Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 8
m
ar
kh
ön
nu
n
eh
f
-20%
NÝTT Í
MERITENE ENERGIS 15X30G
- 3 GERÐIR
ÁÐUR: 2.598 KR/PK
1.990
Próteinríkur
næringadrykkur
Bretland Dómstóll í London komst
í gær að þeirri niðurstöðu að breska
þingið fari með ákvörðunarvald um
það hvort Bretland segi sig úr Evrópu-
sambandinu.
Ríkisstjórn Bretlands geti ekki upp
á sitt eindæmi virkjað 50. grein Lissa-
bonsáttmála Evrópusambandsins,
jafnvel þótt breska þjóðin hafi sam-
þykkt útgöngu í þjóðaratkvæða-
greiðslu þann 23. júní síðastliðinn.
Ríkisstjórn Theresu May og Íhalds-
flokksins sagði úrskurðinn valda von-
brigðum, en honum verði áfrýjað til
hæstaréttar. Þegar hefur verið gefið
út að hæstiréttur muni kveða upp
úrskurð í þessu máli 7. desember
næstkomandi.
„Þjóðin kaus að yfirgefa Evrópu-
sambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu
sem hafði samþykki í lögum frá þing-
inu,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.
„Og stjórnin er staðráðin í að virða
niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar.”
May hefur sagt stefnt að því að
virkja útgönguákvæði Lissabon-
samningsins, 50. greinina, í mars á
næsta ári.
Útganga Breta í uppnámi
Stjórn Theresu May hyggst áfrýja dómsúrskurði um að breska þingið þurfi að samþykkja útgöngu úr ESB.
Dómstóllinn segir ríkisstjórn enga heimild hafa til að virkja útgönguákvæði ESB, þrátt fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna í sumar. Aðskilnaðarsinnar lýsa yfir áhyggjum af mögulegum svikum þingsins við kjósendur.
Fjárfestirinn Gina Miller, sem höfðaði málið gegn bresku stjórninni, gengur ásamt fylgdarliði sinu út úr dómshúsinu í London í gær eftir að hafa borið sigur úr býtum.
Nordicphotos/AFp
Ég er ekkert
að fara að
hverfa. Ef við
höfum ekki farið
úr ESB vorið
2019 þá myndi
ég þurfa að
helga allan
tíma minn
baráttunni á ný.
Nigel Farage, fráfarandi
leiðtogi UKIP
Segir dóminn breyta öllu
„Þetta er alger „game-changer“ í
málinu,“ sagði Eiríkur Bergmann
stjórnmálafræðiprófessor við
fréttastofu í gær um dóminn.
Eiríkur sagði það mikilvægasta við
úrskurðinn að breska þingið
sé fullvaldurinn í málinu.
„Fullveldið í Bretlandi er
ekki í höndum þjóðarinn-
ar. Það er ekki í höndum
drottningar. Það er ekki
í höndum ríkisstjórnar.
Það er í höndum þingsins.
Það er æðsta vald
Bretlands.“
Þá sagði Eiríkur þingið hafa rétt til
að taka sjálfstæða ákvörðun, burt-
séð frá niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. „Þingmenn verða í
vanda staddir. Eiga þeir að fylgja
eigin sannfæringu í málinu eða
forskrift þjóðarinnar? Ég hugsa
að mjög margir þingmenn
– Bretar búa við einmenn-
ingskjördæmi – muni skoða
niðurstöðuna í sínu kjördæmi.“
Niðurstaða hvers kjördæmis
verði svo lögð til grundvallar
atkvæðis viðkomandi
þingmanns.
✿ Misjöfn viðbrögð
Fari svo að hæstiréttur staðfesti
dómsúrskurðinn þá þarf stjórnin
hins vegar að spyrja þingið, en engan
veginn er ljóst hvort meirihluti sé á
þingi fyrir útgöngu.
Breska pundið tók dálítinn kipp
við tíðindin, hækkaði um 1,4 prósent
gagnvart bæði evru og dollar. Gengi
pundsins hefur hríðlækkað eftir að
þjóðin samþykkti útgöngu úr ESB í
júní síðastliðnum.
Evrópuandstæðingurinn
Nigel Farage, fráfarandi leiðtogi
breska UKIP-flokksins, sagðist
hins vegar í gær vera farinn
að hafa verulegar áhyggjur.
Hætta sé á því að breskir
þingmenn muni
svíkja kjósendur,
sem samþykktu í
þjóðaratkvæða-
greiðslu í sumar
að Bretland ætti
að ganga úr
Ev r ó p u s a m -
bandinu.
„Við erum
að stefna í hálfa
útgöngu,“ sagði
hann í útvarpsvið-
tali í gær. Sjálfur ætli
hann hins vegar að halda ótrauður
áfram baráttu sinni gegn aðild Bret-
lands að Evrópusambandinu: „Ég er
ekkert að fara að hverfa. Ef við höfum
ekki farið úr ESB vorið 2019 þá myndi
ég þurfa að helga allan tíma minn
baráttunni á ný.”
Hann sagði af sér formennsku í
flokknum í sumar, eftir niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar, enda
hafði hann þá náð fram helsta bar-
áttumáli sínu.
gudsteinn@frettabladid.is
Juncker uggandi yfir töfunum
Jean-Claude Juncker, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, er uggandi yfir þeim töfum
á úrgöngu Bretlands sem dómurinn
kann að valda. Þetta fullyrti tals-
maður embættis hans í viðtali
við Guardian í gær.
Juncker er sagður
ætla að funda
með Theresu May
forsætisráðherra
í gegnum síma í
dag.
Juncker neitaði
sjálfur að tjá sig um það hvernig Bret-
ar hátta sínum enda úrsagnarinnar
en talsmaðurinn sagði öll önnur
aðildarríki Evrópusambandsins fara
fram á að fimmtugasta grein Lissa-
bonsáttmálans yrði virkjuð sem allra
fyrst.
Þá lýstu fleiri embættismenn
Evrópusambandsins yfir áhyggjum
sínum í viðtali við Guardian, þó í
skjóli nafnleyndar. Það sem helst
bar á góma var efi um hvort May
næði að standa við gefið loforð um
að virkja greinina fyrir aprílmánuð
næsta árs. Var því haldið fram, líkt
og Juncker gerði, að allar tafir væru
óvelkomnar því þær ykju óvissu.
Ríkisstjórnin ætti að
una niðurstöðunni í
stað þess að áfrýja til hæsta-
réttar.
Nicola Sturgeon,
formaður Skoska
þjóðarflokksins
Þjóðin fékk að kjósa
um brotthvarf en
ekki áfangastað. Þess vegna
ætti að kjósa aftur þegar
samningar um úrsögn hafa
náðst.
Tim Farron,
formaður
Frjálslyndra
demókrata
Við verðum að virða
yfirvald þingsins.
Gina Miller,
stefnandi í málinu
Ríkisstjórnin verður
að sýna þinginu
skilyrðin sem lögð verða
fram í úrsagnarviðræðunum.
Það verður að ríkja algjört
gagnsæi í þessum málum.
Jeremy Corbyn,
formaður
Verkamanna-
flokksins
Þingmenn eru
fulltrúar þjóðar-
innar og þjóðin kaus að
yfirgefa Evrópusambandið.
Við ætlum að vinna eftir
þeim niðurstöðum og fá sem
hagstæðasta skilmála fyrir
Bretland.
David Davis,
Brexitmálaráðherra
52%
Var hlutfall Breta sem
kusu
4 . n ó v e M B e r 2 0 1 6 F Ö S t U d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-B
F
2
8
1
B
3
0
-B
D
E
C
1
B
3
0
-B
C
B
0
1
B
3
0
-B
B
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K