Fréttablaðið - 24.11.2016, Qupperneq 36
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
fjölbreyttar málstofur verða á sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í dag og á
morgun. mynd/anton brink
fimmtudagurinn,
24. nóvember
l Íslenskur sjávarútvegur og utan-
ríkismál
l Sala og dreifing á íslenskum fiski
á HORECA
l Sögur af þróun í sjávarútvegi á Ís-
landi
l Tæknibreytingar við fiskveiðar
og fiskleit
l Vottun og áhrif á sölu íslenskra
sjávarafurða
l Fullnýting í verðmætar afurðir
l Orkunotkun og orkusparnaður
við veiðar og siglingu
föstudagurinn, 25.
nóvember
l Laxeldi á Íslandi í alþjóðlegri
samkeppni – Staða – Framtíðar-
sýn - Stefna
l Þróun í olíuverði – ógnir og tæki-
færi í okkar viðskiptalöndum
l „Fiskifræði sjómannsins“ og
Hafró
l Aukin verðmætasköpun í upp-
sjávarfiski og grænu skrefin
l Staða og tækifæri á bolfiskmörk-
uðum
Málstofur á sJávarútvegs-
ráðstefnunni í Hörpu 2016
einar Þór lárusson heldur erindi um fullnýtingu þorsks í nýjar afurðir. Á málstofunni verða einnig fluttir sjö örfyrirlestrar um
afurðir sem orðið hafa til úr aukahráefnum. mynd/anton brink
Einar Þór Lárusson hefur í mörg
ár unnið að vöruþróun og nýsköp
un í matvælaiðnaði og hlaut meðal
annars nýsköpunarverðlaun Ís
lenska sjávarklasans í septem
ber síðastliðnum. Á málstofunni
fjallar Einar um nýtingu á auka
afurðum í sjávarútvegi en síð
astliðin 3 ár hefur Einar unnið
verkefni á vegum Haustaks á
Reykjanesi um slógnýtingu og
endurnýtingu á fiskisalti. Á vef
Íslenska sjávar klasans kemur
fram að Einar hefur komið að
fjölda verkefna fyrir saltfiskiðn
aðinn á Íslandi og kom að mótun
Fisktækniskólans og Codlands
í Grindavík. Þar segir einnig að
fjölmörg fyrirtæki og matarfrum
kvöðlar innan Sjávar klasans hafi
notið liðsinnis Einars við vöru
þróun.
„Þetta gengur út á að full
nýta þorskinn svo engu sé hent.
Við veiðum fiskinn, flökum hann
og tökum af honum hausinn. Úr
hausnum tökum við svo gelluna og
kinnarnar eða þurrkum hausinn
heilan eins og hann kemur fyrir
eða söltum. Allt það sem verður
eftir er hægt að nýta og búa eitt
hvað til úr,“ útskýrir Einar.
„Hér áður fór roðið í bræðslu
og hryggurinn líka. Hins vegar
er hægt að gera afurðir úr þessu
öllu. Úr roðinu er til dæmis búið
til kollagen og úr hryggsúlunni er
hægt að búa til kalsíumkollagen
blöndu. Ég vann verkefni fyrir Þor
björn og Vísi og Haustak þar sem
við tókum slógið fyrir líka, brut
um það niður og bjuggum til úr því
olíu og mjöl svo ekkert varð eftir af
fiskinum nema sandur og önglar.“
Einar segir mikla möguleika
leynast í sjávarútvegi og að nýta
megi afurðir enn meira en nú er
gert. Þá verði ör þróun á næstu
árum í vörum tengdum heilbrigðis
geiranum sem unnar eru úr fiskaf
urðum, jafnvel meiri en í matvæla
iðnaði.
„Það er hægt að brjóta hráefn
ið enn meira niður en við höfum
þegar gert og búa til dæmis til
lyf sem nýtast manninum. Stærri
framleiðendur hafa tæki og tól
og peninga til að sinna þessu en
smærri framleiðendur geta líka
gert mikið. Allt er dýrt í starti en
það skilar sér. Við eigum eftir að
sjá það á komandi árum að fá má
verðmeiri afurð út úr þeim hlutum
fisksins sem við hugsum illa um í
dag og þá helst einhver lækninga
lyf. Einhverntíma verður það svo
að flakið sjálft verður í raun orðið
að aukaafurð,“ segir Einar.
Á málstofunni fara einnig fram
sjö örfyrirlestrar sem fjalla um
afurðir sem unnar hafa verið úr
aukahráefnum.
IceProtein®, hágæða þorskprót-
ín úr afskurði, Hólmfríður Sveins
dóttir
Lækningavörur úr hliðarafurðum
þorsks, Bjarki Stefánsson
Markaðssetning og branding auka-
afurða (framúrstefnuhugmynd),
Hrönn M. Magnúsdóttir
Kítósan – Fjölhæft trefjaefni úr
rækjuskel, Hélène Liette Lauzon
Fullvinnsla á Reykjanesi, Davíð
Tómas Davíðsson
Auðgun á tilbúnum fiskréttum og
grænmetisréttum með Omega-3,
Grímur Þór Gíslason
Margildi – Ný uppspretta Omega-
3 (framúrstefnuhugmynd), Snorri
Hreggviðsson
fiskflakið sjálft gæti
orðið að aukaafurð
Málstofa verður haldin á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu sem ber yfirskriftina
fullnýting í verðmætar afurðir. Meðal fyrirlesara er einar Þór lárusson en hann
fjallar um meðhöndlun á aukahráefni. Sjö örfyrirlestrar fara fram um aukaafurðir.
Er fyrirtækið þitt
Ready Business?
Til að skara fram úr í viðskiptaumhverfi nútímans þurfa fyrirtæki að vera lipur og vel tengd.
Til að fyrirtæki geti talist Ready Business þurfa þau að vera sveigjanleg og notast við alhliða
samskiptalausnir til að ná sem bestum árangri við síbreytilegar aðstæður markaðarins.
Slík fyrirtæki eru tilbúin að breyta áskorunum í tækifæri, aðlaga sig að þörfum viðskiptavina
sinna og hámarka afköst starfsmanna.
Kynntu þér málið á readybusiness.vodafone.is eða hringdu í 599-9500
Vodafone
Við tengjum þig
SUNNUDAGA KL. 20:35
SUNNUDAGA KL. 20:35
SjÁVarÚtVegSrÁðStefnan 2016 kynningarblað
24. nóvember 20162
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
6
9
-7
3
6
8
1
B
6
9
-7
2
2
C
1
B
6
9
-7
0
F
0
1
B
6
9
-6
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K