Fréttablaðið - 04.11.2016, Side 30
Hollur matur og hreyfing skipta
mestu máli hjá Söru Snædísi
Ólafsdóttur, verkefnisstjóra og
jógakennara, þegar kemur að
heilbrigði. „Ég held að það sé svo
margt sem getur stuðlað að heil-
brigði hjá fólki en þessir grunn-
þættir geta gert kraftaverk og
þess vegna reyni ég eftir fremsta
megni að vanda það sem ég set
ofan í mig og að hreyfa mig eins
mikið og ég get. Það sem mér
finnst líka skipta máli er að láta
sér líða vel og að vera ánægður
og sáttur við sjálfan sig,“ segir
Sara sem hér ljóstrar upp ýmsu
um sinn lífsstíl.
Hvað færðu þér í morgunmat? Ég
fæ mér alltaf það sama! Hafra-
graut með chia-fræjum og hör-
fræjum, smá lífrænt hnetusmjör,
rúsínur eða döðlur, kaffibolla
og vítamín. Þessi samsetning
hefur ekki enn svikið mig, þess
vegna er ég ekkert að breyta út
af vananum.
Uppáhaldsæfingin? Ég kenni jóga
hjá Yoga Shala og Hreyfingu og
æfi mikið jóga sjálf og finnst fátt
jafn gott og að gera góða jóga-
æfingu. Þá líður mér vel bæði
líkamlega og andlega á meðan
á æfingu stendur og mörgum
klukkutímum eftir að henni
lýkur. Ég fór svo vel út fyrir
þægindarammann í sumar, en
kærastinn minn sem er mikill
CrossFit maður plataði mig á
byrjendanámskeið hjá CrossFit
Reykjavík. Það kom skemmtilega
á óvart og hef ég verið að æfa það
inn á milli síðan.
Hefur þú stundað íþróttir lengi?
Já, ég byrjaði þriggja ára í ballett
og hef stundað einhvers konar
hreyfingu síðan. Ég æfði ballett
og nútímadans þar til ég varð 24
ára og síðan tók jóga og önnur
hreyfing við.
Hvað finnst þér gott að fá þér í
kvöldmat? Mér finnst fátt betra
en fiskur með góðu meðlæti, til
dæmis salati og sætum kartöflum.
Ef ég fæ mér eitthvað spari þá er
það hvítlaukssteiktur humar.
Hvað finnst þér gott að fá þér
í millimál? Ég fæ mér yfirleitt
banana eða epli í millimál. Mér
finnst einnig gott að vera með
döðlur eða hnetublöndu í töskunni
minni ef ég er í vinnunni eða
mikið á hlaupum.
Hvað færðu þér þegar þú ætlar að
gera vel við þig? Ég myndi fá mér
heimatilbúið popp með kókosolíu
og sjávarsalti, það klikkar aldrei.
Ertu morgunhani eða finnst þér
gott að sofa út? Ég er svona mitt
á milli. Ég er ekki að rífa mig
á lappir fyrir allar aldir en svo
finnst mér tímasóun að sofa of
lengi líka.
Drekkur þú kaffi/koffíndrykki? Já,
ég drekk svona 1-2 kaffibolla á
dag en fyrir mitt leyti er morgun-
bollinn alveg nauðsynlegur og ég
vakna ekki almennilega fyrr en
ég hef drukkið hann. Svo veltur
á ýmsu hvort ég fái mér annan
bolla yfir daginn eða ekki.
Ertu nammigrís? Nei, ég myndi nú
ekki flokka mig sem nammigrís
en mér finnst mjög gott að fá mér
súkkulaði af og til. Gott súkku-
laði og rauðvín er samt skotheld
blanda með góðum vinkonum.
Hvernig er dæmigerður dagur
hjá þér? Ég er svo heppin að
lifa mjög fjölbreyttu lífi þessa
dagana en ég lauk nýverið
sumarstarfi sem flugfreyja hjá
Icelandair og á næstu vikum
byrja ég sem verkefnastjóri yfir
fjármálaráðstefnu og rekstrar-
stjóri hjá Yoga Shala. Við fjöl-
skyldan vöknum yfirleitt um
klukkan átta, klæðum okkur
svo í rólegheitum og síðan er
ferðinni heitið í leikskólann. Þó
hann sé ekki nema þrjár mínútur
í burtu tekur ferðalagið alltaf
töluvert lengri tíma þar sem
Áróra þarf að skoða og sýna
okkur allt sem hún upplifir á
leiðinni sem við erum eiginlega
jafn spennt yfir og hún.
Ég fæ mér grautinn minn og
kaffibollann og fer yfir fréttir
og tölvupóstinn en þessi stund
er mjög heilög hjá mér. Ég
kenni einkatíma í jóga klukk-
an tíu og svo kenni ég annað-
hvort í Yoga Shala eða Hreyf-
ingu í hádeginu. Eftir hádegi
fer ég að útrétta, hitta vinkonur
eða undir bý þá vinnu sem fram
undan er. Klukkan fjögur sæki
ég eða kærastinn minn Áróru í
leikskólann og við förum heim
að leika okkur eða kíkjum í
heimsóknir. Tíminn milli fjögur
og sjö er alveg svakalega dýr-
mætur að mínu mati og reynum
við fjölskyldan alltaf að njóta
hans eins vel saman og hægt er.
Hún fer snemma að sofa eða oft-
ast um átta leytið og þá eigum
við allt kvöldið út af fyrir okkur
til þess að gera það sem við vilj-
um.
Hvernig er dæmigerð helgi hjá
þér? Helgarnar eru svo dýr-
mætar að mínu mati og reynum
við fjölskyldan yfirleitt að nýta
þær sem best í að gera eitthvað
saman, heimsækja vini eða ætt-
ingja eða bara slappa af saman
heima.
Ég kenni jóga annan hvern
laugardagsmorgun í Yoga Shala og
kærastinn minn fer oft á CrossFit
æfingu á laugardögum. Við förum
stundum í brunch til foreldra
minna, förum á róló eða í göngu-
túr niður í bæ og svo heimsæki ég
oft vinkonur mínar. Okkur er oft
boðið í mat um helgar en kærast-
inn minn er afbragðskokkur og
hann töfrar líka oft fram dýrindis
máltíðir um helgar.
Fátt bEtra En góð jógaæFing
Jógakennarinn Sara Snædís Ólafsdóttir reynir að hreyfa sig reglulega og vandar valið þegar kemur að mataræði.
Hún er enginn nammigrís en þykir gott að fá sér stundum súkkulaði og rauðvín sem sé skotheld blanda.
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Sara Snædís byrjaði að æfa ballett þegar hún var þriggja ára. Hún æfði ballettinn og nútímadans þar til hún var 24 ára og síðan tók jóga og önnur hreyfing við.
MYND/EYÞÓR
&spUrtsvarað
Icetrack ehf. Sími 773 4334
netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is
MICKEY THOMPSON
jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi
M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur.
Stærðir 32” - 54”
J E P PA D E K K
BAJA CLAW STZ MTZDEEGANATZp3
Við kynnum jólalitina frá
Chanel í Sigurboganum
3. – 5. nóvember.
Gréta Boða verður
á staðnum og veitir
faglega ráðgjöf.
Verið velkomin.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-C
D
F
8
1
B
3
0
-C
C
B
C
1
B
3
0
-C
B
8
0
1
B
3
0
-C
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K