Fréttablaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 30
Hér klæðist Bergur buxum sem hann
hannaði úr kápu af gamalli konu og
gömlum Hugo Boss frakka sem pabbi
hans átti. Peysan er keypt í Supreme í
London og skórnir eru Yeezy Boost 350
Pirate Black.
Úlpan er keypt í ,,vintage“-búð í París, rúllukragapeysan var keypt í Supreme-
búðinni í London og buxurnar koma úr JÖR.
Frá því Bergur Guðnason man
eftir sér hefur hann haft mikinn
áhuga á tísku og hönnun. Strax
sem lítill strákur hafði hann sterka
skoðun á því hvernig föt ættu að
líta út á fólki, hvað passaði með
hverju og hvað virkaði ekki. „Á
þessum árum var ég strax farinn
að velta fyrir mér klæðnaði fólks
í kringum mig og farinn að spá í
hvað mætti gera öðruvísi, breyta
eða laga.“
Þessar pælingar hans voru þó
ekki nóg að hans sögn, hann þurfti
að fá að tjá sig og koma þeim út
með einhverju móti. Því segir hann
að fatahönnunarbrautin í Listahá-
skóla Íslands hafi verið fullkominn
vettvangur fyrir hann en þar hefur
hann stundað nám undanfarin þrjú
ár. „Áður en ég hóf nám þar var ég
lærlingur hjá JÖR og vann portfol-
io-möppuna mína á þeim tíma. Ég
lærði mjög mikið á dvöl minni þar,
fékk að vera með í allri hönnuninni
og láta skoðun mína heyrast. Þessa
dagana er ég hins vegar að byrja á
hönnun útskriftarlínunnar sem ég
mun sýna næsta vor.“
Hvernig lýsir þú stílnum þínum?
Það er svolítið erfitt því hann
er alltaf að breytast. Ég hef alla
tíð haft mikinn áhuga á rapptón-
list og sæki mikinn innblástur
þangað. Annars finnst mér
skemmtilegt að prufa allt, ýta
mér út í eitthvað sem mér finnst
óþægilegt, því maður veit aldrei
hvað virkar og hvað ekki.
Hvernig fylgist þú með tískunni?
Netið er mjög þægileg leið til að
fylgjast með því nýjasta hverju
sinni. Annars finnst mér gaman
að skoða bækur eftir ólíka hönn-
uði og skoða mismunandi tímabil
í tískusögunni.
Áttu þér uppáhaldsverslanir? Ég
vinn í JÖR og því er hún eðli-
lega í miklu uppáhaldi. Við erum
einmitt að opna nýja verslun á
Skólavörðustíg á næstunni sem
verður mjög spennandi. Erlendis
eru það verslanir eins og Selfrid-
ges í London og Printemps í París
sem eru skemmtilegar. Svo fer ég
alltaf í hönnunarhúsin og ímynda
mér að ég sé með tíu millur í
vasanum og hugsa hvaða föt ég
myndi kaupa. Ég geri þetta raun-
verulega. Annars er alltaf gaman
að kíkja í Supreme og ég get eytt
miklum tíma í að róta í „vintage“
búðum erlendis. Að rekast á eitt-
hvað „vintage“ frá Margiela, Dior
eða Louis er svipuð tilfinning og
þegar maður finnur 1-2 svarta
óopnaða Doritos-poka inni í skáp.
Hverjir eru uppáhalds hönnuðir
þínir? Virgil Abloh er í uppáhaldi
hjá mér. Af öðrum má nefna
Gosha Rubchinskiy og Stéphane
Ashpool hjá Pigalle sem er geggj-
aður. Svo eru auðvitað Raf Sim-
ons og Rick Owens alltaf flottir.
Áttu þér uppáhaldsflík? Föt sem
ég hef hannað eru kannski uppá-
haldsflíkurnar mínar þótt ég
gangi ekki mikið í þeim. Þeir sem
þekkja mig vita að skórnir mínir
eru alltaf í miklu uppáhaldi.
Bestu og verstu kaup þín? Þegar
ég lít til baka er listinn yfir slæm
kaup mjög langur. Djöfull sem
maður átti mikið af ljótu dóti
þegar maður var yngri. Annars
keypti ég mér orginal svartan
bomber-jakka í Spútnik fyrir
nokkrum árum sem ég hef notað
alveg endalaust.
Notar þú fylgihluti? Ég er mikið
fyrir bakpoka og töskur auk þess
sem ég nota stundum derhúfur.
Ég hef hins vegar aldrei gengið
með úr, armbönd eða hálsmen
eins og sumir gera því mér finnst
það óþægilegt.
Fólk er kyNNiNgarBlað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðLaR | ÁBYRgðaRmaðuR: Svanur Valgeirsson
umSJónaRmenn efniS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
SÖLumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Hettupeysan er frá
Supreme í London,
buxurnar eru keyptar í
topshop og skórnir eru
Yeezy Boost 750 ,,grey/
gum“. mYndiR/eYÞóR
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
NÝ SENDING FRÁ
GERRY WEBER
jólalínan komin
Skoðið laxdal.is /London Calling
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Verðlækkun hjá okkur
sl. 12 mánuði er 15-20%
Starri freyr
Jónsson
starri@365.is
2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ T í s k A
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
9
-A
E
A
8
1
B
6
9
-A
D
6
C
1
B
6
9
-A
C
3
0
1
B
6
9
-A
A
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K