Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 12
Í dag
09.00 Fatima Ladies Open Golfst.
19.40 Brentford - Fulham Sport 2
19.45 KR - Þór Þ. Sport
20.30 Shrines Open Golfstöðin
22.00 Körfuboltakvöld Sport
00.00 Chicago - NY Knicks Sport
Domino’s-deild karla:
19.15 Þór Ak. - Haukar Höllin Ak.
Olís-deild kvenna:
19.30 Fylkir - Valur Fylkishöll
Domino’s-deild karla
Keflavík - Tindastóll 101-79
Stigahæstir: Amin Stevens 35/19 fráköst,
Guðmundur Jónsson 23, Magnús Már
Traustason 13 - Mamadou Samb 22/8 frá-
köst, Pétur R. Birgisson 20/6 stoðsendingar,
Christopher Caird 19.
Snæfell - Stjarnan 51-100
Stigahæstir: Viktor Marinó Alexandersson
12 - Eysteinn Bjarni Ævarsson 14, Devon
Austin 13, Arnþór Freyr Guðmundsson 13.
Njarðvík - Skallagrím. 94-80
Stigahæstir: Stefan Bonneau 30, Björn
Kristjánsson 20, Logi Gunnarsson 14/5
stoðsendingar - Flenard Whitfeld 27/12
fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson 24/7
fráköst/6 stoðsendingar, Bjarni Guðmann
Jónsson 11/7 fráköst.
ÍR - Grindavík 78-81
Stigahæstir: Matthías Orri Sigurðarson 20/6
stoðsendingar, Matthew Hunter 17/8 frá-
köst - Lewis Clinch Jr. 20, Dagur Kár Jónsson
14, Ómar Örn Sævarsson 13/9 fráköst.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r12 S p o r T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
GoLF „Þetta var skemmtilegur
dagur. Ég var að slá ótrúlega vel og
koma mér í færi sem ég náði svo
að nýta mér,“ sagði Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir, atvinnukylfingur
úr GR og ríkjandi Íslandsmeistari
í höggleik, eftir frábæran annan
hring á sterku móti í Abú Dabí sem
er hluti af Evrópumótaröð kvenna.
Ólafía Þórunn fer á kostum í Sam
einuðu arabísku furstadæmunum
en eftir að fara fyrsta hringinn á 65
höggum eða sjö höggum undir pari
spilaði hún annan hring í gær á 66
höggum eða sex höggum undir pari.
Hún er í heildina búin að fá fimm
tán fugla á fyrstu 36 holunum og
er í forystu í mótinu eftir fyrri tvo
keppnisdagana á þrettán höggum
undir pari. Hún er með þriggja
högga forskot fyrir helgina.
Ólafía Þórunn hitti 17 af 18 flöt
um sem er náttúrlega magnað og
var því í ágætu færi nánast á hverri
einustu holu.
„Þessi völlur hentar mér vel. Ég
elska þessar flatir. Ég kom mér líka
í færi sem ég hefði getað nýtt betur.
Þetta var samt alveg geggjaður
dagur,“ sagði Ólafía Þórunn sem
spilaði nánast fullkomið golf á Saad
iyatgolfvellinum í Abú Dabí í gær.
Síminn að springa
Þessi 24 ára gamli tvöfaldi Íslands
meistari sýndi enga taugaspennu
á öðrum hring þrátt fyrir að vera í
forystunni eftir þann fyrsta.
„Það er ég sem ræð því hvort
þetta hefur áhrif á mig eða ekki.
Ég gerði allt bara eins og á fyrsta
hringnum og bætti engri pressu á
mig,“ sagði Ólafía Þórunn en hún
segist ekki finna fyrir neinum
taugatitringi úti á vellinum þrátt
fyrir að vera að spila við sumar af
þeim bestu.
„Í rauninni var ekkert stress í mér
og það kom kannski aðeins á óvart.
Það var bara svo gaman í gær því
allir á Íslandi voru svo glaðir fyrir
mína hönd. Síminn var að springa
af skilaboðum. Ég þarf bara að vera
róleg núna og vonandi tekst mér
það,“ sagði Ólafía Þórunn.
Milljónir í boði
Fari svo að Reykvíkingurinn haldi
áfram að spila svona vel og vinni
mótið fær hún 9,1 milljón króna
í sigurlaun. Takist það mun hún
ellefufalda heildarverðlaunafð sitt
í Evrópumótaröðinni til þessa og
rúmlega það. Ólafía hefur þrisvar
sinnum fengið verðlaunafé fyrir
þátttöku á LETmótaröðinni og eru
heildartekjurnar 790.000 krónur.
Minnst fékk Ólafía 200.000
krónur fyrir að hafna í 44. sæti á
móti í Andalúsíu en mest fékk hún
ríflega hálfa milljón þegar hún náði
16. sæti á Tipsport Golfmeistara
mótinu.
„Þetta er alveg frábært. Ég er ekk
ert taugaóstyrk heldur reyni ég bara
að halda mér í núinu og spila vel.
Vonandi get ég haldið svona áfram,“
sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
tomas@365.is
Ólafía ísköld í eyðimörkinni
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er með forystu á sterku móti í Evrópumótaröð kvenna í Abú Dabí fyrir seinni
tvo hringina. Fimmtán fuglar á fyrstu 36 holunum. Getur ellefufaldað verðlaunaféð sitt hingað til með sigri.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur spilað frábært golf í Abú Dabí en hún hitti 17 af 18 flötum á öðrum degi og fékk sjö fugla. LjÓSMYND/LET
Það er ég sem ræð
því hvort þetta
hefur áhrif á mig eða ekki. Ég
gerði bara allt eins og á fyrsta
hringnum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
BORÐAPANTANIR: 552-1630
HVERFISGÖTU 56, 101 RVK
AUSTURINDIA.IS
DIWALI
FIMM RÉTTA HÁTÍÐARMATSEÐILL
Nýjast
evrópudeild UeFA
A-riðill
Fenerbache - Man Utd 2-1
Zorya - Feyenoord 1-1
b-riðill
Astana - Olympiakos 1-1
APOEL - Young Boys 1-0
C-riðill
Anderlecht - Mainz 6-1
Qabala - St. Etienne 1-2
D-riðill
Maccabi - AZ Alkmaar 0-0
Viðar Örn Kjartansson spilaði fyrir Maccabi.
Zenit - Dundalk 2-1
e-riðill
Austria Vín - Roma 2-4
Astra - Viktoria Plzen 1-1
F-riðill
Athletic - Genk 5-3
Sassuolo - Rapid Vín 2-2
Arnór Ingvi Traustason spilaði fyrir Rapid.
G-riðill
Ajax - Celta Vigo 3-2
Panathinaik. - Standard 0-3
H-riðill
Braga - Konyaspor 2-1
Gent - Shakhtar 3-5
i-riðill
Schalke - Krasnodar 2-0
Nice - Salzburg 0-2
J-riðill
PAOK - Qarabag 0-1
Fiorentina - Slovan 3-0
K-riðill
Sp. Prag - Hapoel Beer 2-0
Southampton - Inter 2-1
L-riðill
Villarreal - Osmanlispor 1-2
Zürich - Steaua 0-0
sport
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-9
7
A
8
1
B
3
0
-9
6
6
C
1
B
3
0
-9
5
3
0
1
B
3
0
-9
3
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K