Fréttablaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 1 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 4 . n ó v e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
sKOðun Þórlindur Kjartansson
skrifar um forsetakosningar í
Bandaríkjunum. 11
spOrt Ólafía Kristinsdóttir
er í forystu á Evrópumótaröð
kvenna í Abú Dabí. 12
lÍFið María Th. Ólafsdóttir tók
myndir af fastagestum Vestur
bæjarlaugarinnar. 30
tÍMaMót Ljósmyndarafélag
Íslands fagnar 90 ára afmæli
með ljósmyndasýningu. 18
plús 2 sérblöð l FólK
l MálMiðnaður
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Siggu
Kling
Stjörnuspá
sÍða 26
stjórnMál Formenn Bjartrar fram
tíðar og Viðreisnar funduðu með
Katrínu Jakobsdóttur, formanni
Vinstri grænna, á miðvikudag þar
sem meðal annars var viðruð sú
hugmynd að ríkisstjórn yrði mynd
uð með Sjálfstæðisflokki undir for
ystu Benedikts Jóhannessonar. Þetta
herma heimildir Fréttablaðsins en
jafnframt að áður en forseti Íslands
afhenti stjórnarmyndunar umboðið
hafi Benedikt Jóhannesson, formað
ur Viðreisnar, falast eftir stuðningi
Pírata til að fá stjórnarmyndunar
umboðið.
Það kom rækilega á óvart á mánu
dag þegar Óttarr Proppé, formaður
Bjartrar framtíðar, óskaði eftir því
við forseta Íslands að Benedikt fengi
stjórnarmyndunarumboðið. Bene
dikt og Óttarr hafa nú myndað
bandalag og gengu saman á fund
Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokks, í gær. Heimildir
Fréttablaðsins herma að á mið
vikudag hafi formennirnir reynt að
byggja brú á milli Vinstri grænna og
Sjálfstæðisflokks með því að leggja
til að Benedikt, en ekki Bjarni Bene
diktsson, yrði forsætisráðherra.
Málefni hafi ekki verið rædd á fund
inum.
Katrín Jakobsdóttir fundaði einn
ig með Bjarna í gær. Fundurinn var
nær tveggja tíma langur en flokk
arnir náðu ekki saman. „Það er
langt á milli þessara flokka málefna
lega og við fórum yfir skattamál,
menntamál og heilbrigðismál. Það
var mikið að ræða enda langt á milli.
Þetta voru bara rökræður um þetta
og engin niðurstaða úr því.“ Katrín
hefur rætt við formenn allra flokka.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að innan Bjartrar framtíðar séu
margir hissa á samstarfi við Við
reisn. Fyrrverandi þingmenn
flokksins óttast að við kosningar
hafi flokkurinn færst til hægri.
Eiríkur Bergmann, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann á
Bifröst, segist ekki viss um að sam
starf Viðreisnar og Bjartrar fram
tíðar sé klókt.
„Þetta er auðvitað allt einhvers
konar Hungurleikar. Eins konar
taktík sem þeir hafa ákveðið að
myndi henta þeim. Mér finnst
athyglisvert hversu opinskátt það
er. Í aðdraganda kosninganna var
Björt framtíð í allt öðru banda
lagi með þremur öðrum flokkum á
vinstri væng og hefur nú snúið sér
til hægri til Viðreisnar. Þetta er því
kannski frekar eins konar hentug
leikasamband en hjónaband. Hvort
þetta séu aðeins skyndikynni á eftir
að koma í ljós.“ – snæ
Benedikt verði forsætisráðherra
Rætt var á fundi Viðreisnar, VG og Bjartrar framtíðar hvort mynda mætti ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki
með formann Viðreisnar sem forsætisráðherra. Viðreisn og Björt framtíð vilja starfa saman í ríkisstjórn.
Þetta er því kannski
frekar eins konar
hentugleikasamband en
hjónaband. Hvort þetta séu
aðeins skyndikynni á eftir
að koma í ljós.
Eírkur Bergmann
stjórnmála-
fræðingur
saMFélag Svört mynd er dregin upp
af EfraBreiðholti í nýrri skýrslu
Rauða krossins um hagi lakast settu
íbúa Reykjavíkurborgar. „Það er
margt sem við viljum ekki vita um
EfraBreiðholt,“ segir sérfræðingur í
heilbrigðiskerfinu sem Rauði kross
inn vitnar í.
Hverfið er sagt láglaunasvæði
með mikla fátækt, mörg þjóðar
brot og mikil félagsleg vandamál.
Þá eru margar ómenntaðar, ungar,
fátækar mæður sagðar búa í hverf
inu en sístur sé hagur erlends fólks
í láglaunastörfum.
Í skýrslunni er hverfið sagt skera
sig úr að mörgu leyti. Fjórðungur
íbúa sé af erlendum uppruna, hlut
fallslega fleiri íbúar séu fatlaðir eða
með geðraskanir, menntunarstig sé
lægra og þar fram eftir götunum.
Hins vegar segir að það beri að
hafa í huga að hópurinn sem eigi í
vanda sé mun minni en hinn. Flestir
plumi sig vel og geti horft björtum
augum til framtíðarinnar.
Vandamálin eru hins vegar sögð
til staðar. Til að mynda er minnst
á hættu á því að innflytjendabörn
einangrist félagslega. Hins vegar
sé verkefnum á borð við unglinga
smiðjur og skólasel ætlað að taka á
vandanum. Í sumum tilfellum dugi
það hins vegar ekki til.
„Þetta er vaxandi hópur og sann
leikurinn er sá að við erum ansi
máttlaus hvað þennan hóp varðar.
Það vantar róttæk úrræði sem við
höfum ekki mótað enn þá,“ er haft
eftir starfsmanni velferðarsviðs
borgarinnar. – þea
Mikið um
félagsleg
vandamál í
Breiðholti
Benedikt Jóhannesson og Óttarr Proppé mættu saman til fundar við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, í Ráðherrabústaðnum í gær.
Efni fundarins var hugsanleg myndun ríkisstjórnar en Bjarna var falið stjórnarmyndunarumboð á miðvikudag. Fréttablaðið/Ernir
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-9
7
A
8
1
B
3
0
-9
6
6
C
1
B
3
0
-9
5
3
0
1
B
3
0
-9
3
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K