Fréttablaðið - 29.09.2016, Blaðsíða 4
33.200 kr. á mánuði* 22.300 kr. á mánuði* 33.200 kr. á mánuði*49.200 kr. á mánuði*
2.690.000 kr.
Kia cee’d LX
Árgerð 9/2015, ekinn 47 þús. km,
dísil, 1.400 cc, 90 hö, beinskiptur,
framhjóladrifinn, eyðsla 4,2 l/100 km.
3.990.000 kr.
Kia Sportage EX 4WD
Árgerð 9/2014, ekinn 86 þús. km,
dísil, 2.000 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn, eyðsla 6,2 l/100 km.
5.990.000 kr. 3.990.000 kr.
Kia Sorento EX Premium Kia Optima EX Premium
Árgerð 5/2014, ekinn 92 þús. km,
dísil, 2.200cc, 198 hö, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn, eyðsla 6,9 l/100 km.
Árgerð 3/2014, ekinn 30 þús. km,
dísil, 1.700 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
framhjóladrifinn, eyðsla 4,6 l/100 km.
Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 84 mánuði. Vextir 8,75% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,5%.
Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
*
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
Ábyrgð fylgir! NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Samgöngumál Vigdísi Hauksdóttur,
formanni fjárlaganefndar, finnst afar
sérkennilegt að til að klára fram-
kvæmdir við Vaðlaheiðargöng þurfi á
þriðja milljarð króna aukalán frá hinu
opinbera. Hún segir þarna kristallast
kjördæmapot síðustu ríkisstjórnar og
atkvæðaveiðar Steingríms J. Sigfús-
sonar í eigin kjördæmi fyrir síðustu
kosningar.
Fréttablaðið sagði frá því í gær að
búið væri að grafa um 83 prósent af
lengd ganga undir Vaðlaheiði og að
stjórnendur framkvæmdanna þyrftu
á þriðja milljarð í aukalán til að ljúka
framkvæmdum. Kostnaðaraukann
mætti rekja til ófyrirséðra atburða þar
sem heitt vatn og hrun úr gangalofti
hefði komið mönnum í opna skjöldu.
„Það er alveg ljóst í mínum huga
að áætlunum og rannsóknum á bæði
jarðgöngum í Vaðlaheiði og uppbygg-
ingu á Bakka var stórkostlega ábóta-
vant. Milljarðavíxlar hafa lent á hinu
opinbera á meðan á framkvæmdum
stendur,“ segir Vigdís.
„Hér er um grímulaust kjör-
dæmapot að ræða þar sem atkvæða-
veiðar í héraði voru stundaðar fyrir
síðustu kosningar og menn keyptu
sér aðgang að Alþingishúsinu. Þetta
hefði ekki gerst ef landið væri eitt
kjördæmi því þá hefðu menn hugsað
um þjóðarhag en ekki þrönga hags-
muni sína í eigin kjördæmi.“
Vaðlaheiðargöng, sem tengja
saman Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur,
voru samþykkt sem einkafram-
kvæmd í júní árið 2012. Lánin voru
þó með ríkisábyrgð en lög um ríkis-
ábyrgðir voru tekin úr sambandi við
ákvarðanatökuna. – sa
Segir göngin dæmigert kjördæmapot síðustu ríkisstjórnar
Vaðlaheiðargöng hafa verið umdeild
frá því að gerð þeirra var samþykkt árið
2012. Fréttablaðið/auðunn
Hér er um grímu
laust kjördæmapot
að ræða þar sem atkvæða
veiðar í héraði voru stund
aðar fyrir síðustu kosningar
og menn keyptu sér aðgang
að Alþingishús
inu.
Vigdís Hauksdóttir,
formaður fjárlaga
nefndar
Samgöngumál Skoða á þann mögu-
leika að fella millilandaflugvelli
landsins inn í rekstur Isavia og fela
Vegagerðinni rekstur annarra flug-
valla á landinu og einnig skoða hvort
sá kostur sé fýsilegur að bjóða út allt
innanlandsflug. Samkvæmt upp-
lýsingum innanríkisráðuneytisins
hefur starfshópur verið settur á lagg-
irnar og honum falið að leggja fram
tillögur um úrbætur að bættum flug-
samgöngum innanlands.
Fréttablaðið sagði frá því í gær að
farþegum í innanlandsflugi hefði
fækkað um rúmlega fjórðung frá
árinu 2007. Samkvæmt upplýsingum
úr innanríkisráðuneytinu á nú að
horfa til samþættingar samgöngu-
kerfisins í lofti og á láði og skilgreina
hlutverk einstakra flugvalla.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
segir mikilvægt að endurhugsa fyrir-
komulagið. „Með alla þá ferðamenn
sem koma hingað til lands og álag
á vegakerfið, hefur verið fækkun í
fluginu. Því þurfum við að endur-
hugsa innanlandsflugið og nýta
það betur. Við eigum að skoða þetta
skipulag og athuga hvort við getum
gert betur.“
Framkvæmdastjóra Flugfélags
Íslands, Árna Gunnarssyni, líst ekki
á hugmyndir ráðherrans. „Þetta
myndi gera það að verkum að okkar
kostnaður myndi aukast. Þá er verið
að tala um að framlög sem hingað til
hafa komið til reksturs Isavia myndu
falla niður. Því myndu þeir rukka
okkur notendur um kostnaðarverð.
Þá myndi þurfa að hækka flugfar-
gjöld verulega. Fyrir mér hljóma
þessar hugmyndir sem afturhvarf til
sérleyfakerfisins sem var afnumið
1997,“ segir Árni.
Isavia gæti fengið þrjá stóru
innanlandsflugvellina í útboði
Sá möguleiki er nú kannaður í innanríkisráðuneytinu að bjóða út allt innanlandsflug og flytja þrjá stærstu
flugvelli landsins, Akureyrar-, Reykjavíkur- og Egilsstaðaflugvöll, til Isavia en aðrir flugvellir yrðu reknir af
Vegagerðinni. Starfshópur á að leggja fram tillögur um úrbætur að bættum flugsamgöngum innanlands.
Flugvöllurinn í Skutulsfirði yrði færður til Vegagerðarinnar ef hugmyndir ná fram að ganga. Fréttablaðið/GVa
Samfélag Tökulið kvikmyndar-
innar Justice League hefur farið fram
á að Vegagerðin auki þjónustu sína
vegna vegarins á milli Djúpuvíkur og
Hólmavíkur á meðan á tökum stend-
ur. Vefsíða Markaðsstofu Vestfjarða
greindi frá því fyrr í mánuðinum að
áætlað væri að tökur hefjist í október
eða nóvember.
„Þeir biðja um að hafa moksturs-
tæki alltaf tilbúin ef á þarf að halda,“
segir Jón Hörður Elíasson, rekstrar-
stjóri hjá Vegagerðinni á Hólmavík.
Þar að auki segir hann farið fram á
að leiðinni verði alltaf haldið renni-
sléttri.
„Þetta verður gert. Við stoppum
þá ekki af,“ segir Jón Hörður og bætir
því við að hann geri ráð fyrir að fram-
leiðslufyrirtæki myndarinnar greiði
kostnað umfram þá þjónustu sem
venjulega er veitt, en vegurinn er
venjulega mokaður tvo daga í viku á
þessum árstíma.
Fyrrnefnd vefsíða greindi jafnframt
frá því að Hótel Djúpavík myndi hýsa
að minnsta kosti 200 manns úr töku-
liðinu en unnið væri að því að finna
leikurum og öðru starfsfólki gistingu.
Á meðal leikara myndarinnar eru Ben
Affleck í hlutverki Leðurblökumanns-
ins og Henry Cavill sem Ofurmennið.
Zack Snyder, leikstjóri Batman v
Superman sem skartaði þeim Cavill
og Affleck, mun leikstýra myndinni
en ekki er vitað hvaða leikarar koma
til Íslands. – þea
Ofurhetjur
vilja meiri
snjómokstur
Ekki er vitað hvort leðurblökumaður-
inn sjálfur hafi krafist rennisléttra vega.
nordicphotoS/aFp
Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmað-
ur VG, er ekki hlynnt því að innan-
landsflug yrði einkavætt í þessum
skrefum. „Ég er alls ekki hlynnt
einkavæðingu innanlandsflugsins
og vallanna. Það er spurning hvern-
ig fer fyrir minni völlunum ef þeir
verða settir undir Vegagerðina og
þurfa að bítast um vegafé sem ekki
hefur nú dugað til venjulegs viðhalds
vega. Mikilvægt er að það liggi skýrt
fyrir hvernig fjármagna eigi rekstur
vallanna. Önnur leið er fær þar sem
farið verði inn í samþykktir Isavia og
því gert skylt að setja ákveðið hlut-
fall tekna sinna til annarra valla en
Keflavíkurflugvallar,“ segir Bjarkey.
sveinn@frettabladid.is
Við eigum að
skoða þetta
skipulag og athuga hvort
við getum gert betur.
Ólöf Nordal.
innanríkis
ráðherra
Fyrir mér hljóma
þessar hugmyndir
sem afturhvarf til sérleyfa
kerfisins sem var afnumið
1997.
Árni Gunnarsson,
framkvæmda
stjóri Flugfélags
Íslands
Það er spurning
hvernig fer fyrir
minni völlunum ef þeir
verða settir undir Vega
gerðina.
Bjarkey Gunnars
dóttir, þingmaður
VG
2 9 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 f I m m t u D a g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð
2
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
A
-6
7
E
4
1
A
B
A
-6
6
A
8
1
A
B
A
-6
5
6
C
1
A
B
A
-6
4
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K