Fréttablaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 58
Hreyfingin Black Lives Matter (BLM) er hreyfing pólitískra aðgerðasinna úr samfélagi Banda-r í k j a m a n n a a f
afrískum uppruna sem berjast gegn
ofbeldi og kerfisbundnum rasisma
gegn svörtum þar í landi. BLM er
ekki skipulögð hreyfing heldur frekar
regnhlífarhugtak yfir mótmælendur
sem nota kassamerkið #BlackLives-
Matter og hafa verið að mótmæla
ofbeldi á svörtum allt síðan George
Zimmerman var sýknaður af morð-
ákæru eftir að hafa orðið Treyvon
Martin að bana árið 2013. BLM er
því meira eins og alda sem rennur í
gegnum samfélagið í Bandaríkjunum
og þrátt fyrir mikla og harða gagnrýni
virðist aðeins verða meira áberandi
og sterkari með hverju árinu – það
hefur hjálpað til að margar stjörnur
úr heimi tónlistar, kvikmynda og
íþrótta hafa annaðhvort lagt hreyf-
ingunni lið í gegnum opinberan
stuðning eða gert lítið úr henni.
Tónlistarheimurinn tjáir sig
Áhrif Black Lives Matter hreyfingar-
innar hafa kannski hvergi verið jafn
áberandi og í tónlistarheiminum en
tónlistarmenn hafa aldrei verið sér-
staklega feimnir við að tjá sig um
stjórnmál.
Beyoncé hefur verið mjög dugleg
að halda fram málstað BLM og að
styðja hreyfinguna – hún og maður
hennar Jay-Z hafa gefið hreyfing-
unni talsvert fé auk þess að hampa
málstað hennar í gegnum sköpun
sína. Bey gerði lagið Freedom með
rapparanum Kendrick Lamar en í
myndbandinu við það koma mæður
þeirra Trayvons Martins, Erics Garner
og Michaels Brown fram. Í mynd-
bandinu við Formation voru einnig
táknrænar vísanir í málefnin sem
hreyfingin Black Lives Matter hefur
helst látið sig varða.
Kendrick Lamar hefur sjálfur verið
duglegur við að tjá sig um réttinda-
mál svartra og gerir það
talsvert á nýjustu
plötu sinni, en
hann hefur þó ekki stutt hreyfing-
una opinberlega. Þó hefur lag hans
Alright verið notað sem hálfgert
þemalag Black Lives Matter og oftar
en ekki spilað þar sem fólk kemur
saman í nafni BLM.
Listinn yfir tónlistarmenn
sem hafa gert lög hreyf-
ingunni til stuðnings
er nokkuð langur. Á
honum má finna
n ö f n e i n s o g
Macklemore, sem
gerði lagið White
privilege II þar
sem hann veltir
fyrir sér stöðu sinni
sem hvítum manni
sem styður hreyf-
inguna, Laryn Hill,
Chris Brow (sem þó
hefur einnig talað gegn
hreyfingunni við önnur
tækifæri), Prince og rapparann
The Game sem gerði 10 mínútna
langt lag þar sem hann fær marga
rappara og söngvara með sér til að
ljá baráttunni lið.
Pólitík í íþróttum
Colin Kaepernick, leikmaður amer-
íska fótboltaliðsins San Francisco
49ers, hefur mikið verið í fréttunum
en hann neitaði að leggja hönd á
hjartastað eins og tíðkast að gera
þegar bandaríski þjóðsöngurinn er
spilaður fyrir leik.
Þetta gerðist fyrst í upphitunarleik
áður en keppnistímabil deildarinnar
hófst og hann endurtók svo gjörn-
inginn í opnunarleiknum en um
20 milljónir horfðu á leikinn. Colin
kraup á kné á meðan þjóðsöngurinn
ómaði – í þetta sinn gerði liðsfélagi
hans slíkt hið sama og tveir aðrir liðs-
félagar auk tveggja mótherja réttu
upp krepptan hnefann í stíl Black
Panther-samtakanna.
Pólitík
og poppkúltúr
Upphaflega var Black Lives Matter kassamerki (e. hashtag) en hefur
breyst í alþjóðlega hreyfingu. Margir frægir einstaklingar af öllum
kynþáttum hafa tekið þátt og hefur hún verið áberandi á stærstu
sviðum heimsins eins og Super Bowl og Grammy-verðlaununum.
Beyoncé var harðlega gagnrýnd fyrir hálfleikssýningu sína á Super Bowl hátíðinni í
ár. Dansarar hennar voru meðal annars klæddir eins og Black Panther meðlimir.
Colin Kaepernick og Eric Reid, liðsfélagi hans, mótmæla á meðan þjóðsöngurinn er
spilaður.
Kendrick Lamar var með augljósar vísanir í réttindabaráttu svartra í atriði sínu á
Grammy-verðlaunahátíðinni fyrr á árinu.
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Þessi gjörningur hans er stuðn-
ingur við málstað Black Lives Matter
hreyfingarinnar en þegar hann var
spurður út í aðgerðir sínar taldi hann
upp nöfn svartra sem hafa látist af
völdum lögreglumanna síðustu árin,
„hvenær ætlum við að standa upp og
fordæma þetta? Þið [lögreglan] eigið
að vernda okkur, ekki myrða okkur.“
Viðbrögðin hafa verið afar hörð
og virðist flestum sem fordæma
aðgerðir Colins finnast hann sýna
bandaríska hernum vanvirðingu og
sumir hafa krafist þess að hann verði
líflátinn, að minnsta kosti sektaður
eða rekinn. Aðgerðir Colins Kaep-
ernick virðast marka ákveðið trend
í heimi amerískra íþrótta þar sem
leikmenn liða í íþróttum þar í landi
láta sig pólitík varða í auknum mæli.
Þættir og kvikmyndir sækja efni-
við í hreyfinguna
Michael B. Jordan leikari var skot-
spónn gagnrýni á internetinu eftir
að hann landaði hlutverki sem The
Human Torch í myndinni Fantastic
Four sem kom út á síðasta ári. Aðdá-
endur myndasögunnar vildu endilega
hafa hvítan mann í hlutverkinu enda
var persónan þannig í blöðunum.
Miklar um-
ræður spunnust
um almennar
hugmyndir
samfélagsins um
kynþætti þegar
Mich ael B. Jor-
dan var fenginn
til að leika The
Human Torch í
Fantastic Four
myndinni.
Frægir gagnrýnendur
Það eru ekki allir á eitt sáttir um
Black Lives Matter. Margir hafa
haldið því fram að slagorðið sé
rasískt í eðli sínu vegna þess að það
útiloki aðra kynþætti og hafa þeir
einstaklingar notað kassamerkið
#AllLivesMatter. Ekki hafa þó allir
sem hafa notað það kassamerki
verið að gagnrýna hreyfinguna
beint, en þó misskilið það sem bak
við BLM býr – enda snýst það ekki
um að útiloka kynþætti heldur er
fókus hreyfingarinnar einungis á
Bandaríkjamenn af afrískum upp-
runa.
Kate Upton
Fyrirsætan hefur tjáð sig um Colin
Kaepernick á Twitter en hún vill
meina að hann vanvirði Bandaríkin
með mótmælum sínum.
Steve Clevenger
Hafnaboltaleikarinn vill að stuðn-
ingsfólk hreyfingarinnar verði
handtekið vegna þess að það sé
glæpamenn (hann notaði orðin
„thugs“ og „animals“ – sem hafa
mjög sterkar rasískar tengingar).
Piers Morgan
Fjölmiðlamógúllinn óvinsæli hefur
verið ansi duglegur við að hrópa á
fólk sem notar BLM-kassamerkið á
samfélagsmiðlunum.
Donald Trump
Forsetafram-
bjóðandinn um-
deildi hefur að
sjálfsögðu tjáð
sig um málið og
verið gagnrýn-
inn á hreyfinguna.
Jennifer Lopez
Notaði All Lives Matter kassamerk-
ið á Twitter en eyddi svo færslunni
eftir hörð mótmæli.
Leikarinn skrifaði grein þar sem hann
sagðist vera að kveikja í hugmyndum
okkar um kynþátt og benti fólki á að
Stan Lee, maðurinn bak við Marvel,
hefði lagt blessun sína yfir valið á
honum í hlutverkið. Jordan hefur
gefið það út að hann styðji BLM-
hreyfinguna heilshugar, þrátt fyrir að
hafa verið sakaður um annað.
Annars hafa ýmsir leikarar sagst
styðja hreyfinguna. Samuel L.
Jackson bjó til svar við Ice Bucket-
áskoruninni sem hann kallaði I can‘t
breathe áskorunina, en það var til-
vísun í drápið á Eric Garner. Bellamy
Young, sem leikur Mellie í Scandal,
Bette Midler og Cara Delevingne
hafa opinberað stuðning sinn við
hreyfinguna.
Fjórða þáttaröðin í Orange is the
new black sækir sér þema í hreyfing-
una Black Lives Matter en í þáttaröð-
inni er ákveðin svört persóna drepin
af hvítum fangaverði, dauðdaginn
minnir á þegar lögreglumenn urðu
Eric Garner að bana, og í kjölfarið
brjótast út óeirðir í fangelsinu. Scan-
dal hefur sótt sér þemu í þáttinn og
meira að segja Law and Order: SVU
notaði hreyfinguna sem grunn fyrir
söguþráð í einum þættinum.
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r46 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð
Lífið
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
A
-8
A
7
4
1
A
B
A
-8
9
3
8
1
A
B
A
-8
7
F
C
1
A
B
A
-8
6
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K