Fréttablaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 18
og Malmö og meðal viðskiptavina
eru knattspyrnustjörnunar Zlatan
Ibrahimovic og Messi auk fjölda
frægra einstaklinga á Norðurlönd-
um. Rekstrar tekjur fyrsta ársins
voru um 200 milljónir króna og
við höfum nú þegar tvöfaldað þá
upphæð í ár. Þetta er búið að vera
spennandi tími og um leið mjög
lærdómsríkur. Nú er ég nýbúin að
skipta um starf en mun sitja áfram
í stjórn fyrirtækisins og er auk
þess einn eigenda.“
Nýja starfið sem Lauga vísar í
er framkvæmdastjórastaða innan
StartupLab þar sem frumkvöðla-
ferðalag hennar hófst árið 2013.
„Við hýsum 72 frumkvöðlafyrir-
tæki og um 250 starfsmenn. Mark-
mið okkar er að auka enn frek-
ar vöxt þessara fyrirtækja og um
leið að tengja þau við fjárfesta, við-
skiptavini og ýmsa ráðgjafa. Auk
þess rekum við fjárfestasjóð sem
heitir Founders Fund, en á bak við
hann standa nokkrir sterkir fjár-
festar, m.a. Jon Von Tetzchner sem
hefur verið áberandi í íslensku og
norsku viðskiptalífi undanfarin
ár.“ Auk þess situr Lauga í stjórn
Norsk-íslenska verslunarráðsins,
Funde.no sem er norsk hópfjár-
mögnunarsíða og í stjórn tónlistar-
hátíðarinnar og sýningarinnar
by:Larm.
„Ég hef brennandi ástríðu fyrir
frumkvöðlum og ekki síst að fjölga
konum á meðal þeirra hér í Noregi.
Það vantar sárlega fleiri konur á
þessum vettvangi. Þótt jafnrétti
kynjanna sé vel á veg komið á
Norður löndum sjáum við það ekki
endurspeglast hjá frumkvöðlafyrir-
tækjum.“ Hún segir fjölbreytni
í rekstri fyrirtækja og nýsköp-
un skipta miklu máli og þar halli
verulega á konur. „Þetta snýst
ekki bara um að fjölga kvenkyns
frumkvöðlum heldur líka fjárfest-
um, stjórnarmeðlimum og stjórn-
arformönnum. Á þessum stigum
eru mikilvægustu ákvarðanirnar
teknar. Rannsóknir hafa enda sýnt
að fyrir tækjum gengur betur þar
sem konur koma að stjórn, saman-
borið við þau sem er bara stýrt af
körlum.“
Fær orku á Fjöllum
Vinnudagarnir eru langir og
strangir hjá Laugu og sumarfrí-
in eru stutt. Helsta ástríða henn-
ar utan vinnunnar er fjallaklifur
en hún reynir að fara í a.m.k. eina
stóra ferð á ári. „Ég finn alltaf tíma
fyrir ferðalög og fjallaklifur enda
fæ ég svo mikla orku þaðan. Auk
þess eru fjöllin besti staðurinn til
að átta sig á eigin áskorunum sem
gaman er að sigrast á. Mér tókst t.d.
að yfirvinna lofthræðsluna síðasta
sumar þegar ég komst á topp Punta
Anna sem er 2.346 metra hátt.
Fjallaklifur og rekstur fyrir tækis
eru lík að mörgu leyti en þar verð-
ur maður að ýta óttanum til hliðar
og stíga út fyrir þægindarammann.
Svo kemst þetta upp í vana. Einn af
gömlu viðskiptavinum mínum frá
New York-árunum er góður vinur
minn og við förum saman árlega
í góða fjallaferð. Undan farin ár
höfum við m.a. klifrað á Íslandi,
Púertó Ríkó, Jómfrúaeyjunum, í
Nepal, á Ítalíu og í Noregi.“
Fram undan í vetur er mikil
vinna tengd nýja starfinu hjá Start-
upLab en þar bíða hennar m.a. þau
verkefni að kynnast frumkvöðlun-
um og fyrirtækjum þeirra, kynn-
ast norsku efnahagsumhverfi og
að klára stefnumótunarvinnu fyrir
StartupLab með teyminu sínu. Þó er
ekki eintóm vinna framundan. „Um
jólin ætla ég til Höfðaborgar í Suð-
ur-Afríku að sörfa, klifra og skoða
mig um með kærastanum og nokkr-
um vinum okkar. Auk þess ætlum
við kærastinn að eyða næstu ára-
mótum í Marokkó á ferðalagi milli
Casablanca og Marrakech. Þannig
að það eru sannarlega spennandi og
skemmtilegir tímar fram undan.“
Í fjallgöngu á Cortina D’Ampezzo á Ítalíu sumarið 2016.
Það var mikil upplifun að róa á kajak á Jökulsárlóni í júní 2006.
Á leið upp í grunnbúðir Mt. Everest. Ferðin var mikið ævintýri.
Sigurlaug Óskarsdóttir, betur
þekkt undir nafninu Lauga, hefur
búið og starfað í Noregi og New
York að mestu leyti síðan 1996.
Undanfarin ár hefur hún einbeitt
sér að stofnun, rekstri og verkefn-
um innan nokkurra frumkvöðla-
fyrirtækja en nýlega tók hún við
starfi framkvæmdastjóra hjá Start-
upLab en þar fann hún köllun sína
í lífinu árið 2013; þegar hún ákvað
að starfa innan frumkvöðlageir-
ans. Fram undan eru spennandi ár
og verkefni þar sem markmiðið er
m.a. að stórauka hlut kvenna hjá
frumkvöðlum í Noregi.
Dvöl hennar ytra hófst árið 1996
þegar fjölskyldan flutti til bæjarins
Elverum í Noregi. Í upphafi ætlaði
hún að stoppa í eitt ár en þau urðu á
endanum þrettán. „Pabbi fékk starf
sem handboltaþjálfari og ári síðar
fluttum við til Drammen. Foreldr-
ar mínir opnuðu bakarí í nálægum
bæ og seldu m.a. snúða, kleinur,
kringlur og rúgbrauð auk norskra
og ítalskra brauða. Þau unnu langa
vinnudaga og ég sá því fljótt hversu
erfitt, en um leið gefandi, það var
að reka eigið fyrirtæki.“
Lauga var fljót að læra norsk-
una en segist þó hafa verið lengur
að tengjast norskri menningu og
siðum. „Ég man að mér þótt Nor-
egur kaldur og allt of snjóþung-
ur. Svo áttu allir skíði en ég skildi
aldrei „hæpið“ kringum þau. Raun-
ar geri ég það ekki enn en hef þó
lofað kærastanum mínum að prófa
gönguskíðin í vetur. Fjölskyldan er
búin að leigja skála í Synnfjell og
ég segi stundum í gríni hann sé síð-
asta tilraun okkar til að samlagast
norsku samfélagi enda elska Norð-
menn svo sannarlega skálana sína.“
rússíbanareið í new York
Eftir framhaldsskóla hélt Lauga til
New York þar sem hún lauk námi í
alþjóðaviðskiptum frá Berkeley há-
skóla í New York. Meðfram námi
vann hún í fullu starfi; fyrsta árið
sem sjálfboðaliði fyrir hjálparsam-
tök, næsta ár í fasteignabransanum
og lokaárin þrjú sem markaðsstjóri
hjá flutningafyrirtæki. „Árin í New
York voru svo sannarlega eins og
rússíbanareið. Þar lærði ég margt
um sjálfa mig, hæfni mína og
eigið gildismat. Hraðinn var rosa-
lega mikill og vinnuumhverfið er
vægðar laust þar sem ríkir nánast
ekkert jafnvægi milli starfsframa
og fjölskyldunnar.“
Eftir fimm annasöm ár í stór-
borginni var hún tilbúin að prófa
eitthvað nýtt. Noregur var þó ekki
inni í myndinni strax og því ákvað
hún að fara til Íslands. „Ég þurfti
tíma til að melta það sem ég hafði
lært síðustu ár í New York og finna
út hvað ég vildi gera í kjölfarið. Því
ákvað ég að flytja heim til Íslands
til að stækka tengslanetið og kynn-
ast landinu betur.“
Óhætt er að segja að hún hafi
prófað nýja hluti þá mánuði sem
hún stoppaði hér. Bæði vann hún í
hlutastarfi hjá hópfjármögnunar-
síðunni Karolina Fund auk þess
að starfa á Svöluhrauni í Hafnar-
firði sem er sambýli fyrir fatlaða.
„Ég vildi prófa eitthvað algjörlega
nýtt og satt að segja var þessi tími
ótrúleg lífsreynsla. Hópurinn sem
stóð að baka Karolina Fund var frá-
bær og það var ótrúlega gefandi að
kynnast fólki sem byggði upp þetta
samfélag kringum hugmyndir
sínar af allri þessari ástríðu.“
Eftir nokkra mánuði á Íslandi
flutti hún aftur til Noregs þar sem
hún tók við starfi markaðsstjóra
hjá DoHop í Noregi. „Ég leigði borð
hjá StartupLab, sem er n.k. frum-
kvöðlasetur fyrir sprotafyrirtæki í
tæknigeiranum, og fannst ég strax
einhvern veginn komin heim. Að
vera umkringd metnaðarfullu fólki
sem leggur allt í sölurnar og þorir
að takast á við ögrandi áskoran-
ir var eitthvað fyrir mig. Startup-
Lab var því síðasta skrefið hjá mér
í leitinni, þarna fann ég að ég vildi
vera frumkvöðull.“
lærdómsríkur tími
Ári síðar stofnaði hún fyrsta fyrir-
tæki sitt, United Influencers Media
Group, ásamt félögum sínum.
Fyrir tækið er stafræn markaðs-
stofa sem hjálpar vörumerkjum að
tengjast leiðandi notendum (áhrifa-
völdum) og skapa þannig tæki-
færi fyrir þá til að hanna mark-
aðsefni sem vænlegir viðskipta-
vinir tengjast betur, t.d. gegnum
Facebook, Instagram, YouTube
og Snapchat. „Í dag er fyrirtækið
með skrifstofur í Ósló, Stokkhólmi
Fólk er kYnningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
ÚtgEFAnDi: 365 MiðlAr | ÁbyrgðArMAður: Svanur Valgeirsson
uMsJónArMEnn EFnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
söluMEnn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
ParisarTizkan
SKIPHOLTI 29B
20% AFSLÁTTUR
AF BUXUM
LAGERHREINSUN/STÆRÐIR 34-50
BUXNADAGAR
Þetta snýst ekki
bara um að fjölga
kvenkyns frumkvöðlum
heldur líka fjárfestum,
stjórnarmeðlimum og
stjórnarformönnum. Á
þessum stigum eru
mikilvægustu ákvarðan-
irnar teknar.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-C
D
F
8
1
B
3
0
-C
C
B
C
1
B
3
0
-C
B
8
0
1
B
3
0
-C
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K