Fréttablaðið - 24.11.2016, Síða 57

Fréttablaðið - 24.11.2016, Síða 57
Björn Ingi Hilmarsson og Oddur Júlíus- sson hafa verið á ferð um landið með Lofthrædda örninn Örvar sem er nú lentur í Þjóðleikhúsinu. Síríus Konsum fléttast við íslenskt þjóðlíf á einstæðan hátt. Um áratugaskeið hefur þetta ljúffenga gæðasúkkulaði gegnt ótrúlegustu hlutverkum, bæði á hátíðarstundum og í daglegu lífi; í bakstrinum þegar mikið liggur við, drukkið heitt með rjóma á köldum degi, verið nesti á ferðalögum um hálendið og gómsætur moli með kaffinu, svo eitthvað sé nefnt. Síríus Konsum kakó er framleitt úr besta fáanlega hráefni. Sættu þig ekki við málamiðlanir þegar kakó er annars vegar. VELDU SÍRÍUS KONSUM KAKÓ www.noi.is LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATORS - félag laganema við Háskóla Ísland stubb í þeirri veiku von að sigrast á lofthræðslunni. Trúðsleikur af þessu tagi er ekkert grín í framkvæmd en Oddur heillaði áhorfendur upp úr skónum og skemmti af miklum krafti. Farandsýningar eru oft í eðli sínu rammaðar inn með einfaldri umgjörð og Björn Ingi er ekki að finna upp hjólið í þeim efnum. Leiktjöld eru sjaldgæf í nútímaleikhúsi en þau passa þessari sýningu og mynda fal- lega tengingu við eldri leikhúshefðir. Nútímatæknin er stundum hreinn óþarfi. Bæði ljósahönnun og bún- ingahönnun voru með lágstemmd- ara móti en þó snotur. En fallegustu augnablikin skapar Oddur, undir handleiðslu Björns Inga, þegar hann vippar sér úr einum karakter í annan, stundum eru allir þrír vinirnir að tala saman. Þannig birtast mismunandi stærðarvíddir áhorfendum á ljós- lifandi hátt í gegnum flotta og skýra líkamsbeitingu. Björn Ingi treystir kannski um of á hæfileika Odds til að halda athygli áhorfenda og skemmtilegra hefði verið að sjá dæmi um enn fleiri leik- hústöfra en sýningin er samt sem áður töfrandi í einfaldleika sínum. Boðskapurinn er skýr: Þú verður að reyna, taka áhættu og síðast en ekki síst hafa trú á sjálfum þér. Þetta þurfa fleiri en börnin að heyra á óvissu- tímum og í íslenska skammdeginu. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða: Oddur Júlíusson fer á flug í blíðri og bráðskemmtilegri sýningu. Nýstárleg skáldsaga á traustum grunni festing á hversu föstum fótum Einar stendur í íslenskum sagnaheimi og skáldskaparlist. Augljósustu dæmin eru vísanir Storms í Pass- íusálma Hallgríms Péturssonar, en hann „nennir nú ekki að fara út í þá passíusálma“ þegar illa hentar og siðferðið er brostið. En sálmarnir eru jú undirstaða íslensks siðferðis í gegnum aldirnar. Í hina röndina heillast Stormur, fyrir tilstilli Ein- ars, af Agli Skallagrímssyni sem er líkast til nafntogaðastur og virtastur íslenskra siðblindingja og skálda allt frá landnámsöld. Þannig lætur Einar bókmenntirnar ramma per- sónugerð og siðferði hins mælska og bráðskemmtilega en húðlata og sjálfhverfa Storms án minnstu fyrir- hafnar. Þessi nálgun er líka einkar viðeig- andi þar sem Einar er hér alls ekki að endurtaka leikinn frá því í Stormi frá 2003, heldur mun fremur að virkja persónur verksins til þess að eiga í ákveðinni samræðu um sagna- listina. Um hið rétta og sanna, sem verður alltaf með einum eða öðrum hætti þess sem ritar, og um líf og eðli frásagna. Hér er því líka á ferðinni skemmtileg skoðun á eðli skáld- skaparlistarinnar og þess sérstaka sambands sem myndast á milli höf- undar og persóna hans. Af þessum sökum eru Passíu- sálmar Einars kannski ekki alveg jafn frásagnardrifnir og kraftmikil bók og margt af hans bestu verkum. En það þarf þó ekki nokkur lesandi að óttast að láta sér leiðast í sam- neyti við sagnamanninn Einar og persónurnar hans. Magnús Guðmundsson Niðurstaða: Bráðskemmtileg endurkoma Storms í nýstárlegri skáldsögu sem stendur engu að síður föstum fótum í íslenskri sagnahefð.Einar Kárason kemur talsvert við sögu sjálfur í sinni nýjustu bók. FréttaBLaðIð/GVa M e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 41F i M M t u D a g u r 2 4 . N ó v e M B e r 2 0 1 6 2 4 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 9 -7 D 4 8 1 B 6 9 -7 C 0 C 1 B 6 9 -7 A D 0 1 B 6 9 -7 9 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.