Fréttablaðið - 04.11.2016, Síða 24
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Innan málmiðnaðar eru margar löggiltar iðngreinar, svo sem blikksmíði, járnsmíði,
ketil- og plötusmíði, mótasmíði, málmsteypa, rennismíði, vélvirkjun, stálsmíði og
skipasmíði úr járni og stáli. NORDIC PHOTO/GETTY
Innan málmiðnaðar eru marg-
ar löggiltar iðngreinar, svo sem
blikksmíði, járnsmíði, ketil- og
plötusmíði, mótasmíði, málm-
steypa, rennismíði, vélvirkjun,
stálsmíði og skipasmíði.
Málmur er samtök fyrirtækja í
málm- og skipaiðnaði og innan fé-
lagsins eru um fimmtíu fyrirtæki.
Fyrirtæki í skipaiðnaði, fyrirtæki
sem annast mannvirkjagerð ýmis-
konar, svo sem byggingu raforku-
vera, vélaviðgerðir og vélsmíði,
framleiðslu véla og tækja fyrir
matvælaframleiðslu. Einnig fyrir-
tæki sem veita stóriðjunni þjón-
ustu. „Stálmannvirki í bygging-
um verða sífellt stærri hluti bygg-
ingaframkvæmda og þjónusta við
aðrar framleiðslugreinar er einn-
ig stór þáttur starfsemi málmiðn-
aðarfyrirtækja,“ segir Guðlaugur
Þór Pálsson, formaður Málms.
Málmur hefur starfað frá
árinu 1992. Árið 1993 kom félag-
ið að stofnun Samtaka iðnaðarins í
gegnum Samband málm- og skipa-
smiðja. Málmur er öflugur starfs-
greinahópur innan Samtaka iðn-
aðarins sem hefur þann tilgang að
vinna að hagsmunum aðildarfyrir-
tækja og efla samkeppnishæfni
þeirra og arðsemi. Félagið hefur
það að markmiði að auka vöxt og
vegsemd málmiðnaðarins. „Mark-
mið samtakanna er að auka fram-
leiðni og að menntastefna greinar-
innar sé skýr.“
Guðlaugur nefnir að málm-
iðnaður á Íslandi eigi sér langa
sögu sem meðal annars er tekin
fyrir í bókinni Eldur í afli eftir
Sumarliða R. Ísleifsson sem kom út
árið 1987. Þar er rakin saga málm-
iðnaðar á 19. öld og fyrri hluta 20.
aldar. Bókin Frá steðja til stafns
er síðara bindi af sögu málmiðnað-
ar og tekur aðallega fyrir tímabilið
1950-90 en bókin kom út árið 1994.
„Það má með sanni segja að
með vélvæðingu á Íslandi til lands
og sjávar hafi þörf og uppgangur
málmiðnaðar tekið stökk. Og hefur
málmiðnaður ávallt skipt verulegu
máli fyrir land og þjóð. Það er stað-
reynd að þær þjóðir sem búa að öfl-
ugum málmiðnaði eru þær þjóðir
sem státa af mestri hagsæld og vel-
ferð sinna þegna,“ lýsir Guðlaug-
ur og bætir við að málmiðnaður
eigi jafn mikið erindi í dag og áður.
Hann hafi þróast og náð að fylgja
kröfum markaðarins.
Málmiðnaður er tæknigrein
framtíðarinnar að sögn Guðlaugs og
ljóst að framtíðin er björt ef rétt er
staðið að málum. Þar skiptir mestu
máli að nýta þekkingu og hæfni
til að komast í fremstu röð. Slíkt
krefst skipulegrar og markvissr-
ar vinnu innan samtakanna sem
og í fyrirtækjunum. „Þörf á fleiri
starfsmönnum eykst stöðugt. Í dag
er vöntun á starfsmönnum í grein-
inni og hefur svo verið í langan
tíma. Átak er í gangi til að kynna
greinina og auka áhuga ungs fólks
enda framtíðarmöguleikar miklir
og tekjumöguleikar þar með. Auk
þess er starfsaðstaða í fyrirtækjun-
um yfirleitt til fyrirmyndar.“
Málmiðnaðurinn er
tæknigrein framtíðar
Málmiðnaður hefur skipt máli fyrir land og þjóð í gegnum tíðina. Framtíð iðnaðarins
er björt að sögn formanns Málms – samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði.
Guðlaugur Þór Pálsson, formaður
Málms.
Hlutverk IÐUNNAR fræðsluset-
urs er að bæta hæfni fyrirtækja og
starfsmanna í iðnaði. IÐAN stend-
ur fyrir mörgum áhugaverðum
námskeiðum þar á meðal á málm-
tæknisviði. Hér eru nokkur nám-
skeið sem verða í boði á næstunni.
l MIG/MAG-suða með duftfyllt-
um og massífum vír 7. nóvember
2016
l Ál og álsuða 5. desember 2016
l Logsuða 21. nóvember 2016
Námskeið tengd
málmsmíði
Vélvirki ehf. Dalvíkurbyggð
veitir alhliða þjónustu við skip báta og bíla af
öllum stærðum og gerðum.
Þjónustum fiskvinnsluna, höfnina, bændur,
bæjarbúa og alla landsmenn eftir bestu getu.
Líttu við hjá okkur og kynntu þér þjónustuna.
Vélvirki ehf.
Hafnarbraut 7, 620 Dalvíkurbyggð
sími véladeild 466 1088
sími bíladeild 466 1094 Svalir hafa unnið að mannvirkjagerð með framsæknu hugarfari og góðum
samskiptum að leiðarljósi.
Kveðja, svalir.is
Eigum til á lager ítalskt skrautjárn
sem hentar í handrið o..
Getum einnig sérpantað smíðajárn.
ÍTALSKT
SMÍÐAJÁRN
Ingi@jarnprydi.is | Gsm: 822 1717
Þjónusta Vélsmiðju Suðurlands ehf
er á breiðum grunni varðandi hefbundna
starfsemi vélsmiðju, nýsmíði, viðgerðum og
ýmiss konar viðhald, ekki síst fyrir bændur
og búalið.
Vélsmiðja Suðurlands
Selfossi • Gagnheiði 5 • 482 1980
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
MáLMIðNaðuR Kynningarblað
4. nóvember 20164
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-A
1
8
8
1
B
3
0
-A
0
4
C
1
B
3
0
-9
F
1
0
1
B
3
0
-9
D
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K