Fréttablaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 35
Anthony Vaccarello, nýjum hönn-
uði Saint Laurent, þótti takast vel
upp á sinni fyrstu tískusýningu
fyrir merkið á tískuvikunni í París
í vikunni þar sem sýnd voru föt
fyrir sumarið 2017. Þessi belgísk-
ítalski hönnuður þurfti að sanna
sig enda kemur hann í kjölfar
fjögurra ára velgengni Hedi Slim-
ane sem þótti koma hinu klassíska
tískumerki aftur á kortið.
Vaccarello tók þann pólinn í
hæðina að líta til baka á tískusýn-
ingunni á þriðjudaginn. Þannig tók
á móti gestum stórt neonskilti með
lógói Yves Saint Laurent sem var
upphaflega hannað snemma á sjö-
unda áratugnum.
Öll línan einkenndist af hinu
goðsagnakennda lógói en það sást
á skóm, eyrnalokkum og sokka-
buxum fyrirsætanna. Hönnunin
byggði einnig á fötum eftir Yves
Saint Laurent sjálfan frá níunda
áratugnum og þótti kynþokk-
inn svífa yfir vötnum. Svarti lit-
urinn var áberandi svo og leður.
Vaccarello sagði eftir sýninguna
að hann hefði fengið innblástur af
„hugmyndinni um Saint Laurent“.
Kynþokki frá
Saint Laurent
„Fyrirsætubransinn er líklega sá eini
í heiminum þar sem karlar fá minna
borgað en konur,“ segir Elizabeth
Rose, umboðsmaður karlfyrirsæta
hjá Premier models, í viðtali við BBC
Newsbeat. Premier models er þekkt
fyrir að hafa komið ofurfyrirsætun-
um Naomi Campbell og Cindy Craw-
ford á kortið.
Talið er að karlfyrirsætur þéni um
75 prósentum minna en kvenfyrir-
sætur. Sem dæmi má nefna hæst-
launuðu fyrirsætu heims, Gisele
Bündchen. Samkvæmt Forbes þén-
aði hún 34 milljónir punda á síðasta
ári. Til samanburðar er talið að hæst-
launaða karlfyrirsætan, Sean O'Pry,
hafi fengið 1,15 milljónir punda.
„Topp tíu kvenfyrirsæturnar þéna
milljónir punda, en aðeins þrír launa-
hæstu karlarnir þéna yfir milljón,“
segir Rose.
Þrátt fyrir þennan launamun eiga
konurnar oft erfitt uppdráttar vegna
aldursfordóma. Ferill þeirra er því
iðulega styttri en karlanna. Rose
bendir á að launahæstu karlarnir séu
yfirleitt á fertugsaldri en kvenfyrir-
sætur þykja orðnar gamlar á þeim
aldri.
Karlar þéna minna en vinna lengur
Þessi glæsilegi kaupauki* fylgir ef keyptar
eru vörur frá Estée Lauder fyrir 6.900 krónur
dagana 29. september – 5. október.
Kaupaukinn þinn í Sigurboganum
Take it Away Makeup Remover – farðahreinsi, 30ml
Advanced Night Repair Eye – alhliða augngel, 5ml
Advanced Night Repair – viðgerðadropa, 7ml
Resilience Lift Night – næturkrem, 15ml
Sumptuous Extreme Mascara – svartan mascara, 2.8ml
Pure Color Lipstick – varalit, fulla stærð, litur candy
Modern Muse Body Lotion – líkamskrem með ilmi, 30ml
Fallega snyrtibuddu
*á meðan birgðir endast
Kaupaukinn inniheldur:
20%
afsláttur af Estée Laudervörum fimmtudag, föstudag og laugardag
Laugavegi 80 - sími 561 1330
SIGURBOGINN
S SSNYRTI OG TÍ KUVÖRUVER LUN
F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ X X X X X X X X 9F i M M T U D a g U r 2 9 . s e p T e M b e r 2 0 1 6 F ó l k ∙ k y n i n g a r b l a ð ∙ T í s k a
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
A
-6
C
D
4
1
A
B
A
-6
B
9
8
1
A
B
A
-6
A
5
C
1
A
B
A
-6
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K