Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
Spur Kóla
Formenn Bjartrar framtíðar og
Viðreisnar ætla að ganga hönd
í hönd í öllum þeim stjórnar-
myndunarviðræðum sem fram
undan eru. Þeir virðast líta svo
á að flokkarnir eigi svo mikla
samleið að nú sé við hæfi að
ganga sem einn maður til við-
ræðna, þó það hafi ekki verið
ráðgert fyrir kosningar. Það
er þekkt stef að markaðssetja
sömu vöruna á mismunandi
hátt fyrir tvo ólíka hópa. Við-
reisn höfðar til fólks úr atvinnu-
lífinu örlítið hægra megin við
miðju, en Björt framtíð til ungs
fólks örlítið vinstra megin við
miðju. Ekki ósvipað og Coke
light og Coke zero.
Brúin
Óttarr Proppé, formaður
Bjartrar framtíðar, hefur þó
sagt að honum hugnist betur
stjórn þar sem bæði Vinstri
græn og Sjálfstæðisflokkur
kæmu saman. Stjórn D V C og
A hefði ríflegan meirihluta, 42
þingmenn, og uppfyllti kröfur
um breiða skírskotun stjórnar
eins og Katrín Jakobsdóttir
túlkaði þjóðarviljann eftir
kosningar. Gárungarnir hafa
nefnt stjórn Sjálfstæðisflokks
og Viðreisnar Engeyingastjórn-
ina, vegna ættartengsla Bjarna
og Benedikts. Með Vinstri græn
í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
væri um svo breiða skírskotun
að ræða að hún gæti heitið Sam-
fylkingin. Það nafn er hvort sem
er á lausu. snaeros@frettabladid.is
Atvinnuþátttaka fólks
með skerta starfsgetu
Á íslenskum vinnumarkaði eru ýmsar hindranir sem verða á vegi fólks með skerta starfsgetu. Um þriðjungur örorkulífeyrisþega er á vinnu-
markaði og með einhverjar atvinnutekjur. Tækifærin
til að stunda vinnu eru af skornum skammti fyrir
þennan hóp fólks. Atvinnurekendur hafa verið tregir
til að ráða fólk með skerta starfsgetu til starfa. Því
þarf að fjölga verulega hlutastörfum og störfum með
sveigjanlegan vinnutíma, tilhögun og fyrirkomulag.
Vinnuveitendur þurfa að taka virkan þátt í að skapa
fólki með skerta starfsgetu raunveruleg tækifæri til
atvinnuþátttöku. Hér gæti hið opinbera sýnt gott
fordæmi, meðal annars með lagasetningu gegn mis-
munun, ráða fólk með skerta starfsgetu til vinnu og
draga verulega úr tekjuskerðingum.
Nýlega var viðtal á Stöð 2 við örorkulífeyrisþega
sem var með 25 þúsund krónur í atvinnutekjur á
mánuði fyrir skatt, en ávinningur af þeim atvinnu-
tekjum var rúmar tvö þúsund krónur eftir skatt og
tekjuskerðingar. Öryrkjabandalag Íslands hefur lagt
áherslu á að afnema þurfi hinar miklu tekjuskerð-
ingar og hefur lagt fram ítarlegar tillögur þess efnis í
skýrslunni Virkt samfélag. Tillögurnar voru innlegg
ÖBÍ inn í vinnu nefndar um endurskoðun laga um
almannatryggingar. Í þeirri nefnd var sátt um að taka
út krónu á móti krónu skerðingar fyrir alla lífeyris-
þega. Því miður náði sú breyting ekki inn í drög
félags- og húsnæðismálaráðherra að frumvarpi, sem
var til umsagnar síðastliðið sumar. Hins vegar var
vægi sérstakrar framfærsluuppbótar, uppbótaflokks
sem skerðist krónu á móti krónu, óbreytt eða aukið
með lögum sem voru samþykkt á Alþingi í október sl.
ÖBÍ hefur lagt áherslu á að farið verði strax í að
bæta kjör lífeyrisþega með verulegri hækkun þannig
að lífeyrir almannatrygginga dugi fyrir framfærslu í
íslensku samfélagi. Enn fremur þarf að taka út krónu
á móti krónu skerðingar og afnema víxlverkun í
samspili almannatrygginga og lífeyrissjóða. Þessar
úrbætur er hægt að framkvæma strax ef vilji er fyrir
hendi.
Enn fremur
þarf að taka
út krónu á
móti krónu
skerðingar og
afnema
víxlverkun í
samspili
almanna-
trygginga og
lífeyrissjóða.
Sigríður Hanna
Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi
hjá ÖBÍ
Fundirnir verða haldnir í húsakynnum félagsins
Stórhöfða 31 í Reykjavík og á Akureyri á Hótel Kea.
8. nóvember félagsmenn í matreiðslu og framreiðslu kl. 15.00 í Rvk.
9. nóvember félagsmenn í matreiðslu og framreiðslu kl. 14.30 á Ak.
9. nóvember félagsmenn í bakstri kl. 15.30 á Akureyri
9. nóvember félagsmenn í kjötiðn kl. 17.00 á Akureyri
16. nóvember félagsmenn í bakstri kl. 15.00 í Reykjavík.
16. nóvember félagsmenn í kjötiðn kl. 17.00 í Reykjavík
Félagsfundir
MATVÍS boðar til
félagsfunda
með sveinum og nemum
Sennilega er mikilvægasti mælikvarði á gæði samfélags sá að það bjóði hverjum og einum sem í því býr möguleika á fjölbreyttum þroskakostum. Hvar sem fólk stendur á litrófi stjórnmálanna erum við flest þeirrar skoðunar að gott samfélag feli í sér tækifæri
til þess að þroska hæfileika sína, sjálfum sér og sam-
félagi til góðs.
Því miður er svo að ýmsir þættir hindra það að hver
og einn búi við þær aðstæður að geta fetað góða braut
í lífinu. Ástæðurnar eru mismunandi og liggja ekki
alltaf í efnislegum gæðum, þótt þau hafi veruleg áhrif.
Rauði krossinn gaf út skýrsluna Fólkið í skugganum
sem er skýrsla um stöðu þeirra lakast settu. Skýrslan
er þarft innlegg í að vekja athygli á stöðu hóps sem
ekki á sér háværa málsvara.
Samkvæmt skýrslunni búa tvö prósent þjóðar-
innar við alvarlegan skort. Þeir helstu sem standa
höllum fæti eru einstæðar mæður með litla menntun,
innflytjendur og fólk sem býr við geðraskanir og/eða
fíknivanda.
Það sem er alvarlegast við þennan vanda er að
verði ekkert að gert, þá erfist hann. Fram kemur í
skýrslunni að börn sem búa við fátækt einangrast,
eru ekki í leikskóla eða tómstundum. Það er þessi ein-
angrun sem gerir það að verkum að allar fyrirmyndir
skortir og því erfist félagsleg staða milli kynslóða.
Þó vissulega sé aðkallandi að bæta úr húsnæðis-
skorti þeirra hópa sem veikast standa og skapa þeim
betra lífsviðurværi er enn mikilvægara að grípa til
úrræða sem geta rofið vítahring félagslegrar fátæktar.
Stöðu margra sem eru til umfjöllunar í skýrslunni
er hægt að breyta með réttum stuðningi og leiðsögn.
Rjúfa vítahring félagslegrar einangrunar og atvinnu-
leysis. Kostnaður við að ná til slíks hóps og veita
honum stuðning til eigin uppbyggingar þarf ekki að
vera mikill og fullyrða má að framlög til slíks skili sér
margfalt.
Víða er unnið gott starf bæði á vegum félagasam-
taka og opinberra aðila. Reykjavík tekur á sig mestan
þungann af vandamálinu og kostnað af því. Það er
auðvitað ósanngjarnt að sveitarfélög geti í raun ýtt frá
sér félagslegum vanda yfir á önnur. Þarna þarf ríkið
að koma til og jafna stöðuna.
Augljóst er af lestri skýrslunnar hversu mikilvægt
er að grípa inn í snemma á mannsævinni og skapa
börnum sem búa við erfiðar aðstæður tækifæri til að
vaxa og dafna. Slíkt ætti ætíð að vera keppikefli sam-
félagsins og á ábyrgð okkar allra.
Að opna barni sýn á aðra möguleika í lífinu og
skapa skilyrði til að opna dyr fyrir þeim sem komnir
eru í öngstræti í lífinu, þarf hvorki að vera dýrt né
erfitt. Þetta snýst ekki bara um peninga, heldur
hugarfar og samstilltar aðgerðir ríkis, sveitarfélaga og
félagasamtaka.
Börnin sem lifa
í skugganum
Stöðu margra
sem eru til
umfjöllunar í
skýrslunni er
hægt að
breyta með
réttum
stuðningi og
leiðsögn.
Rjúfa víta-
hring félags-
legarar
einangrunar
og atvinnu-
leysis.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r10 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-A
B
6
8
1
B
3
0
-A
A
2
C
1
B
3
0
-A
8
F
0
1
B
3
0
-A
7
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K