Fréttablaðið - 24.11.2016, Side 46
Í dag
15.55 Zenit - Maccabi Sport 3
17.55 Sparta - Southampton Sport 2
19.05 KR - Njarðvík Sport
20.00 Genk - Rapid Vín Sport 3
20.00 Man. Utd - Feyenoord Sport 2
Domino’s-deild karla
19.15 Skallagrímur - Stjarnan
19.15 Grindavík - Snæfell
19.15 KR - Njarðvík
Olís-deild karla
18.30 ÍBV - FH
19.15 Selfoss - Fram
Meistaradeild Evrópu, riðlakeppni
A-riðill
Arsenal - PSG 2-2
0-1 Edinson Cavani (18.), 1-1 Olivier Giroud,
víti (45+1.), 2-1 Marco Veratti, sjálfsmark
(60.), 2-2 Lucas Moura (77.).
Ludogorets - Basel 0-0
Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Basel.
Staðan: Arsenal 11, PSG 11, Basel 2, Ludogo-
rets 2.
B-riðill
Besiktas - Benfica 3-3
0-1 Goncalo Guedes (10.), 0-2 Nélson
Semedo (25.), 0-3 Ljubomir Fejsa (31.), 1-3
Cenk Tosun (58.), 2-3 Ricardo Quaresma
(83.), 3-3 Vincent Aboubakar (89.).
Napoli - Dynamo Kiev 0-0
Staðan: Napoli 8, Benfica 8, Besiktas 7,
Dynamo 2.
C-riðill
Mönchengl. - Man. City 1-1
1-0 Raffael (23.), 1-1 David Silva (45+1.).
Celtic - Barcelona 0-2
0-1 Lionel Messi (24.), 0-2 Messi, víti (55.).
Staðan: Barcelona 12, Man. City 8, Mönc-
hengladbach 5, Celtic 2.
D-riðill
Rostov - FC Bayern 3-2
0-1 Douglas Costa (35.), 1-1 Sardar Azmoun
(44.), 2-1 Dmitri Poloz, víti (49.), 2-2 Juan
Bernat (52.), 3-2 Christian Noboa (66.).
Atlético - PSV 2-0
1-0 Kevin Gameiro (55.), 2-0 Antoine Griez-
mann (66.).
Staðan: Atlético 15, Bayern 9, Rostov 4,
PSV 1.
Nýjast
Undankeppni EM 2017
Ísland - Portúgal 65-54
Stig Íslands: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
16/8 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 12,
Ingibjörg Jakobsdóttir 10, Ingunn Embla
Kristínardóttir 8, Hallveig Jónsdóttir 7,
Sandra Lind Þrastardóttir 5/7 fráköst,
Berglind Gunnarsdóttir 5, Emelía Ósk Gunn-
arsdóttir 2.
Olís-deild karla
Haukar - Valur 34-29
Mörk Hauka: Guðmundur Árni Ólafsson
11/3, Daníel Þór Ingason 8, Adam Haukur
Baumruk 5, Janus Daði Smárason 4, Heimir
Óli Heimisson 3, Elías Már Halldórsson 2,
Þórður Rafn Guðmundsson 1.
Varin skot: Giedrius Morkunas 12, Grétar
Ari Guðjónsson 1.
Mörk Vals: Josip Juric 9/4, Anton Rúnarsson
6, Heiðar Þór Aðalsteinsson 4, Sveinn Aron
Sveinsson 3, Sturla Magnússon 2, Atli Már
Báruson 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Ýmir Örn
Gíslason 1.
Varin skot: Sigurður Ingiberg Ólafsson 14.
2 4 . n ó v E M B E r 2 0 1 6 F I M M T U D A G U r30 s p O r T ∙ F r É T T A B L A ð I ð
Góður endir á undankeppninni
Flottum sigri fagnað Ísland bar sigurorð af Portúgal, 65-54, í síðasta leik sínum í undankeppni EM 2017 í körfubolta. Íslenska liðið endaði því í 3.
sæti riðilsins en það vann tvo leiki og tapaði fjórum. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var atkvæðamest í íslenska liðinu í gær með 16 stig og átta fráköst.
Karla- og kvennalið Íslands í körfubolta og karlalandsliðið í handbolta eru ósigruð í Laugardalshöllinni á árinu 2016. FRéttABLAðið/eRNiR
FóTBOLTI Það bendir margt til þess
að formannsslagur verði á ársþingi
KSÍ í febrúar næstkomandi. Guðni
Bergsson, fyrrum landsliðsfyrirliði,
íhugar nú að bjóða sig fram gegn
sitjandi formanni, Geir Þorsteins-
syni.
„Þessi tíðindi komu mér á óvart,“
segir Geir er hann frétti af því að
Guðni væri að íhuga framboð. For-
maðurinn telur sig þó vera rétta
manninn í starfið. „Það eru fram
undan mörg stór verkefni hjá Knatt-
spyrnusambandinu þar sem ég tel
að reynsla mín og þekking komi til
með að nýtast sambandinu vel á
komandi árum.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
umræða um framboð Guðna ber
á góma. Hann hefur þó hingað
til ekki viljað taka slaginn og er,
eins og áður segir, ekki búinn að
taka endan lega ákvörðun. Guðni
vildi ekki gefa íþróttadeild viðtal
á þessum tímapunkti og staðfesti
eingöngu að hann væri að íhuga
framboð.
Mörg stór verkefni
Þó svo Guðni ákveði að bjóða sig
fram þá mun það ekki verða til þess
að Geir stígi til hliðar og hleypi
Guðna að borðinu baráttulaust.
„Ég hafði ákveðið að bjóða mig
aftur aftur fram enda er ég á kafi í
stórum verkefnum eins og mál-
efnum Laugardalsvallar. Ég hef
hug á að halda áfram með þau og
fá niðurstöðu í þau mál,“ segir for-
maðurinn. En hafði hann heyrt af
því síðustu misseri að Guðni væri
að íhuga framboð?
„Nei. Það er alltaf einhver orð-
rómur samt um slíkt á lofti enda
gengur Knattspyrnusambandinu
frábærlega og það hefur gengið frá-
bærlega síðustu ár. Ég er því ekkert
hissa á því að menn líti til þess hýru
auga.“
Stoltur af mínu starfi
Nú er að ljúka einstöku ári í íslenskri
knattspyrnusögu þar sem A-lands-
lið karla tók í fyrsta skipti þátt í
lokakeppni stórmóts og A-landslið
kvenna tryggði sig inn á lokamót EM
í þriðja sinn.
„Ég er gríðarlega stoltur af okkar,
og mínu, starfi og er reiðubúinn til
að leiða Knattspyrnusambandið
áfram,“ segir Geir en hann fékk við-
brögð við væntanlegu mótfram-
boði Guðna strax á mánudag. „Þetta
vakti athygli og umræðu innan okkar
hreyfingar. Ég held að það skipti
miklu máli að halda áfram því góða
starfi sem við höfum unnið. Að sú
eining sem hefur ríkt haldi áfram
og við getum haldið áfram að ná frá-
bærum árangri.“
Þó svo vel hafi gengið hjá KSÍ þá
hefur Geir oft verið gagnrýndur.
Til að mynda á þessu ári fyrir að
þiggja tveggja mánaða bónuslauna-
greiðslur fyrir vinnu sína á EM á
meðan aðrir starfsmenn KSÍ fengu
einn mánuð greiddan í bónus. For-
maðurinn var einnig gagnrýndur
fyrir að ná ekki samningum við EA
Sports svo Ísland yrði í FIFA-leiknum
vinsæla.
Á þeim tíma fór af stað umræða
um hvort einhver ætlaði að bjóða
sig fram gegn Geir á ársþinginu.
Nafn Guðna kom fljótt upp í þeirri
umræðu innan hreyfingarinnar og
nú hillir undir að Guðni taki ákvörð-
un.
Klár í formannsslag
Þó svo það hafi komið sitjandi for-
manni á óvart að hugsanlega væri
von á mótframboði þá er hann alls
ekkert vonsvikinn yfir því að vera
hugsanlega á leiðinni í formannsslag.
„Það get ég aldrei verið. Mér finnst
eðlilegt að menn horfi til þessa starfs.
Þetta er starf sem örugglega margir
horfa til og hefðu áhuga á að sinna.
Ég er alltaf tilbúinn í kosninga-
baráttu,“ segir Geir en hann hefur
verið formaður KSÍ frá árinu 2007.
Tíu ár þar á undan var hann fram-
kvæmdastjóri sambandsins þann-
ig að hann er að ná 20 árum í starfi
fyrir Knattspyrnusamband Íslands.
henry@frettabladid.is
Þessi tíðindi komu mér á óvart
Gamli landsliðsfyrirliðinn Guðni Bergsson íhugar nú að fara í framboð til formanns KSÍ. Núverandi
formaður, Geir Þorsteinsson, er þó hvergi banginn og er klár í slag við Guðna fari hann fram.
Formannsslagur? Guðni Bergsson íhugar að fara gegn Geir. MyNDiR/eyþóR & ANtON
SAMSett MyND/ViLHeLM
Ég held að það
skipti miklu máli að
halda áfram því góða starfi
sem við höfum unnið. Að sú
eining sem hefur ríkt haldi
áfram.
Geir Þorsteinsson
formaður KSÍ
sport
2
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
6
9
-A
E
A
8
1
B
6
9
-A
D
6
C
1
B
6
9
-A
C
3
0
1
B
6
9
-A
A
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K