Fréttablaðið - 24.11.2016, Síða 12

Fréttablaðið - 24.11.2016, Síða 12
Bandaríkin „Ég afneita þessum hópi fólks,“ segir Donald Trump um hóp bandarískra nýnasista, alt-right- hreyfinguna eða „hitt hægrið“ svo- nefnda, sem hefur fagnað sigri hans í forsetakosningunum með nasista- kveðjum og grímulausum yfirlýs- ingum um yfirburði hvítra manna gagnvart öðru fólki. Þetta sagði hann í ítarlegu viðtali við dagblaðið The New York Times, þar sem hann var spurður hvort hann hafi hvatt þennan hóp til dáða með málflutningi sínum í kosninga- baráttunni. „Ég vil ekki ýta undir þennan hóp, og ef ég gerði það þá vil ég skoða málið og komast að því hvers vegna það var,“ sagði hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna. Hins vegar sagðist Trump ekki sjá neitt athugavert við að hafa gert Steve Bannon að helsta ráðgjafa sínum. Bannon er fyrrverandi stjórn- andi Breitbart-fréttasíðunnar, sem hefur verið einn helsti vettvangur alt-right-hreyfingarinnar í Banda- ríkjunum. Bannon hefur fyrir vikið verið í hávegum hafður meðal liðs- manna „hins hægrisins“. Og hann hefur sjálfur verið sakaður um að aðhyllast hugmyndir þessarar hreyfingar, þar á meðal kynþátta- hatur hennar, en Trump vildi alls ekki kannast við það. „Ég hef þekkt Steve Bannon lengi. Ef ég héldi að hann væri rasisti, eða alt-right-maður,“ sagði Trump, „þá hefði mér ekki dottið í hug að ráða hann.“ „Og ef ég héldi að skoðanir hans væru í þessum flokki, þá myndi ég strax láta hann fara,“ bætti Trump við. Í sama viðtali staðfesti hann að hann ætli sér ekki að gera neitt úr hótunum sínum um að draga Hillary Clinton fyrir dómara. „Ég vil ekki valda Clinton-hjón- unum tjóni. Í alvöru. Hún hefur mátt þola margt,“ sagði hann. „Kosn- ingabaráttan var illskeytt.“ Breitbart-fréttavefurinn hefur til þessa staðið nokkuð þétt við bakið á Trump, en sló því upp að nú hafi hann svikið þetta kosningaloforð sitt um að lögsækja Clinton. Í viðtalinu við The New York Times ítrekar Trump síðan kvart- anir sínar undan fjölmiðlum, þar á meðal New York Times, sem hann sagði hafa fjallað um sig með afar neikvæðum hætti. „Ég myndi segja að The New York Times hafi verið verst af þeim öllum,“ sagði hann, en tók jafn- framt fram að hann  bæri mikla virðingu fyrir blaðinu. Hins vegar vildi hann gjarnan geta knúið fram breytta afstöðu hjá því: „Ég held að það myndi létta mér störfin mikið.“ gudsteinn@frettabladid.is Bandaríkin alls 538 kjörmenn (270 þarf til sigurs) Clinton: 64.223.958 (48,1%) 232 kjörmenn trump: 62.206.395 (46,6%) 306 kjörmenn Talningu er þó enn ekki lokið í Michigan mismunur: 2.017.563 atkv. michigan: 16 kjörmenn Clinton: 2.270.996 trump: 2.280.524 mismunur: 9.528 Wisconsin: 10 kjörmenn Clinton: 1.382.011 trump: 1.404.536 mismunur: 22.525 pennsylvanía: 20 kjörmenn Clinton: 2.861.117 trump: 2.930.082 mismunur: 68.865 Skv. samantekt frá David Wasser­ man á The Cook Political Report (cookpolitical.com) Kröfur um endurtalningu í þremur lykilríkjum, Michigan, Pennsyl­ vaníu og Wisconsin, eru farnar að verða háværari. Clinton tapaði í öllum þessum þremur ríkjum, en fyrirfram var hún talin eiga nokkuð öruggan sigur í þeim öllum. Færi svo að endurtalning sneri úrslitunum við í þeim öllum, þá fengi Trump 260 kjörmenn í stað 306, og hefði þar með tapað kosningunum því 270 kjörmenn þarf til sigurs. Að minnsta kosti tveir hópar einstaklinga hafa verið að taka saman skýrslu og skora á Clinton að krefjast endurtalningar vegna gruns um að átt hafi verið við raf­ rænar kosningar í þessum þremur ríkjum. Tugir sérfræðinga í netöryggi, landvörnum og kosningum segjast hafa áhyggjur af því að erlendir tölvuþrjótar hafi brotist inn í kosn­ ingakerfin, og einkum beinist grunur þeirra að Rússlandi. Tölfræðingurinn Nate Silver, sem heldur úti kosningavefnum five­ thirtyeight.com, segir þó litlar líkur á að átt hafi verið við úrslitin. Það forskot sem Trump hefur á þeim svæðum, sem grunurinn beinist helst að, skýrist algerlega þegar kjósendahópurinn á þeim svæðum er skoðaður með tilliti til kynþáttar og menntunar. SIEMENS Uppþvottavélar SN 45M508SK (stál) SN 45M208SK (hvít) 13 manna. Fimm kerfi. Zeolith® tryggir mjög góða þurrkun. Fullt verð: 119.900 kr. Fullt verð: 129.900 kr. Jólaverð (hvít): Jólaverð (stál): 87.900 kr. 97.900 kr. Orkuflokkur SIEMENS Þvottavél WM 14N2S7DN 1400 sn./mín. Tekur mest 7 kg. Kolalaus mótor. Fullt verð: 99.900 kr. Jólaverð: 79.900 kr. Orkuflokkur 10 ára ábyrgð á iQdrive mótorn um. Tekur mest SIEMENS Þurrkari WT 45H207DN Tekur mest 7 kg. Orkuflokkur A++. Fullt verð: 119.900 kr. Jólaverð: 89.900 kr. Tekur mestOrkuflokkur Zeolith® þurrkun Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út. Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði. Sjá nánar á sminor.is. Cactus Hangandi ljós 65540-01 Fullt verð: 13.900 kr. Jólaverð: 9.500 kr. Vill ekkert við nýnasistana kannast Donald Trump segist afneita „hinu hægrinu“, hreyfingu hægri þjóðernissinna sem fagnað hafa kjöri hans. Hins vegar segir hann ekkert athugavert við að hafa gert Steve Bannon að helsta ráðgjafa sínum. Svo heldur hann áfram að kvarta undan umfjöllun fjölmiðla. Borgarstjóri New York býst til varnar Bill de Blasio, borgarstjóri í New York, segist ætla að fara í mál við alríkisstjórn Don­ alds Trump verði þess krafist að allir múslimar láti skrá sig sérstaklega, eins og Trump hefur boðað. „Við munum beita öllum þeim ráðum sem við höfum til að verja fólkið okkar,“ sagði de Blasio í ræðu, sem  hann flutti á mánudag í sal Cooper Union skólans í New York. Þar í sama sal flutti Abraham Lin­ coln fræga ræðu árið 1860 þar sem hann færði rök fyrir því að alríkið í Washington hafi vald til að skipta sér af þrælahaldi í einstökum ríkjum Bandaríkjanna. Í ræðu sinni kom Blasio ekki einungis múslimum til varnar, heldur einnig innflytjendum og öðrum íbúum sem telja sér ógnað vegna kosningaloforða Trumps. „Ef alríkisstjórnin vill að lögreglu­ þjónarnir okkar slíti í sundur innflytj­ endafjölskyldur, þá munum við neita að verða við því,“ sagði hann. Meðal annars muni hann tryggja að konur fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu ætli stjórn Trumps að hætta að fjármagna kynferðis­ og fjölskyldu­ fræðslu. „Ef gyðingar, eða múslimar eða fé­ lagar í LGBT­samfélaginu, eða hvaða samfélagshóp sem er, verða fyrir ár ásum eða eru hafðir að skotspæni, þá munum við finna árásármennina, handtaka þá og lögsækja,“ sagði de Blasio enn fremur. Fjöldi fólks fylgdist með þegar donald trump yfirgaf skrifstofur dagblaðsins the new York times að loknu viðtali á þriðju- daginn. nordiCphotos/aFp ✿ Endurtalning í þremur ríkjum gæti fellt Trump 2 4 . n ó v E m B E r 2 0 1 6 F i m m T U d a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 9 -A 4 C 8 1 B 6 9 -A 3 8 C 1 B 6 9 -A 2 5 0 1 B 6 9 -A 1 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.