Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 2
Þingflokkur Framsóknar mætti til fyrsta þingflokksfundar í Alþingishúsinu í gær.
Andrúmsloftið hefur verið spennuþrungið að undanförnu. FréttAblAðið/Vilhelm
Veður
Norðangola og stöku él með norður- og
austurströndinni, en bjartviðri sunnan
og vestan til. Frystir sums staðar í inn-
sveitum um landið norðan- og austan-
vert. sjá síðu 22
Alþingi Þingflokkur Pírata er þre-
falt stærri í dag en hann var fyrir
kosningarnar um síðustu helgi.
Birgitta Jónsdóttir pírati segir
flokkinn ekki ætla að nota sama
þingflokksherbergi, enda sé það
of lítið.
„Flokkar eiga ekki nein þing-
flokksherbergi. Við gerum ráð fyrir
að við förum í græna herbergið,“
segir Birgitta. Það passi best fyrir
stærð þingflokks Pírata, en Fram-
sóknarflokkurinn var í græna her-
berginu á síðasta kjörtímabili.
Birgitta segir þingmenn vera
mjög mikið í þinghúsinu, einkum
við þinglok um jól og á vorin. Þá
sé nauðsynlegt að geta haft þannig
aðstöðu að allir geti verið á sama
stað.
Píratar hafa haldið tvo þing-
flokksfundi frá síðustu kosningum.
Vegna plássleysis í gamla þing-
flokksherberginu hefur flokkurinn
fengið lánað herbergi forsætis-
nefndar þingsins. „Við erum bara
heimilislaus eins og er. Skrifstof-
urnar okkar eru bara fyrir þriggja
manna þingflokk. En við gerum ráð
fyrir því að þetta leysist allt,“ segir
Birgitta.
Svandís Svavarsdóttir, þing-
maður VG, segir umræðuna um
skipan í þingherbergin vera ótíma-
bæra. „Við erum bara enn þá að
fara yfir þetta af því að gula her-
bergið sem við höfum alltaf verið
í er heldur þröngt og það er ekki
kominn neinn botn í það hvernig
við leysum það. Skrifstofa þingsins
hefur yfirumsjón með því og það
væri hægt að leysa það með ýmsu
móti, meðal annars með græna
herberginu. En við erum ekki búin
að botna það,“ segir Svandís. Hún
Heimilislausir Píratar
vilja græna herbergið
Þingflokksherbergi Pírata rúmar flokkinn ekki lengur, enda þingflokkurinn
orðinn þrefalt stærri. Birgitta Jónsdóttir gerir ráð fyrir því að Píratar fari í græna
herbergið. Hafa fundað í herbergi forsætisnefndar eftir kosningarnar.
bendir á að enn hafi ekki verið
ákveðið hvenær þingið kemur
saman, ekkert sé vitað hvernig
næsta ríkisstjórn verður og þessi
mál þurfi að skoðast samhliða því.
Stækka vegna Airwaves
Bæjarins beztu pylsur hafa nú bætt við sig aukapylsuvagni í miðbæ Reykjavíkur. Er það gert vegna mikillar ásóknar á meðan tónlistarhátíðin
Iceland Airwaves stendur yfir. Aukavagninn var settur upp í gámi og stendur við hlið þess gamla. Hátíðinni lýkur á sunnudaginn næstkomandi en á
meðal þeirra listamanna sem munu koma fram á hátíðinni eru PJ Harvey, múm, Santigold, Mugison og Dr. Spock . FréttAblAðið/Vilhelm
mynd sem þú mátt ekki missa af
- v a r i e t y- E n t e r t a i n m e n t w e e k l y
“emily blunt gives rachel
multiple dimensions”
“superb job”
“emily blunt is perfect”
“solid thriller”
“the girl on the train is
sexy and brutal”
“vivid performances
from the cast”
Dómsmál Systurnar Hlín Einars-
dóttir og Malín Brand hafa verið
ákærðar í fjárkúgunarmálinu svo-
kallaða. Þeim er gefið að sök að
hafa reynt að kúga fé af þáverandi
forsætisráðherra, Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, og öðrum manni
sem Hlín hefur sakað um nauðgun.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í mánuðinum. Ákæran
var útgefin af ríkissaksóknara í gær.
–þea
Búið að ákæra
Hlín og Malín
malin brand eftir yfirheyrslu í fyrra-
sumar. FréttAblAðið/Vilhelm
Viðskipti Eigendur iPhone síma
virðast vera minna tryggir Apple en
áður ef marka má rannsókn UBS-
greiningaraðilanna Stevens Miluno-
vich og Benjamins Wilson.
Business Insider greinir frá því
að smám saman virðist notendur
iPhone vera að færa sig yfir til ann-
arra síma. Í Bandaríkjunum og Evr-
ópu eru notendur iPhone frekar
tryggir Apple, en í austri, sér í lagi
í Kína, er fjöldi notenda farinn að
skipta út símanum.
Árið 2010 héldu 95 prósent eig-
enda iPhone sig við merkið þegar
þeir keyptu nýjan síma en árið
2016 er þetta hlutfall orðið um 75
prósent. Hlutfallið er þó ennþá
hærra en hjá Android og Samsung.
Samsung-símaeigendur virðast þó
verða tryggari með tímanum, ef litið
er fram hjá síðasta fjórðungi þegar
sprenging í Galaxy Note 7 hafði
áhrif.
Notendur iPhone í Bandaríkj-
unum, Bretlandi, Japan og Þýska-
landi halda enn fast í símana en í
Kína hefur áróður gegn Apple haft
þau áhrif að einungis 55 prósent
fengu sér iPhone aftur á síðasta árs-
fjórðungi, samanborið við rúmlega
80 prósent á sama ársfjórðungi fyrir
tveimur árum. Sala hjá Apple hefur
dregist saman um 30 prósent milli
ára í Kína. – sg
Tryggðin
minnkar
hjá Apple
iPhone eigendur eru líklegri til að fá sér
iPhone 7 í evrópu en í Kína.
Þessa dagana er verið að skipta
upp herberginu sem Samfylkingin
hefur verið í. Ástæðan er sú að
þingflokkarnir verða sjö, en voru
sex á síðasta kjörtímabili og því
vantar eitt herbergi.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, segir að verið sé að
ganga frá herbergjaskipaninni þessa
dagana. Ekkert hafi verið ákveðið
endanlega. „Þetta er ákaflega þröngt
og erfitt að eiga við þetta. Ég er búinn
að leggja ákveðnar hugmyndir fyrir
flokkana en það er auðvitað háð því
hvað menn þurfa mikið pláss og
hvort þeir geta verið áfram á sínum
stað eða þurfa að skipta,“ segir Helgi.
jonhakon@frettabladid.is
Flokkar eiga ekki
nein þingflokksher-
bergi. Við gerum ráð fyrir að
við förum í græna herbergið.
Birgitta Jónsdóttir
Pírati
4 . n ó V e m b e r 2 0 1 6 F Ö s t u D A g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-9
C
9
8
1
B
3
0
-9
B
5
C
1
B
3
0
-9
A
2
0
1
B
3
0
-9
8
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K