Fréttablaðið - 04.11.2016, Qupperneq 28
Járnsmíði frá
fyrstu tíð
Málmsmíði er fjölbreytt atvinnu
grein. Innan greinarinnar eru stál
smiðir, rennismiðir, blikksmiðir og
málmsuðumenn ásamt málmsteypu
mönnum. Atvinnumöguleikar eru
miklir en þetta eru fagstörf sem eiga
skildgreindar námsbrautir í fram
haldsskólakerfinu. Málmsmíði er
hluti innan VM, félags vélstjóra og
málmtæknimanna.
Málmsmíði hefur þekkst á Íslandi
frá örófi alda þrátt fyrir að hvorki
nytjamálmar né steinkol séu í jörðu.
Landsmönnum tókst engu að síðu
að smíða talsvert af nauðsynlegustu
áhöldum úr málmi ásamt fögrum
listgripum, eins og fram kemur á vef
Þjóðminjasafnsins. „Margar fornar
smíðaaðferðir sem enn héldust fram
eftir 20. öld voru nánast hinar sömu
og snemma á járnöld. Það sést meðal
annars af myndum á rúnasteinum
frá víkingaöld og enn eldri fornleifa
fundum. Það þarf vart að efa að Ís
lendingar hafi fengizt við járnsmíðar
frá fyrstu tíð og að ýmsir landnáms
menn hafi verið járnsmiðir góðir.
Menn gátu ekki lifað í landinu án
járns og annarra málma til smíða og
hafa því fljótt þurft að smíða margt
til búa sinna, einkum úr járni. Vafa
laust voru margir það sem síðar var
kallað búhagir, gátu smíðað það
sem þurfti til daglegs brúks, bæði úr
málmi og tré.
Járn var reyndar lengi dýrt og oft
torfengið fyrr á öldum og var því
sparað svo sem unnt var. Marg
ir brúkshlutir voru gerðir úr tré einu
saman, sáir trégyrtir og kistlar geir
negldir eða tréseymdir, jafnvel voru
skip tréseymd að hluta. Tvennt þurfti
til járngerðar á Íslandi, mýrarrauða
og viðarkol,“ að því er fram kemur á
vefnum www.thjodminjasafn.is.
Norðurlandameistaramót eldsmiða fer fram
annað hvert ár og skiptast löndin fimm á að halda
það. Það var síðast haldið í Firskars í Finnlandi
á síðasta ári og tóku nokkrir Íslendingar þátt í
mótinu.
Íslensku keppendurnir stóðu sig vel á mótinu.
Beate Stormo frá Kristnesi í Eyjafirði vann í flokki
meistara en þess má geta að flokkurinn er ætl
aður atvinnumönnum en Beate er bóndi. Einar
Gunnar Sigurðsson keppti í flokki sveina og lenti
í fjórða sæti og Ingvar Matthíasson keppti í flokki
ungliða og hreppti annað sætið.
Keppendur fá að vita smíðaverkefni hvers móts
með dags fyrirvara. Að þessu sinni áttu þeir að
framleiða tölustafi og fengu keppendur fjóra tíma
til að klára verkið.
Aðalmarkmið Norðurlandameistaramótsins er
að viðhalda eldsmíðahefðinni í norrænu löndunum
ekki síst svo þessi undirstöðugrein deyi hreinlega
ekki út. Einnig snýst mótið um að styrkja samvinnu
eldsmiða í löndunum fimm og ekki síst að hvetja
og styrkja yngri eldsmiði til að afla sér sem víðtæk
astrar reynslu til að viðhalda gæðum í greininni.
Það eru tveir finnskir eldsmiðahópar sem skipu
leggja mótið, Suomen Sepät ry og Taidesepät ry,
en það verður næst haldið á Íslandi árið 2023.
Félagið Íslenskir eldsmiðir var stofnað árið
2009 og er með vefinn www.eldsmidir.net.
Eldsmiðir kEppa
Þjóðminjasafnið
Beate Stormo
frá Kristnesi
í Eyjafirði
vann í flokki
meistara.
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
Hardox harðhausar
Grjótmulningshörpur
Kurlhnífar
Kerskóflur
Toghlerar
Ruslagámar
Ýtutennur
Malarflutningspallar
Grjótflutningspallar
Ripperar
Skerar
Sanddælurör
Meðal þess sem Héðinn smíðar og endurnýjar með Hardox
slitstáli má nefna:
Héðinn hf. er eina íslenska fyrirtækið í “Hardox Wearparts” þjónustunetinu.
Þessa viðurkenningu veitir SSAB, framleiðandi Hardox, einungis þeim fyrirtækjum
sem standast ítrustu kröfur um þekkingu, tækjakost, lager og
vinnubrögð við vinnslu á Hardox slitstáli. Ávallt til á lager
Hardox í þykktum frá 4 mm upp í 50 mm.
málmiðnaður Kynningarblað
4. nóvember 20168
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-B
A
3
8
1
B
3
0
-B
8
F
C
1
B
3
0
-B
7
C
0
1
B
3
0
-B
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K