Fréttablaðið - 04.11.2016, Qupperneq 34
„Við vildum blása í lúðra, fagna þessu
stórafmæli með einhverjum hætti og
þetta varð niðurstaðan, að hafa skemmti-
lega sýningu á stað þar sem almenningur
gæti hæglega séð hana,“ segir Lárus Karl
Ingason, formaður Ljósmyndarafélags
Íslands. Félagið heldur upp á 90 ára
afmæli sitt á þessu ári og blæs af því til-
efni til heljarinnar sýningar sem verður
opnuð í Kringlunni klukkan 13 í dag.
Ljósmyndarafélag Íslands var stofnað
árið 1926 af átján starfandi atvinnuljós-
myndurum sem höfðu fest sig í sessi
í íslensku samfélagi. Lárus Karl segir
greinina hafa farið í gegnum miklar
breytingar á þessum níutíu árum sem
félagið hefur verið starfandi og sífellt
blasi nýjar áskoranir við ljósmyndurum.
Það eigi ekki síst við hinn tæknilega
hluta ljósmyndunar. „Tæknin ferðast
hratt og það þarf að bregðast fljótt við
nýjustu hræringum í tæknimálum, en
það eru alltaf sömu gildin sem búa í
höfðinu á okkur varðandi ljósmyndum.
Verkefnið er alltaf að láta myndina
ljóma á einhvern hátt,“ segir Lárus Karl
og nefnir meðal annars til sögunnar þær
miklu framfarir í gæðum sem hafa orðið
í stafrænni tækni á undanförnum árum.
Myndirnar á sýningunni í Kringlunni
eru teknar á hinar ýmsu vélar og sumar
þeirra á fyrstu stafrænu myndavélarnar
sem komu á markað um aldamótin. „Þá
voru „fælarnir“ mjög litlir og þær myndir
þola þar af leiðandi ekki mikla stækkun.
Við þurftum til að mynda að taka tillit
til þess, en sumar þessara mynda á sýn-
ingunni eru líka teknar á filmu,“ útskýrir
Lárus Karl.
Öllum starfandi ljósmyndurum var
boðið að senda inn myndir á sýning-
una, sem sérstök valnefnd valdi svo
úr, en þátttaka var ekki bundin við þá
sem eru félagar í Ljósmyndarafélagi
Íslands. Alls sendu 45 ljósmyndarar inn
milli 200 og 300 myndir og verða um 30
þeirra á sýningunni í Kringlunni. „Þetta
var ærið verkefni fyrir valnefndina og
myndirnar sem voru sendar inn eru afar
fjölbreyttar og ólíkar. Þær sem verða á
sýningunni eiga það allar sameiginlegt
að hafa einhvers konar sérstöðu,“ segir
Lárus Karl að lokum og hvetur almenn-
ing til að bregða sér í Kringluna og berja
sýninguna augum. kjartang@frettabladid.is
Að láta myndina ljóma
Ljósmyndarafélag Íslands fagnar 90 ára afmæli félagsins með ljósmyndasýningu í Kringl-
unni. Alls sendu 45 atvinnuljósmyndarar inn myndir á sýninguna sem verður opnuð í dag.
Lárus Karl Ingason, formaður Ljósmyndarafélags Íslands, segir hugsunina að baki sýning-
unni í Kringunni vera þá að færa ljósmyndirnar nær almenningi. FréttabLaðIð/GVa
Tæknin ferðast hratt og
það þarf að bregðast
fljótt við nýjustu hræringum í
tæknimálum, en það eru alltaf
sömu gildin sem búa í höfðinu á
okkur varðandi ljósmyndun
Leonard Slye, sem síðar varð þekktur
undir nafninu Roy Rogers, fæddist
þennan dag árið 1911 í Cincinnati í Ohio.
Rogers kom til Hollywood árið 1920 og
starfaði þá við ávaxtatínslu. Snemma á
fjórða áratugnum gekk hann til liðs við
sönghópinn Hollywood Hillbillies, sem
söng fyrst í útvarp árið 1931. Annar söng-
hópur sem Rogers söng með var fenginn
til að leika í ódýrum vestra og upp frá
því fékk Rogers æ stærri hlutverk í bíó-
myndum. Hann heillaði lýðinn ásamt
hesti sínum, Trigger, og mótleikkonu,
Dale Evans, og varð brátt einn af tíu
launahæstu leikurum Hollywood.
Þegar eiginkona Rogers lést árið 1946
kvæntist hann leikkonunni Dale Evans,
sem leikið hafði á móti honum um
árabil.
Rogers stjórnaði einnig vinsælum
útvarpsþætti, The Roy Rogers Show,
sem var breytt í sjónvarpsþátt árið 1951.
Hann varð einn auðugasti maður Holly-
wood og átti fasteignir, nautgripi, hesta,
ródeósýningar og veitingastaðakeðju.
Roy Rogers lést árið 1998.
Þ ETTA g E R ð I ST : 4 . n óV E M b E R 1 9 1 1
Roy Rogers fæddist
1520 Stokkhólmsvígin hefjast eftir að Kristján 2. hefur verið
krýndur konungur Svíþjóðar í Stokkhólmi.
1869 Tímaritið Nature kemur fyrst út í Bretlandi.
1897 Fjórir bátar farast á Ísafjarðardjúpi í ofsaveðri og einn á
Skjálfanda og með þeim tuttugu og tveir menn.
1942 Áhöfn Brúarfoss bjargar 44 mönnum úr áhöfn enska skips-
ins Daleby, sem sökkt var á milli Íslands og Bandaríkjanna.
1966 Áin Arnó flýtur yfir bakka sína við Flórens og færir hálfa
borgina í kaf.
1969 Tveir strætisvagnar skella saman á Skúlagötu í Reykjavík og
sautján farþegar slasast.
1995 Yitzhak Rabin, forsætisráðherra Ísraels, er skotinn til bana af
öfgasinnuðum Ísraela.
2008 Barack Obama er kosinn forseti Bandaríkjanna og verður þar
með fyrstur þeldökkra manna til að gegna því embætti.
Merkisatburðir
Systir mín, mágkona og móðursystir,
Lilja Sigurðardóttir
hjúkrunarkona og ljósmóðir,
sem lést 24. október verður jarðsungin
frá Aðventkirkjunni í Reykjavík,
mánudaginn 7. nóvember kl. 12. Blóm og
kransar afþökkuð. Þeim sem vilja minnast
hennar er vinsamlegast bent á Líknarfélagið Alfa, bankanr.
0327 26 1948 kt. 651114-0120.
Guðrún Sigurðardóttir Valur Steinn Þorvaldsson
Sigríður Þóra Valsdóttir Sigurður Már Valsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Bjarni Halldór Magnússon
Vestursíðu 24, Akureyri,
lést 22. október. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri fyrir
góða umönnun.
Helena Guðlaug Bjarnadóttir Yngvi Hrafn Pétursson
Baldur Bjarnason Sigríður Björk Ævarsdóttir
Ásbjörn Garðar, Arnór Kári, Áróra Hrönn, Egill Váli,
Embla Björk, Írena Lovísa
Guðrún Magnúsdóttir
Hallfríður Magnúsdóttir
Áslaug Magnúsdóttir
Yndisleg eiginkona mín,
móðir, amma og langamma,
Sigrún Gyða
Sveinbjörnsdóttir
sem lést 26. október síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju
laugardaginn 5. nóvember kl. 13.00.
Ólafur Th. Ólafsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir og systir,
Sigurborg „Bogga“
Sigurbrandsdóttir Railton
Columbia MO, USA,
lést 31. október sl. á University
of Missouri Hospital and Clinics,
Bandaríkjunum.
Norman Railton
Warren Kristjon Railton
Alda Særós Þórðardóttir
Ástkær sambýliskona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Klara Ólafsdóttir
sjúkraliði,
áður til heimilis að Núpasíðu 8e,
Akureyri,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð mánudaginn 31. október, verður jarðsungin
frá Langholtskirkju þriðjudaginn 8. nóvember kl. 13. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið
Lögmannshlíð.
Aðalgeir Aðalsteinsson
Jón Jónsson María Elsa Erlingsdóttir
Vilborg Jónsdóttir Ari Þór Jóhannesson
Þorsteinn Yngvi Jónsson Virginia Galicia Isorena
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
mín, amma og langamma,
Sólrún Bentsý
Jóhannesdóttir
hjúkrunarheimilinu Ísafold,
Garðabæ,
sem lést á Ísafold föstudaginn 28. október
síðastliðinn, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í
Garðabæ mánudaginn 7. nóvember kl. 13.00. Blóm og
kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Alzheimersamtökin.
Siggeir Stefánsson Hrafngerður Ösp Elíasdóttir
Elsa Stefánsdóttir
Jóhannes Stefánsson
barnabörn og fjölskyldur.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r18 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
TímamóT
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-B
5
4
8
1
B
3
0
-B
4
0
C
1
B
3
0
-B
2
D
0
1
B
3
0
-B
1
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K