Fréttablaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 26
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
„Ég er alin upp innan um vélar.
Pabbi er vélvirki og vinnur við
þetta. Ég fékk oft að koma með
honum í vinnuna og var þá að græja
eitthvað og gera á verkstæðinu. Ég
fékk aðeins að smíða en var samt
aðallega að gera við,“ segir Ragn-
hildur Halla Þórunnardóttir, nem-
andi í gunndeild málm- og véltækni-
greina við Verkmenntaskólann á
Akureyri.
Ragnhildur hóf nám í haust og er
ánægð með skólann. Fáar stelpur sé
þó að finna í deildinni en það trufl-
ar hana ekki neitt.
„Skólinn gengur bara vel,
allavega enn þá. Þetta er mjög
skemmtilegt nám og stemningin
er fín í bekknum,“ segir Ragnhild-
ur. „Við erum bara þrjár stelpur í
allri grunndeild málmiðna, hinar
tvær eru eldri en ég og ég þekki
þær ekkert. Mér finnst ekkert erf-
itt að vera eina stelpan en það getur
verið krefjandi. Vinkonur mínar
eru flestar á náttúrufræðibraut,
hestabraut, íþróttabraut og á félags-
fræðibraut.“
Hvers konar verkefni eruð þið
að fást við í skólanum? „Náminu
er skipt niður í nokkra flokka en í
málmsmíðinni erum við til dæmis
að smíða skaft á hamar og blikk-
kassa,“ segir Ragnhildur.
Ertu búin að ákveða hvað tekur
við eftir Verkmenntaskólann? „Mig
langar að fara til Noregs eða til ein-
hvers af Norðurlöndunum og læra
iðnaðarverkfræði.“
Þegar Ragnhildur er ekki í skól-
anum þeytist hún um á krossara.
Hún segir motocross-sportinu
fylgja heilmiklar viðgerðir sem hún
sinnir á verkstæðinu ásamt pabba
sínum, sem einnig er í sportinu.
„Við pabbi erum aðallega að taka
í sundur varahluti og fleira, í bíla og
hjól en ég á krossara og það fylgir
því sporti dálítið að græja það. Ég
á Suzuki rmz 250 fjórgengis, 2005
árgerð. Ég byrjaði í moto crossinu
í haust eða um sama leyti og ég
byrjaði í skólanum. Ég er ekkert að
keppa eða neitt slíkt, þetta er bara
hobbí hjá mér. Ég er með pabba í
þessu en hann á líka hjól. Við förum
yfirleitt upp í sveit til ömmu og afa
á Tjörnesi að hjóla, en ég er frá
Húsavík,“ segir Ragnhildur. „Fyrir
utan motocrossið eru áhugamálin
frjálsar íþróttir og snjósleðar og
svo allt sem tengist því og vera með
vinum mínum og fjölskyldu.“
Á vefsíðu Verkmenntaskólans á
Akureyri má lesa viðtal við Ragn-
hildi.
„Skólinn gengur bara vel, allavega enn þá. Þetta er mjög skemmtilegt nám og
stemningin er fín í bekknum.“
Stefnir á iðnaðarverkfræði í Noregi
Ragnhildur Halla Þórunnardóttir hóf nám í grunndeild málm- og véltæknigreina við Verkmenntaskólann á Akureyri í haust. Hún segir
námið skemmtilegt og stefnir á nám í iðnaðarverkfræði í einhverju Norðurlandanna í framhaldinu. Í frístundum þeytist hún um á krossara.
„Ég á Suzuki rmz 250 fjórgengis, 2005
árgerð. Ég byrjaði í motocrossinu í
haust.“
myNd/RagNHilduR Halla ÞóRuNNaRdóTTiR
„Pabbi er vélvirki og vinnur við þetta. Ég fékk oft að koma með honum í vinnuna og
var þá að græja eitthvað og gera á verkstæðinu.“ myNd/óSkaR ÞóR HalldóRSSoN
Við pabbi erum
aðallega að taka í sundur
varahluti og fleira, í bíla
og hjól en ég á krossara
og það fylgir því sporti
dálítið að græja það.
Ragnhildur Halla Þórunnardóttir
Plast tappar
Glerfestingar
Fánastangir
Fánaborgir
Fjaðurstál
Málmtækni er þjónustufyrirtæki í málm- og plastiðnaði
Helstu vöruflokkar
Málmtækni HF I Vagnhöfði 29 I 110 Reykjavík I 580 4500 I www.mt.is
Ryðfrítt stál
303
304
316 & fl.
Plötur
Stangir
Fittings
Ál
5754
6082
6061
7075
Plötur
Stangir
Beygjur
Gataplötur
Ál
Klæðningar og
undirkerfi
Litaðar ál
plötur
Plast
PEHD
300
500
1000
POM
PA
PTFE
PC
PET
PP
PEEK
PVC
Járn
Galv
Rafgalv
Kaldvalsað
Heitvalsað
Aluzink
Poly stál
Loftsíur
F3
F4
F5
F7
F9
Paintstop
Hepa
Dúkar
Pappasíur
Rammar
Bandsagarblöð
Eir
Messing
Blý
Zink
málmiðNaðuR kynningarblað
4. nóvember 20166
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-A
6
7
8
1
B
3
0
-A
5
3
C
1
B
3
0
-A
4
0
0
1
B
3
0
-A
2
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K