Fréttablaðið - 04.11.2016, Page 20
Hrefna á það til að tala við blómin þegar hún vökvar.
Instagram-myndaveggurinn vekur athygli allra sem koma í heimsókn til Hrefnu og
fjölskyldu.
Hrefna Daníelsdóttir, sem heldur
úti heimilis- og fatablogginu href-
nadaniels.com, er fædd og uppal-
in á Akranesi og heldur þar skand-
inavískt heimili með eiginmanni
og þremur dætrum. Hún prýð-
ir það einna helst með pottaplönt-
um og telst svo til að tegundirnar
séu orðnar sautján. Aðspurð segist
hún halda mest upp á monsteruna
og friðar liljurnar.
Plönturnar setja mikinn svip á
heimili Hrefnu. Hún segir þær þó
ekki eingöngu hafa fagurfræðilegt
gildi heldur bæta þær loftgæðin og
hafa hjálpað henni við að losna við
raka í gluggum. „Ég er líka með
friðarlilju í öllum svefnherbergj-
um heimilisins enda eru þær tald-
ar hafa góð áhrif á heilsuna.“
Hrefna segist alin upp við að
hafa blóm í kringum sig og finnst
þau tilheyra. „Í upphafi búskapar
keypti ég gjarnan túlípana og rósir.
Eftir að ég eignaðist fleiri potta-
blóm hefur það hins vegar minnk-
að enda lífga þau alveg jafn mikið
upp á heimilið og hafa auk þess
þann kost að endast lengur.“
Hrefna er með blóm í öllum her-
bergjum heimilisins að þvotta-
húsinu undanskildu. „Þar er ég
bara með gerviblóm enda vantar
glugga.“
Bæta loftgæðin og gleðja augað
Lífsstílsbloggarinn Hrefna Daníelsdóttir fær ekki nóg af pottaplöntum og prýðir heimili sitt á Akranesi með hátt í
tuttugu mismunandi tegundum. Hún er líka með skemmtilegan myndavegg sem gestir hennar þreytast ekki á að skoða.
Hrefna heldur mest upp á monsteruna.
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Hrefna heldur úti lífsstílsblogginu
hrefnadan.com Blómin sjást hvert sem litið er á heimili Hrefnu.
Jukkan tekur sig vel út hjá Hrefnu.
Svefnherbergið er ekki undanskilið
þegar kemur að blómum.
Aðspurð segist Hrefna skipta
mest við blómabúðina Grósku á
Akranesi. „Svo á ég það til að kippa
með mér blómum úr Bónus og
Krónunni.“ Hún segir mikla um-
hirðu fylgja blómunum en að hún
hafi gaman af henni. „Mér þykir
vænt um blómin mín og á það til að
tala við þau um leið og ég vökva,“
segir hún og hlær. Aðrir heimilis-
meðlimir eru á sömu línu og segir
hún eiginmanninn jafnvel hugsa
enn betur um blómin. „Móðir hans
er með grænustu fingur sem ég veit
um og hann er alltaf með blóm á
pallinum á sumrin. Hann er svo að
vasast í mínum yfir vetrartímann.“
Spurð hvort hún hyggist halda
áfram að bæta við blómum segist
hún reyna að halda aftur af sér svo
hún endi ekki á að búa í gróðurhúsi.
„Ég er í smá pásu en um leið og eitt-
hvað fer eða deyr, eins og stundum
gerist, er ég fljót að bæta í safnið.“
Annað sem vekur athygli á heim-
ili Hrefnu er skemmtilegur mynda-
veggur með Insta gram-myndum
sem hún prentar út með reglulegu
millibili. „Þetta er fjölskyldu- og
minningaveggur sem flestir sem
koma í heimsókn staldra við og
skoða og þá sérstaklega vinkonur
dætra minna.“ Hrefna segist safna
myndunum inn á læsta instagram-
síðu og prenta út hjá Prentagram í
reglulegum skömmtum. „Ég hengi
þær svo upp með kennaralími og er
að verða búin að þekja heilan vegg.
Það er svo aldrei að vita nema ég
haldi áfram.“
2 FYRIR 1
Aðeins 1.490 kr.
Texas-ostborgari
með frönskum
Gildir til 15.12.2016.
Klipptu út og taktu með þér.
Grandagarði 11 • www.texasborgarar.is
Texas-ostborgari
með frönskum 1.000 kr.!
AIRWAVES-TILBOÐ
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-C
9
0
8
1
B
3
0
-C
7
C
C
1
B
3
0
-C
6
9
0
1
B
3
0
-C
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K