Fréttablaðið - 04.11.2016, Síða 6
heilbrigðismál Reynsla síðustu
ára sýnir að flytja þarf sjúklinga í
um níu þúsund skipti á milli starfs-
stöðva Landspítalans í Fossvogi
og á Hringbraut á hverju ári. Slíkir
flutningar geta reynst þeim veikustu
stórhættulegir og beinbrotnum
börnum mjög erfiðir.
Ólafur Baldursson, framkvæmda-
stjóri lækninga á LSH, staðfestir að
daglega þarf að flytja 25 sjúklinga að
meðaltali – og koma upp aðstæður
þar sem notast þarf við flutninga-
bíla í stað sjúkrabíla þar sem fyrir-
ferðarmikill búnaður þarf að fylgja
hinum veika. Varla þarf að fjölyrða
um óhagræðið og kostnaðinn sem
af þessu hlýst, segir Ólafur en hver
ferð bætir heilum degi við dvöl
hvers sjúklings á spítalanum með
tilheyrandi kostnaði og óhagræði
fyrir einstaklinginn.
Ólafur segir að þessir flutningar
geti verið lífshættulegir og nefnir
dæmi af hjartasjúklingi sem þarf að
fara í hjarta- og lungnavél.
„Þetta eru sjúklingar
sem eru lífshættulega
veikir og eiga sér þá einu
von að komast í þessa
vél sem er einungis
staðsett á Hringbraut.
Ef allt væri eðlilegt
myndi okkur aldr-
ei detta það í hug að
flytja þennan sjúkling
– aldrei nokkurn tímann,“ segir
Ólafur. „Það er annað dæmi sem
truflar okkur mjög mikið og það eru
börn með ákveðna tegund af bein-
brotum. Þau koma brotin í Fossvog,
og um hluta þess hóps gildir að það
þarf að flytja þau í ákveðnum fyrir-
ferðarmiklum búnaði í sendibíl á
milli spítalanna, með tilheyrandi
verkjum og óþægindum. Það er með
öllu óásættanlegt að þurfa að gera
þetta, en eins og allir vita er barna-
þjónustan staðsett við Hringbraut
en slysaþjónustan í Fossvogi,“ segir
Ólafur.
Spurður hvort sjúklingur hafi
beinlínis látist vegna flutnings á
milli staða svarar Ólafur því til að
flutningur sjúklinga milli spítala
hafi klárlega átt þátt í að tefja grein-
ingu og meðferð margra sjúklinga,
en erfitt sé að fullyrða að flutning-
urinn einn og sér sé orsök dauðs-
falls. „En því oftar sem þarf að flytja
sjúkling, þeim mun meiri áhættu er
hann settur í, og ef um lífshættuleg
veikindi er að ræða er augljóst að
viðbótarflutningur eykur lífshætt-
una verulega, og það að óþörfu.
Þetta er óásættanlegt fyrir okkur öll.
Svo vel vill til að við eigum frábært
sjúkraflutningafólk sem stendur sig
með mikilli prýði, en það getur ekki
bjargað öllu og það er slæmt að búa
við klofinn spítala sem setur það,
og okkur öll, í þessa aðstöðu,“ segir
Ólafur.
En það þarf að flytja fleira á milli
húsa Landspítalans en veikt fólk;
um 25.000 ferðir þarf á milli húsa
með sýni hvers konar og fjölmargar
ferðir sérhæfðra starfsmanna á
milli staða þar sem þeirra er þörf á
hverjum tíma.
Þessu til viðbótar nefnir Ólafur
að þegar komið er með sjúklinga á
Hringbraut bíður oft flókinn flutn-
ingur með fárveikt fólk um rangala
og upp lyftur, sem eru allt of litlar
fyrir tækjabúnaðinn.
svavar@frettabladid.is
Flytja þarf fárveikt fólk
Flytja þarf sjúklinga á milli húsa Landspítalans í 9.000 skipti árlega. Slíkt er
þeim veikustu lífshættulegt. Sárt að þurfa að flytja beinbrotin börn, segir læknir.
Þær aðstæður koma upp reglulega að flytja þarf fólk í flutningabílum á milli spítalanna í Fossvogi og á Hringbraut því nauð-
synleg tæki eru svo fyrirferðarmikil að þau komast ekki í sjúkrabíl. Mynd/LSH
Já, nú verðurgaman!
Kringlukráin
Kringlunni 4-12
103 Reykjavík
Sími 568 0878
kringlukrain@kringlukrain.is
www.kringlukrain.is
4. - 5.
NÓV.
Kjósa um framkvæmdir
fyrir rúmar 450 milljónir
samfélag Framkvæmdafé í hverfa-
kosningu Reykjavíkur hefur verið
hækkað um helming og er nú 450
milljónir króna. Í gær var opnaður
kosningavefur fyrir framkvæmdir
í hverfum borgarinnar í fimmta
sinn þar sem íbúar í Reykjavík geta
tekið þátt í ákvörðunum með bein-
um hætti. Standa kosningar í tvær
vikur á vefslóðinni kosning.reykja-
vik.is eða til og með 17. nóvember.
Hugmyndum var safnað hjá
íbúum í júní og bárust rúmlega
900 hugmyndir sem var 50 pró-
senta aukning frá 2015. Tíminn
frá hugmyndaskilum hefur verið
nýttur til að vinna úr innsendum
hugmyndum. Svipaðar hugmyndir
hafa verið sameinaðar og búið er
að áætla framkvæmdakostnað við
hverja þeirra.
Breiðholt fær mest úthlutað eða
um 70 milljónir, svo Grafarvogur,
og Laugardalur og Vesturbær fá
um 55 milljónir en fjármunum er
skipt eftir stærð hverfa. Kjalarnes
fær minnst, eða 13 milljónir. Til að
tryggja minnstu hverfunum lág-
marksfjárhæð til umráða er fjórð-
ungi fjárheimildarinnar skipt jafnt
milli hverfa. – bbh
240
Flóttamenn drukknuðu eftir
að tveimur bátum hvolfdi.
En það er ekki
nokkur spurning að
það eru allt of
mörg dæmi um
það að öryggi
sjúklinga hafi
verið ógnað á
þessari flutnings-
leið – það er
ekki nokkur
spurning.
Ólafur Baldurs-
son, fram-
kvæmdastjóri
lækninga
Verkefnið í heild er í fjórum fösum.
Hugmyndasöfnun; umræða um hug-
myndir og úrvinnsla; kosningar og
framkvæmd. FréttabLaðið/Ernir
ÍtalÍa Talið er að um 240 flóttamenn
hafi drukknað í Miðjarðarhafi í gær og
fyrradag út af ströndum Líbíu.
Fólkið er sagt hafa verið um borð í
tveimur bátum sem báðum hvolfdi.
Fréttir af þessu bárust með öðru
flóttafólki sem bjargað var úr haf-
inu og var flutt til ítölsku eyjunnar
Lampedusa.
Um hundrað þeirra drukknuðu á
miðvikudag þegar upplásinn gúmmí-
bátur sökk. Annar gúmmíbátur fórst
síðan í gærmorgun og þar er talið að
um 140 manns hafi látið lífið.
Af fyrri bátnum björguðust 29
manns en aðeins tveir lifðu af seinna
slysið, svo vitað sé.
Alls hafa þá meira en 4.200
drukknað í Miðjarðarhafi það sem af
er þessu ári í tilraun til að komast yfir
til aðildar ríkja Evrópusambandsins,
ýmist frá Tyrklandi eða frá norður-
strönd Afríku.
Á síðasta ári er talið að nærri 3.800
hafi drukknað þar í hafinu en árið
2014 voru það nærri 3.300 manns.
Hernaðaraðgerðir Evrópusam-
bandsins gegn smyglurum, sem reyna
að koma fólki ólöglega yfir hafið, hafa
orðið til þess að mennirnir eru að
mestu hættir að senda fólk með tré-
bátum út á Miðjarðarhaf. Í staðinn er
nánast eingöngu notast við uppblásna
gúmmíbáta sem eru enn hættulegri
farartæki. Yfirleitt fylgir enginn flótta-
fólkinu þannig að það þarf sjálft að sjá
um að stýra bátunum yfir hafið. – gb
Hundruð flóttamanna
drukknuðu í vikunni
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 f Ö s t U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-C
4
1
8
1
B
3
0
-C
2
D
C
1
B
3
0
-C
1
A
0
1
B
3
0
-C
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K