Fréttablaðið - 04.11.2016, Page 11
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Stjórnmál
snúast um
átök og
þannig á það
að vera. Það
er nauðsyn-
legt að það sé
tekið harka-
lega á og það
er sannarlega
ekki eftir-
sóknarvert
að allir séu
sammála.
Volkswagen Cross Polo er með meiri veghæð, stærri felgur og íslenskt leiðsögukerfi sem staðalbúnað.
Þegar þú vilt fara aðeins lengra og sækja í ævintýrin er Volkswagen Cross Polo bíllinn fyrir þig.
www.volkswagen.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Cross Polo frá:
3.480.000 kr.
Cross Polo fyrir lengra komna.
Og ævintýraþyrsta.
5 ára ábyrgð
Það er magnað að enginn hafi kveikt á þessu fyrr; en ég tel mig hafa komist að því hver er heilinn á bak við forsetaframboð—og líklegan sigur—Donalds
Trump í Bandaríkjunum. Og við
Íslendingar megum vera stolt því ég
fæ ekki betur séð en að það sé okkar
ástkæra söngvaskáld Bjartmar Guð
laugsson.
„Ég veit allt, ég get allt. Ég kann allt,
ég skil allt—fíla allt miklu betur en fúll
á móti. Ég sé allt, ég má allt, ég finn
allt, ég er allt,“ söng Sumarliði fullur
í lagi Bjartmars. „Ég er kroppur, ég er
fróður, fallegri í framan heldur en fúll
á móti. Ég er góður, aldrei óður, ekki
fitukeppur eins og slappi fúll á móti,“
bætti hann við. Allar þessar fáránlegu
setningar, settar fram til háðungar
oflátungum, myndu smellpassa inn
í framboðsræður og tilsvör manns
ins sem verður hugsanlega kjörinn í
ábyrgðarmesta embætti veraldar eftir
nokkra daga.
Oflátungur í Hvíta húsið
„Ég er með besta minni í heimi,“ hefur
Trump montað sig. „Enginn les Biblí
una meira en ég,“ hefur hann líka sagt
þótt leiða megi líkur að því að hann
hafi sleppt nokkrum mikilvægum
köflum. „Enginn ber meiri virðingu
fyrir konum heldur en ég,“ fullyrðir
hann trekk í trekk jafnvel þótt hann sé
margsinnis búinn að sýna fram á hið
algjörlega gagnstæða.
Allt frá því Trump byrjaði kosn
ingabaráttu sína hafa fjölmiðlungar
og fræðingar keppst við að lýsa því
yfir að það sé óhugsandi að hann
nái kjöri. Fyrst trúði enginn að hann
yrði útnefndur fyrir Repúblikana
flokkinn—og nú dynur á manni ósk
hyggjan um að hann geti ekki unnið.
En því miður óttast ég að hann eigi
meira en góðan möguleika á að ná
kjöri.
Hvernig gat þetta gerst?
Hvort sem Trump nær sigri, eða
tapar, þá hljóta margir að spyrja sig
annaðhvort „hvernig gat þetta gerst?“
eða „hvernig gat þetta gengið svona
langt?“ Fyrir því hljóta að vera ýmsar
ástæður—en ein þeirra hlýtur að vera
sú skrímslavæðing sem stjórnmála
menn í Bandaríkjunum hafa tileinkað
sé á síðustu árum.
Á allra síðustu árum—líklega
einkum með tilkomu Teboðshreyf
ingarinnar svokölluðu—hefur heiftin,
vænisýkin og illgirnin náð tökum á
bandarískum stjórnmálum. Það að
sýna meðlimum annarra sjónarmiða
virðingu varð smám saman tákn um
linkind og aumingjaskap. Það var ekki
nóg að líta á pólitíska andstæðinga
sem manneskjur á annarri skoðun,
heldur þurfti að skilgreina þá sem
hættulegar ófreskjur, þjóðníðinga og
svikara.
Og viti menn—þegar búið er að
sannfæra nógu marga um að and
stæðingurinn sé óvinur og ófreskja
þá verður fólki ekkert sérstaklega bilt
við þótt fram komi stjórnmálamaður
sem lofar að haga sér eins og ófreskja.
Donald Trump lofar því að neyða
milljónir íbúa Bandaríkjanna út úr
landinu með ofbeldi, hann talar um að
koma mótframbjóðanda sínum bak
við lás og slá og hefur í ofanálag verið
ófáanlegur til þess að lofa því að sætta
sig við niðurstöðu kosninganna (nema
auðvitað ef hann vinnur).
Hvort sem verstu spár um afleiðing
ar kjörs Donalds Trump verða að veru
leika breytir engu um það hversu ótrú
legt það er að maður sem fæstir myndu
treysta til að sitja í stjórn foreldrafélags
í grunnskóla sé hársbreidd frá því að
verða valdamesti maður heims.
Galdrar og kökuskreytingar
Þessi ömurlega staða í Bandaríkjunum
er áminning um það hversu dýrmætt
það er ef stjórnmálamenn eru vandir
að virðingu sinni; að þeir virði lýð
ræðið—og bæði skráðar og óskráðar
reglur þess—meira en svo að þeir séu
tilbúnir til þess að beita öllum ráðum
til að ná völdum.
Eftir kosningarnar hér á landi hefur
verið uppörvandi að fylgjast með fram
komu íslenskra stjórnmálaleiðtoga.
Enginn íslenskur stjórnmálaflokkur
sökkti sér í sambærilega forarpytti
og skilað hafa misjöfnum karakt
erum miklu fylgi víða annars staðar í
heiminum. Það ber heldur ekki á öðru
heldur en að jafnvel þau sem mest eru
ósammála komi fram við hvert annað
af virðingu og skilningi. Stjórnmála
leiðtogar á Íslandi koma fram við hvert
annað eins og fólk.
Þótt við vitum auðvitað að stjórn
málamenn eru venjulegt fólk þá þurfa
þeir stundum að minna á það. Fyrir
kosningar var til dæmis töluvert hlegið
að tilraunum stjórnmálamanna til þess
að sýna fram á mýkri hliðarnar. Þetta
virtist jafnvel fara í taugarnar á sumum,
sem kjósa frekar að mála andstæðinga
sína sterkari litum.
En er það ekki bara ágætt fyrir gall
harða hægrimenn að vita að Katrín
Jakobsdóttir á stórskemmtilegar hliðar
og að hún stundar galdra og sjónhverf
ingar? Og er ekki aðeins erfiðara að
hatast út í Bjarna Benediktsson þegar
maður hefur séð natnina sem hann
leggur í að skreyta afmæliskökuna fyrir
dóttur sína? Við getum þá að minnsta
kosti gengið út frá því að þeir sem eru
ósammála okkur séu ekki endilega
illmenni.
Virðum leikinn
Stjórnmál snúast um átök og þannig á
það að vera. Það er nauðsynlegt að það
sé tekið harkalega á og það er sannar
lega ekki eftirsóknarvert að allir séu
sammála. En ef stjórnmálamenn verða
svo helteknir af því að sigra með öllum
tiltækum ráðum að þeir kasta út um
gluggann allir virðingu fyrir sjálfum sér
og öðrum þá bjóða þeir heim hættunni
á hörmungum.
Stjórnmálamenn verða að halda
í heiðri óskrifað samkomulag um
hvernig „leikurinn“ er spilaður. Lýð
ræðið er nefnilega dálítið eins og
laxveiðiá. Það er hægt að veiða meira
um hríð með því að nota maðk frekar
en flugu—og líklega mest á net, eða
napalm—en þar með er veiðimaður
inn líka að eyðileggja ána og ánægjuna
fyrir öllum öðrum. Og með ólöglegum
veiðarfærum í kosningum—skrímsla
væðingu, heift og hatri—er líka verið
að eyðileggja farveg lýðræðisins og
ryðja í honum brautir sem einungis
þeir forhertustu og illgjörnustu láta sér
detta í hug að þræða.
Sem betur fer er Ísland í augnablik
inu laust við þetta.
Sumarliði er fullur í Hvíta húsinu
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11F Ö s T u d a g u R 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 6
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-9
C
9
8
1
B
3
0
-9
B
5
C
1
B
3
0
-9
A
2
0
1
B
3
0
-9
8
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K