Fréttablaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 2
Veður
Gengur í norðankalda í dag, en hvass-
viðri með austurströndinni. Víða rigning
fyrir norðan og austan og slydda inn til
landsins, en bjart suðvestan til. Heldur
kólnandi veður. sjá síðu 36
Gleðisprautur hjá karlakórnum Fóstbræðrum
Karlakórinn Fóstbræður tekur enga áhættu þegar inflúensan er annars vegar eins og sást á æfingu í gær. Kórinn undirbýr nú af fullum krafti 100 ára
afmælistónleika sína 18. nóvember næstkomandi. Þegar fréttist að inflúensan yrði fyrr á ferð en venjulega tóku læknar í hópi kórfélaga til sinna
ráða og buðu upp á flensusprautu á æfingu. Þátttaka var góð enda ætlar enginn að liggja í bælinu á stórafmælinu sem nálgast. Fréttablaðið/Eyþór
ALICANTE
Netverð á mann frá kr. 9.900 aðra leið m/sköttum og
tösku.Flugsæti
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.Frá kr.
9.900
Aðra leið m/sköttum
og tösku
samfélag Af þeim 295 vagnstjórum
sem keyra hjá Strætó eru 40 prósent
eða 114 útlendingar. Sigríður Harð-
ardóttir, starfsmannastjóri fyrirtæk-
isins, segir þessa starfsmenn koma
víðsvegar að úr heiminum og hafa
verið á Íslandi misjafnlega lengi.
Sumir þeirra eru jafnvel komnir
með íslenskan ríkisborgararétt.
Einn þessara starfsmanna er Irina
Trusevica frá Riga í Lettlandi. Hún
keyrir leið 1, eða frá Hlemmi og
suður í Hafnarfjörð. Irina hefur búið
á Íslandi í átta ár en keyrt strætó í
þrjú ár. Hún var að læra íslensku
áður en hún hóf störf sem vagn-
stjóri.
Irina segir að fólkið í strætó taki
henni mjög vel. „Það brosir og talar
svolítið við mig,“ segir hún. Irina
segist þó stöku sinnum hitta fólk
sem sé dónalegt, en það gerist ekki
oft. Hún segir starfið skemmtilegt.
Aðspurð um hvað hún kunni best
við varðandi starfið sitt stendur ekki
á svörum. „Það er að keyra og starfs-
fólkið hjá strætó sem er mjög gott,“
segir hún.
Irina býr í Mosfellsbæ og kann
því vel. „Það er mjög gott, svona lítil
sveit,“ segir Irina. Hún býr ásamt
eiginmanni sínum, sem er bílstjóri
og leiðsögumaður hjá Gray Line, og
eiga þau tvo syni, annan 23 ára og
hinn 29 ára. Þau hafa hugsað sér að
búa hér á Íslandi til lengri tíma.
Sigríður segir að íslensk fyrirtæki
og stofnanir þurfi að huga vel að því
hvernig hægt er að aðlaga erlenda
starfsmenn íslenskum vinnustað
og samfélagi. „Það þarf að gera það.
Við hin þurfum að hugsa hvort það
sé eitthvað hjá okkur sem við getum
breytt til þess að þau falli betur inn.
Við megum ekki alltaf vera föst í
40 prósent vagnstjóra
Strætó eru útlendingar
Fjórir af hverjum tíu vagnstjórum Strætó eru útlendingar. Hafa unnið mislengi.
Einn vagnstjórinn segir farþega almennt taka sér vel. Mannauðsstjórinn segir
mikilvægt að vel sé hugað að því hvernig erlent starfsfólk aðlagast í starfi sínu.
irina hefur keyrt strætó í rúm þrjú ár og kann því vel. Hún segir farþega almennt
kurteisa. Fréttablaðið/Ernir
sama hjólfarinu og halda að það
þurfi alltaf allir að vera eins og við.“
Sigríður segir jafnframt að fólk
þurfi að fá markvissa íslenskuþjálf-
un og kynna þurfi starfið vel fyrir
fólki, einnig réttindi og skyldur og
hvað felst í því að vera þátttakandi í
íslensku samfélagi. Það þurfi að fara
í gegnum ákvæði kjarasamninga,
útskýra grundvallarþætti á launa-
seðli og ýmsar óskráðar reglur á
íslenskum vinnumarkaði sem þurfi
að fara í gegn um. Einnig þurfi að
passa upp á að erlendir starfsmenn
geti tekið þátt í félagslífi innan fyrir-
tækja.
jonhakon@frettabladid.is
Bandaríkin Báðar deildir banda-
ríska þingsins höfnuðu í gær neitun
Obama um að skrifa undir lög sem
myndu gera fjölskyldum fórnarlamba
hryðjuverkaárásanna, sem gerðar
voru þann 11. september 2011, kleift
að kæra stjórnvöld í Sádi-Arabíu.
Þetta er í fyrsta skipti á tæplega
átta ára valdatíð Obama sem neit-
un hans er hafnað. Yfirþyrmandi
stuðningur var við höfnun neitun-
arinnar í báðum deildum. Alls kusu
97 öldungadeildarþingmenn gegn
neituninni og einn með henni, en 67
þarf til að hafna neitun. Þá kusu 338
í fulltrúadeildinni gegn neituninni
en 74 með.
Fimmtán af nítján hryðjuverka-
mönnum sem áttu þátt í árásunum
voru Sádi-Arabar en ríkið hefur
ítrekað neitað ábyrgð í málinu.
Josh Earnest, talsmaður forseta-
embættisins, sagði í gær að þetta
væri vandræðalegasta stund Banda-
ríkjanna í áratugi. – þea
Hafna neitun
Obama
saga Kvikmyndagerðarmaðurinn
Valdimar Leifsson og Gísli Pálsson
prófessor í mannfræði hyggjast
vinna heimildarmynd um baráttuna
við hraunrennsli og gjóskufall í eld-
gosinu á Heimaey árið 1973.
„Í myndinni verður eldgosið sett
í samhengi við Surtseyjargosið og
aðra þróun í eldstöðvakerfi Vest-
mannaeyja, og það rakið stuttlega
en höfuðáhersla lögð á að segja til-
drög og sögu hraunkælingarinnar,“
segir í kynningarbréfi Gísla og
Valdimars sem meðal annars var
sent bæjarstjórn Vestmannaeyja
með ósk um að verkefninu yrði lagt
lið.
Heimildarmyndina á að heita
Heimaey 1973: Einvígi við jarðeld-
inn. Stefnt sé að því að myndin verði
tilbúin fyrir Goslokahátíðina 2018
þegar 45 ár verði liðin frá gosinu.
Ræða á við og segja frá mönnum
sem komu við sögu „heimavarnar-
liðsins“ og fjalla um hugmyndafræði
hraunkælingarinnar. Sumt efni
myndarinnar hafi ekki birst áður.
„Árangur kælingarinnar verður
metinn og sagt að lokum frá hreins-
un gosminja í bænum.“ Fram kemur
að samtímis kvikmyndagerðinni
vinni Gísli að bók um eldgosið
og áhrif þess á samfélagið, hann
sjálfan og samband manns og nátt-
úru. „Tilbúin myndin verður gefin til
Eyja að lokinni sjónvarpssýningu og
hún sýnd á Goslokahátíðinni,“ segja
Gísli og Valdimar í bréfinu sem enn
er til meðferðar hjá bæjaryfirvöld-
um í Eyjum. - gar
Mynd um
kælinguna
Sjó var dælt á hraunið sem ógnaði
byggðinni og innsiglingunni í Vest-
mannaeyjahöfn. Fréttablaðið/GVa
Það er að keyra og
starfsfólkið hjá
strætó sem er mjög gott.
Irina Trusevica, strætóbílstjóri
114
útlendingar keyra strætó.
Bílstjórarnir eru i heild 295.
2 9 . s e p t e m B e r 2 0 1 6 f i m m t u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
A
-5
4
2
4
1
A
B
A
-5
2
E
8
1
A
B
A
-5
1
A
C
1
A
B
A
-5
0
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K