afstaða hefur
styrkst enn frekar í ljósi nýjustu
tíðinda og líklegt er að flokkurinn
muni reyna að sameina Framsókn
inn í fimm flokka jöfnuna. Til þess
að það gerist verður Björt fram
tíð þó að slíta sig frá Viðreisn og
ákveða, ásamt Pírötum, að láta af
útilokun flokksins gagnvart Fram
sókn.
Þorsteinn Víglundsson, þing
maður Viðreisnar, var fulltrúi
flokksins í efnahagsmálahópi
stjórnarmyndunarviðræðnanna.
Hann segir að þar hafi ýmsar
hugmyndir um aukna tekjuskatt
heimtu verið lagðar fram sem
byggja ekki á hugmyndum helstu
skattasérfræðinga landsins. „Það
var ljóst að við værum flokkur
sem höfum lagt á það áherslu að
hvorki sé þörf né rétt á þessum
tímapunkti hagsveiflu að stór
auka ríkisútgjöld og hækka skatta
þegar allir skattstofnar ríkisins
eru í hámarks afrakstri. Það mætti
spyrja sig hvort þetta útgjaldastig
væri sjálfbært þegar skattbyrði
hér er há í alþjóðlegum saman
burði. Við töldum ekki hægt að
vinna með þessar tillögur þó það
væri hægt að ræða afmarkaðar
breytingar.“
Eins og fram hefur komið sam
þykkti Alþingi samgönguáætlun
og aukið fjármagn til almanna
trygginga, sem ekki hafði verið
gert ráð fyrir í ríkisfjármálaáætlun
næstu fimm ára. Aðgerðirnar eru
ófjármagnaðar og átti eftir að
gera ráð fyrir þeim áður en ráðist
yrði í útgjöldin sem lagt var upp
með fyrir kosningar. Þorsteinn
segir að verulega bratt hafi verið
farið í þessa útgjaldaaukningu. Í
stjórnarmyndunarviðræðunum
hafi einfaldlega verið talað um að
eyða of miklum peningum ofan á
þessa upphæð. Það yrði ekki fjár
magnað öðru vísi en með skatta
hækkunum, að mati Þorsteins.
Þorsteinn segir að hátekjuskatt
urinn hafi þó ekki verið það sem
steytti helst á. „Við erum í raun
með þrjú þrep þó það sé verið að
fækka þeim í tvö. Skattprósentan í
efra þrepi er 46 prósent og það má
spyrja sig hversu hátt menn ætla.
Sú skattprósenta var ákveðin af
ríkisstjórn Vinstri grænna og Sam
fylkingar en nú vilja menn ganga
enn lengra.“
Miklu frekar hafi hugmyndir um
auðlegðarskatt staðið í Viðreisnar
fólki.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, varð fyrir gífur
legum vonbrigðum með viðræðu
slitin í gær. „Allir þessir flokkar
hafa talað fyrir því að bæta veru
lega í heilbrigðiskerfið og mennta
kerfið. Við settum ýmsar hug
myndir á borðið en ætluðumst
ekki til þess að þær væru allar
framkvæmdar, að sjálfsögðu ekki.“
snaeros@frettabladid.is
Hugmyndir um hærri skatta
stóðu í þingmönnum Viðreisnar
Þingmaður Viðreisnar segir að hugmyndir Vinstri grænna um aukna skattheimtu standist ekki hugmyndir
helstu skattasérfræðinga landsins. Formaður Vinstri grænna segir að aldrei hafi staðið til að framkvæma
allar hugmyndirnar sem lagðar voru á borðið. VG horfir nú til Framsóknarflokksins.
Þorsteinn Víglundsson, nýkjörinn þingmaður Viðreisnar og fulltrúi flokksins í
efnahagsmálahópnum, ræðir við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, samflokksmann
sinn, í spennuþrungnu andrúmsloftinu sem ríkti á alþingi í gær. FRéttablaðið/eyÞóR
Við settum ýmsar
hugmyndir á borðið
en ætluðumst ekki til þess að
þær væru allar
framkvæmdar.
Katrín Jakobsdóttir
70
grunnskólakennarar hafa
sagt upp á síðustu dögum.
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 f i m m t u D a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
9
-6
E
7
8
1
B
6
9
-6
D
3
C
1
B
6
9
-6
C
0
0
1
B
6
9
-6
A
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K