Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 16
þeim tíma. Það var hins vegar Atli
Eðvaldsson sem náði að landa
hinum langþráða titli sumarið
1999. Atli hafði sjálfur spilað
með KR frá 1990 til 1993 en
fyrstu þrjú árin voru KR-ingar
að flestra mati með meistaralið í
höndunum án þess þó að vinna
titilinn. Eftirmaður Atla,
Pétur Pétursson, var einn-
ig með honum í
KR-liðinu frá
1990 til 1991,
o g P é t u r
gerði KR að meisturum á fyrsta ári
sumarið 2000.
Eftir eitt slakt ár 2001, þar sem
Pétur missti meðal annars starfið
sitt, tók Willum Þór við og KR vann
titilinn tvö fyrstu ár hans. Willum Þór
hætti aftur á móti eftir dapurt tímabil
sumarið 2004. KR-ingar voru í neðri
hluta deildarinnar þegar Rúnar Krist-
insson tók við af Loga Ólafssyni sum-
arið 2010. Rúnar átti eftir að ná besta
árangri KR-þjálfara í 85 ár með því
að vinna titil á fjórum tímabilum í
röð þar á meðal vann liðið Íslands-
meistaratitlana 2011 og 2013.
Eftirmaður Rúnars, Bjarni Guð-
jónsson, hefði að öllu eðlilegu átt að
falla í meistaramótið en hann sker sig
þó úr á einum stað. Bjarni vann tvo
Íslandsmeistaratitla sem leikmaður
KR en þeim Atla, Pétri, Willum Þór og
Rúnari tókst aldrei að verða Íslands-
meistarar með KR-liðinu.
ooj@frettabladdi.is
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r16 S p o r T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
FóTboLTi KR-ingar vilja að KR-ingar
þjálfi liðið sitt. Það fer ekkert fram
hjá neinum þegar litið er yfir þjálf-
ara KR-liðsins undanfarin ár. Næsti
þjálfari liðsins er líka röndóttur í
gegn og hann fellur líka fullkomlega
í það mót þjálfara sem hafa skilað
KR-ingum Íslandsmeistaratitlinum
undanfarin sautján ár.
Willum Þór Þórsson verður þjálfari
KR-liðsins næsta sumar. Stjórn KR
gekk frá því í gær og mun kynna nýja
„gamla“ þjálfarann á næstu dögum.
Sumarið 2016 hjá KR skiptist í tvo
hluta. Þann hluta sem Bjarni Guð-
jónsson stýrði og skilaði KR í hóp
lélegustu liða Pepsi-deildarinnar og
þann sem Willum Þór Þórsson stýrði
þegar KR-liðið fékk langflest stig af
öllum liðum deildarinnar. Það þarf
því ekki að koma mörgum á óvart að
Willum Þór fái nú fastráðningu sem
þjálfari KR.
Það voru bara tvö lið í deildinni
sem fengu færri stig en KR þegar
Bjarni sat í þjálfarastólnum (fallliðin
Þróttur og Fylkir) og KR-liðið fékk
sex stigum meira en Íslandsmeist-
arar FH eftir að Willum Þór kom til
bjargar í júnílok.
Willum Þór Þórsson hefur þegar
skilað tveimur Íslandsmeistaratitlum
í hús. Það gerði hann 2002 og 2003
og varð þar með fyrsti þjálfari KR í
meira en sextíu ár til að vinna titil-
inn tvö ár í röð. Willum Þór hafði líka
komist í hóp með Óla B.
Jónssyni síðasta sumar
þegar hann tók aftur við
KR. Willum verður nú
fyrsti þjálfarinn frá 1970
til að fá að taka aftur við
KR-liðinu sem fastráðinn
framtíðarþjálfari.
KR-ingar biðu í 31
ár eftir Íslands-
m e i s t a r a t i t l -
inum frá 1968
til 1999 og
fjölmargir
þjálfarar
fengu að
spreyta
s i g á
Passar í meistaramótið hjá KR-ingum
Þjálfarar Íslandsmeistaraliða KR undanfarin 48 ár hafa allir átt tvennt sameiginlegt. Willum Þór Þórsson passar vel inn í þann hóp.
Atli Eðvaldsson
Gerði KR að Ís-
landsmeisturum
1999.
Lék áður 65 leiki
(18 mörk) með KR
í efstu deild.
Varð aldrei Íslands-
meistari með KR sem leikmaður.
Pétur Pétursson
Gerði KR að Ís-
landsmeisturum
2000.
Lék áður 75 leiki
(30 mörk) með KR
í efstu deild.
Varð aldrei Íslands-
meistari með KR sem leikmaður.
Íslandsmeistaraþjálfarar KR frá 1969 til 2016:
Sama leið sem gekk
svo vel fyrir sex árum
KR-ingar fara nú nánast sömu leið
og haustið 2010 en þá heppnaðist
þjálfararáðning þeirra frábærlega.
Fyrir sex árum tók Rúnar Krist-
insson við KR-liðinu í neðri hluta
deildarinnar á miðju tímabili 2010
og skilaði liðinu upp í fjórða sæti.
Rúnar hélt síðan uppteknum hætti
og gerði KR að Íslandsmeisturum
sumarið eftir. Rúnar setti sum-
arið 2010 nýtt met yfir flest stig
þjálfara á tímabili sem hann hóf
ekki með liðinu. Willum Þór sló
einmitt það met Rúnars í sumar.
Willum Þór
Þórsson
Gerði KR að Ís-
landsmeisturum
2002 og 2003.
Lék áður 120 leiki
(16 mörk) með KR
í efstu deild.
Varð aldrei Íslandsmeistari
með KR sem leikmaður.
Rúnar Kristinsson
Gerði KR að Ís-
landsmeisturum
2011 og 2013.
Lék áður 140
leiki (21 mark)
með KR í efstu
deild.
Varð aldrei Íslands-
meistari með KR sem leikmaður.
Rúnar Kristinsson stýrði
KR-liðinu í 99 leikjum, fimm
fleiri en Óli B. Jónsson gerði í
sínum skorpum með KR frá
1945 til 1970. Willum Þór
stýrði KR í 54 leikjum frá
2002 til 2004 auk 13 leikja
síðasta sumar. Willum Þór
þarf því eitt og hálft tímabil
til að verða fyrstur til að
stýra KR í hundrað leikjum í
efstu deild.
hAFnAboLTi Í fyrsta skipti í fjölmörg
ár hafði heimurinn óvenju mikinn
áhuga á úrslitaeinvígi bandaríska
hafnaboltans, World Series. Ástæð-
an er sú að þar mættust tvö lið sem
höfðu ekki unnið í ansi langan tíma.
Cleveland Indians hefur ekki
orðið meistari síðan 1948 en stuðn-
ingsmenn Chicago Cubs höfðu
beðið enn lengur, eða frá árinu
1908. Samanlagt höfðu félögin
beðið í 176 ár eftir meistaratitli. Það
varð því eitthvað undan að láta og
það gerðist eftir ótrúlega dramatík.
Vinna þarf fjóra leiki til þess að
verða meistari og fátt benti til ann-
ars en að Cleveland myndi hafa
betur er liðið komst í 3-1 í einvíginu.
Með bakið upp við vegginn náði
lið Cubs að jafna 3-3 og tryggja sér
oddaleik í Cleveland.
Ótrúlegur úrslitaleikur
Í oddaleiknum náði Cubs heima-
hafnarhlaupi hjá fyrsta manni sem
steig út á völlinn. Ótrúleg byrjun.
Cubs komst 3-1 yfir og svo aftur í
5-1. Er aðeins tvær lotur voru eftir
var staðan 6-3 fyrir Cubs og stuðn-
ingsmenn þeirra að tryllast úr
spenningi.
Í næstsíðustu lotunni náði Cleve-
land að jafna, 6-6, og þar sem ekkert
var skorað í níundu lotunni þurfti
að framlengja. Í tíundu lotunni náði
Cubs að skora tvö stig en Indians
aðeins eitt og Chicago-liðið vann
því sögulegan 8-7 sigur í hádrama-
tískum leik þar sem einnig þurfti að
fresta leik um tíma vegna rigningar.
Ekkert lið í bandarískum íþrótt-
um hefur þurft að bíða eins lengi
eftir titli og Chicago Cubs. 108 ár er
langur tími. Cubs spilaði í þremur
af fyrstu fimm World Series og vann
árin 1907 og 1908. Síðan hefur ekk-
ert gengið.
Á árunum 1910 til 1945 komst
Cubs sjö sinnum í World Series en
tapaði alltaf. Árið 1945 var síðan
bölvun lögð á félagið sem er fyrir
löngu orðin heimsþekkt.
Bölvunin fræga
Það gerði William Sianis sem átti
krána Billy Goat í Chicago. Hann
tók geitina sína reglulega með á
leiki liðsins á hinum goðsagna-
kennda heimavelli Cubs, Wrigley
Field. Í World Series var Sianis og
geitinni aftur á móti meinuð inn-
ganga á völlinn.
Svo reiður varð Sianis að hann
lagði bölvun á félagið. Sagði að
það myndi aldrei aftur ná að verða
meistari. Hann sendi meira að segja
símskeyti með bölvuninni til eig-
anda félagsins. Svo illa hefur gengið
síðan að fólk var löngu byrjað að
trúa á bölvunina sem hefur verið
kölluð „Billy Goat-bölvunin“. Er
Cubs hefur átt möguleika hefur allt
snúist í höndunum á þeim á ótrúleg-
an hátt. Þá hefur ávallt verið talað
um þessa bölvun sem hefur loksins
verið aflétt. henry@frettabladid.is
Bölvun aflétt
Ein merkasta stund í bandarískri íþróttasögu kom er
Chicago Cubs varð hafnaboltameistari í fyrsta skipti
í 108 ár. Úrslitaleikurinn var ein dramatík frá upp-
hafi til enda og endirinn í anda myndar frá Disney.
Gleði leikmanna Chicago Cubs eftir oddaleikinn var fölskvalaus. fRéttABlAðið/GEtty
Bölvunina á félagið
lagði kráareigand-
inn William Sianis sem átti
krána Billy Goat í Chicago og
tók geitina sína reglulega
með á heimaleiki liðsins.
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-B
A
3
8
1
B
3
0
-B
8
F
C
1
B
3
0
-B
7
C
0
1
B
3
0
-B
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K