Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 18

Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 18
og Malmö og meðal viðskiptavina eru knattspyrnustjörnunar Zlatan Ibrahimovic og Messi auk fjölda frægra einstaklinga á Norðurlönd- um. Rekstrar tekjur fyrsta ársins voru um 200 milljónir króna og við höfum nú þegar tvöfaldað þá upphæð í ár. Þetta er búið að vera spennandi tími og um leið mjög lærdómsríkur. Nú er ég nýbúin að skipta um starf en mun sitja áfram í stjórn fyrirtækisins og er auk þess einn eigenda.“ Nýja starfið sem Lauga vísar í er framkvæmdastjórastaða innan StartupLab þar sem frumkvöðla- ferðalag hennar hófst árið 2013. „Við hýsum 72 frumkvöðlafyrir- tæki og um 250 starfsmenn. Mark- mið okkar er að auka enn frek- ar vöxt þessara fyrirtækja og um leið að tengja þau við fjárfesta, við- skiptavini og ýmsa ráðgjafa. Auk þess rekum við fjárfestasjóð sem heitir Founders Fund, en á bak við hann standa nokkrir sterkir fjár- festar, m.a. Jon Von Tetzchner sem hefur verið áberandi í íslensku og norsku viðskiptalífi undanfarin ár.“ Auk þess situr Lauga í stjórn Norsk-íslenska verslunarráðsins, Funde.no sem er norsk hópfjár- mögnunarsíða og í stjórn tónlistar- hátíðarinnar og sýningarinnar by:Larm. „Ég hef brennandi ástríðu fyrir frumkvöðlum og ekki síst að fjölga konum á meðal þeirra hér í Noregi. Það vantar sárlega fleiri konur á þessum vettvangi. Þótt jafnrétti kynjanna sé vel á veg komið á Norður löndum sjáum við það ekki endurspeglast hjá frumkvöðlafyrir- tækjum.“ Hún segir fjölbreytni í rekstri fyrirtækja og nýsköp- un skipta miklu máli og þar halli verulega á konur. „Þetta snýst ekki bara um að fjölga kvenkyns frumkvöðlum heldur líka fjárfest- um, stjórnarmeðlimum og stjórn- arformönnum. Á þessum stigum eru mikilvægustu ákvarðanirnar teknar. Rannsóknir hafa enda sýnt að fyrir tækjum gengur betur þar sem konur koma að stjórn, saman- borið við þau sem er bara stýrt af körlum.“ Fær orku á Fjöllum Vinnudagarnir eru langir og strangir hjá Laugu og sumarfrí- in eru stutt. Helsta ástríða henn- ar utan vinnunnar er fjallaklifur en hún reynir að fara í a.m.k. eina stóra ferð á ári. „Ég finn alltaf tíma fyrir ferðalög og fjallaklifur enda fæ ég svo mikla orku þaðan. Auk þess eru fjöllin besti staðurinn til að átta sig á eigin áskorunum sem gaman er að sigrast á. Mér tókst t.d. að yfirvinna lofthræðsluna síðasta sumar þegar ég komst á topp Punta Anna sem er 2.346 metra hátt. Fjallaklifur og rekstur fyrir tækis eru lík að mörgu leyti en þar verð- ur maður að ýta óttanum til hliðar og stíga út fyrir þægindarammann. Svo kemst þetta upp í vana. Einn af gömlu viðskiptavinum mínum frá New York-árunum er góður vinur minn og við förum saman árlega í góða fjallaferð. Undan farin ár höfum við m.a. klifrað á Íslandi, Púertó Ríkó, Jómfrúaeyjunum, í Nepal, á Ítalíu og í Noregi.“ Fram undan í vetur er mikil vinna tengd nýja starfinu hjá Start- upLab en þar bíða hennar m.a. þau verkefni að kynnast frumkvöðlun- um og fyrirtækjum þeirra, kynn- ast norsku efnahagsumhverfi og að klára stefnumótunarvinnu fyrir StartupLab með teyminu sínu. Þó er ekki eintóm vinna framundan. „Um jólin ætla ég til Höfðaborgar í Suð- ur-Afríku að sörfa, klifra og skoða mig um með kærastanum og nokkr- um vinum okkar. Auk þess ætlum við kærastinn að eyða næstu ára- mótum í Marokkó á ferðalagi milli Casablanca og Marrakech. Þannig að það eru sannarlega spennandi og skemmtilegir tímar fram undan.“ Í fjallgöngu á Cortina D’Ampezzo á Ítalíu sumarið 2016. Það var mikil upplifun að róa á kajak á Jökulsárlóni í júní 2006. Á leið upp í grunnbúðir Mt. Everest. Ferðin var mikið ævintýri. Sigurlaug Óskarsdóttir, betur þekkt undir nafninu Lauga, hefur búið og starfað í Noregi og New York að mestu leyti síðan 1996. Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að stofnun, rekstri og verkefn- um innan nokkurra frumkvöðla- fyrirtækja en nýlega tók hún við starfi framkvæmdastjóra hjá Start- upLab en þar fann hún köllun sína í lífinu árið 2013; þegar hún ákvað að starfa innan frumkvöðlageir- ans. Fram undan eru spennandi ár og verkefni þar sem markmiðið er m.a. að stórauka hlut kvenna hjá frumkvöðlum í Noregi. Dvöl hennar ytra hófst árið 1996 þegar fjölskyldan flutti til bæjarins Elverum í Noregi. Í upphafi ætlaði hún að stoppa í eitt ár en þau urðu á endanum þrettán. „Pabbi fékk starf sem handboltaþjálfari og ári síðar fluttum við til Drammen. Foreldr- ar mínir opnuðu bakarí í nálægum bæ og seldu m.a. snúða, kleinur, kringlur og rúgbrauð auk norskra og ítalskra brauða. Þau unnu langa vinnudaga og ég sá því fljótt hversu erfitt, en um leið gefandi, það var að reka eigið fyrirtæki.“ Lauga var fljót að læra norsk- una en segist þó hafa verið lengur að tengjast norskri menningu og siðum. „Ég man að mér þótt Nor- egur kaldur og allt of snjóþung- ur. Svo áttu allir skíði en ég skildi aldrei „hæpið“ kringum þau. Raun- ar geri ég það ekki enn en hef þó lofað kærastanum mínum að prófa gönguskíðin í vetur. Fjölskyldan er búin að leigja skála í Synnfjell og ég segi stundum í gríni hann sé síð- asta tilraun okkar til að samlagast norsku samfélagi enda elska Norð- menn svo sannarlega skálana sína.“ rússíbanareið í new York Eftir framhaldsskóla hélt Lauga til New York þar sem hún lauk námi í alþjóðaviðskiptum frá Berkeley há- skóla í New York. Meðfram námi vann hún í fullu starfi; fyrsta árið sem sjálfboðaliði fyrir hjálparsam- tök, næsta ár í fasteignabransanum og lokaárin þrjú sem markaðsstjóri hjá flutningafyrirtæki. „Árin í New York voru svo sannarlega eins og rússíbanareið. Þar lærði ég margt um sjálfa mig, hæfni mína og eigið gildismat. Hraðinn var rosa- lega mikill og vinnuumhverfið er vægðar laust þar sem ríkir nánast ekkert jafnvægi milli starfsframa og fjölskyldunnar.“ Eftir fimm annasöm ár í stór- borginni var hún tilbúin að prófa eitthvað nýtt. Noregur var þó ekki inni í myndinni strax og því ákvað hún að fara til Íslands. „Ég þurfti tíma til að melta það sem ég hafði lært síðustu ár í New York og finna út hvað ég vildi gera í kjölfarið. Því ákvað ég að flytja heim til Íslands til að stækka tengslanetið og kynn- ast landinu betur.“ Óhætt er að segja að hún hafi prófað nýja hluti þá mánuði sem hún stoppaði hér. Bæði vann hún í hlutastarfi hjá hópfjármögnunar- síðunni Karolina Fund auk þess að starfa á Svöluhrauni í Hafnar- firði sem er sambýli fyrir fatlaða. „Ég vildi prófa eitthvað algjörlega nýtt og satt að segja var þessi tími ótrúleg lífsreynsla. Hópurinn sem stóð að baka Karolina Fund var frá- bær og það var ótrúlega gefandi að kynnast fólki sem byggði upp þetta samfélag kringum hugmyndir sínar af allri þessari ástríðu.“ Eftir nokkra mánuði á Íslandi flutti hún aftur til Noregs þar sem hún tók við starfi markaðsstjóra hjá DoHop í Noregi. „Ég leigði borð hjá StartupLab, sem er n.k. frum- kvöðlasetur fyrir sprotafyrirtæki í tæknigeiranum, og fannst ég strax einhvern veginn komin heim. Að vera umkringd metnaðarfullu fólki sem leggur allt í sölurnar og þorir að takast á við ögrandi áskoran- ir var eitthvað fyrir mig. Startup- Lab var því síðasta skrefið hjá mér í leitinni, þarna fann ég að ég vildi vera frumkvöðull.“ lærdómsríkur tími Ári síðar stofnaði hún fyrsta fyrir- tæki sitt, United Influencers Media Group, ásamt félögum sínum. Fyrir tækið er stafræn markaðs- stofa sem hjálpar vörumerkjum að tengjast leiðandi notendum (áhrifa- völdum) og skapa þannig tæki- færi fyrir þá til að hanna mark- aðsefni sem vænlegir viðskipta- vinir tengjast betur, t.d. gegnum Facebook, Instagram, YouTube og Snapchat. „Í dag er fyrirtækið með skrifstofur í Ósló, Stokkhólmi Fólk er kYnningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. ÚtgEFAnDi: 365 MiðlAr | ÁbyrgðArMAður: Svanur Valgeirsson uMsJónArMEnn EFnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 söluMEnn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 ParisarTizkan SKIPHOLTI 29B 20% AFSLÁTTUR AF BUXUM LAGERHREINSUN/STÆRÐIR 34-50 BUXNADAGAR Þetta snýst ekki bara um að fjölga kvenkyns frumkvöðlum heldur líka fjárfestum, stjórnarmeðlimum og stjórnarformönnum. Á þessum stigum eru mikilvægustu ákvarðan- irnar teknar. 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l starri Freyr Jónsson starri@365.is 0 4 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 0 -C D F 8 1 B 3 0 -C C B C 1 B 3 0 -C B 8 0 1 B 3 0 -C A 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.