Fréttablaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 25
Þau Grétar Ólafsson vélstjóri og Mar-
grét Jónína Árnadóttir vélvirki eru
bæði fædd 1990 og hafa starfað í
véladeild Héðins frá því að námi
lauk. Þau eiga það sameiginlegt að
hafa tekið stúdentspróf áður en þau
áttuðu sig endanlega á því að vél-
tæknin heillaði meira en áframhald-
andi bóknám. „Ég var alltaf að gera
við reiðhjólin fyrir vini mína og svo
færðist dellan yfir á mótorhjól, vél-
sleða og jeppa,“ segir Grétar, sem
er vélfræðingur og 4. stigs vélstjóri
úr Vélskóla Tækniskólans. „Ég var
byrjaður í HR þegar ég áttaði mig
á því að mig langað ekki til að sitja
við tölvu í Autocad alla daga og dreif
mig þá í vélstjóranámið.“ Hann lætur
ekki þar við sitja og er nú á fullu í
viðbótarnámi í rafvirkjun.
Margrét segir að hún hafi alltaf
haft áhuga á bílum og ætlaði í bifvéla-
virkjun eftir stúdentsprófið. „En svo
áttaði ég mig á því að með námi í vél-
virkjun hefði ég miklu fjölbreyttari
atvinnumöguleika, að ég gæti unnið
jafnt við bíla sem annan vélbúnað.“
Fjölbreytt verkefni
Hún segist í raun ekki hafa haft hug-
mynd um hvað hún var að fara út í
þegar hún hóf námið. „En svo er
þetta bara alveg ótrúlega gaman
og ég er fegin að hafa farið þessa
leið.“ Hún ætlar þó ekki að láta stað-
ar numið og stefnir á frekara nám í
vélaverkfræði.
Margrét segist stundum lenda í
rökræðum við karlmenn sem telja
sig vita sitt af hverju um vélar. „Þeir
taka því nú ekkert alltaf vel þegar
ég leiðrétti einhverja vitleysuna úr
þeim,“ segir hún hlæjandi.
Þau Grétar og Margrét eru afar
ánægð með að starfa hjá Héðni.
„Þetta er svo stórt fyrirtæki að verk-
efnin eru fjölbreytt og spennandi,“
segir Grétar, sem sinnir Rolls-Royce
Marine þjónustu hjá Héðni. Meðal
verkefna hans er uppsetning og við-
hald á stýribúnaði og tölvubúnaði
og tengivinna um borð í skipum við-
skiptavina Héðins.
Fjölbreytt atvinnutækifæri
Margrét sinnir einkum viðhaldi og
viðgerðum á mótorum, spilum og
tjökkum. Hún er ekki há í loftinu en
lætur ekki trufla sig þó að stundum
hafi hún ekki krafta á við karlkyns
vinnufélaga. „Ég nota þá bara krana
meira til að létta undir með mér.“
Þau tala hlýlega um Héðin og
nefna til sögunnar góðan anda meðal
starfsmanna, frábært mötuneyti og
góða og bjarta vinnuaðstöðu í nýja
húsinu við Gjáhellu.
„Mannlegi þátturinn í samskipt-
um við yfirmenn er líka á afskap-
lega jákvæðum nótum,“ segir Mar-
grét. „Maður mætir alltaf skilningi
þegar aðstæður breytast skyndi-
lega, börnin veikjast eða eitthvað
annað kemur upp á.“ Grétar tekur
undir þetta, hann er í björgunarsveit
og fær að sinna útköllum þegar mikið
liggur við.
Mæla þau með námi og starfi
í málmiðnaði og véltækni? „Ekki
spurning. Þetta er skemmtilegt nám
og skemmtileg vinna, fjölbreytt at-
vinnutækifæri og ágætis laun.“
Véltækni er skemmtileg og gefandi
Nám í málmiðnaði og véltækni býður upp á fjölbreytt atvinnutækifæri og ágætis laun að sögn Grétars og Margrétar sem starfa bæði hjá
Héðni. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi auk þess sem andinn er góður meðal starfsmanna og góð og björt vinnuaðstaða.
Margrét Jónína og Grétar starfa í véladeild Héðins. MYND/GVA
Rolls-Royce Marine
Service Provider
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is
Kynningarblað MálMiðNAður
4. nóvember 2016 5
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
0
-A
1
8
8
1
B
3
0
-A
0
4
C
1
B
3
0
-9
F
1
0
1
B
3
0
-9
D
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K