Fréttablaðið - 04.11.2016, Síða 42
Spáin gildir fyrir nóvember
Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKlingStjörnuspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburinn Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
21. júní–22. júlí
Góður vetur fram undan
Ég er svo dásamlega fegin því að geta sagt það
að allt sé að verða svo dásamlegt hjá þér. Því
þegar ég skrifa þetta beini ég líka þessum orð-
um til mín. Ég á það stundum til að senda þér
svolítið erfiða spá því ég er að segja þetta til mín.
Ég les stjörnuspána mína alltaf þegar hún kemur
út og verð alltaf jafn hissa. Ekki líta til baka þótt
það verði einhverjir smá hnökrar á ástinni, þú
átt það til að vantreysta í þeim málum. Nú áttu
að segja, ég treysti á ástina. Þar sem þú elskar
af öllu hjarta þá tekur það þig aðeins lengur að
græða hjartasár heldur en flest önnur merki. Það
er að koma inn í líf þitt mikil heppni og það er
jafnvel þannig að ég geti sagt að það er komin
mikil heppni. Til þess að þessi orka komi til þín,
þarftu að vita hvað þú vilt. Hjá sumum ykkar
hefur verið stöðnun og ef ég er að tala við þig
er það út af því að þú veist ekki hvað þú vilt.
Annars er mikill hraði í lífinu í kringum þig. Og
lífið gengur betur og auðveldar upp heldur en
nokkurn tíma fyrr. Ég veit að þetta er dásamleg
spá fyrir Nautið. En þessi vetur mun leggjast vel í
þig og þú átt að vera hamingjusamt.
Notaðu lipur og ljúf orð
Lífið gengur í miklum bylgjum hjá þér, sérstak-
lega í fyrri parti lífsins. En það er bara til þess
að þú þroskist betur og komir út úr skelinni. Þú
hefur þá sterku orku sem er að koma til þín til
að finna þér nýja leið til þess að láta draumana
þína rætast. Þú hefur tilhneigingu til að hafa allt
fullkomið og það setur þig í alltof mikla keppni
og baráttuhug. Þú þarft að nota lipurð og ljúf
orð til að fá fólk til að fylgja þér eftir. Þegar
desembermánuður hefst, þá ertu kominn á svo
fallegan stað að þér finnst þú vera í himnaríki.
Hversu hressandi er það? Þér finnst þú eiga að
vera svo skyldurækinn og passa allt í kringum þig
en á móti langar þig að æða út í óvissuna og búa
til ævintýri. Þú átt eftir að geta sameinað þetta
tvennt núna og þá mun ekkert stoppa þig. Þú
þarft að magna þinn karakter upp og þegar þú
skilur það, þá sérðu að þessi ferð út í óvissuna
mun færa þér svo miklu betri tíð og þú verður
svo ánægður með sjálfan þig – og það er það
eina sem þú þarft til að halda í hamingjuna.
Tími fyrirgefningar
Þú munt alltaf finna þér eitthvað skemmti-
legt að gera. Alveg sama hversu oft þú dettur
á rassinn í drullupollinn, þá stendur þú strax
upp, þú ert eins og búmerang. Þú ert að plana
og skoða og breyta í kringum þig og það gefur
þér þá liti eða litauðgi sem þú þarft að hafa. Þú
ert tengdur umhverfi þínu og það getur haft
mikil áhrif á þig ef óreiða er í kringum þig. Ástin
birtist í mörgum myndum hjá þér. Þú þarft að
hafa traustan og stöðugan maka, elskhuga eða
ástkonu svo taktu enga áhættu í þessum efnum
og gefðu engan afslátt af ást þinni. Þú hefur
trú á því góða í lífinu og það er það sem hjálpar
þér að sigra þá sem þú telur vera andstæðinga
þína. Þegar þú skoðar betur, þá var þetta fólk
sem hefur reitt þig til reiði mögulega með lítið
sjálfstraust. Ég vil bara segja að þú þarft bara
að fyrirgefa því. Sem er akkúrat sá tími sem þú
ert að fara inn í. Tími fyrirgefningar, uppgjörs,
hreinsunar og skilyrðislausrar ástar. Þú átt eftir
að hafa áhrif með gjörðum þínum svo það
skiptir engu máli þótt fólk muni reyna að setja
illgresi fyrir framan þig. Þinn tími er núna.
Eitt skref í einu
Elsku frábæra Ljónið mitt. Það býr mikill stríðs-
maður í þér. Þú hefur afl og orku á við sjávar-
föllin. Það eina sem þú þarft að tengja við þig
til að hamingjan sé allt í kringum þig er að sýna
öllum ást, virðingu, hjálpsemi og kærleika. Það
gerir þig að þessu mikilmenni sem býr í þér. Það
er mjög mikilvægt að þú skoðir hvar þú býrð. Þú
þarft að vera rólegt og öruggt í umhverfi þínu
til þess að þú getir fengið það sjálfstraust sem
þú þarft. Flutningar eru til einskis nýtir fyrir þig,
fyrr en þú ert farið að elska þar sem þú ert. Ef
þú þolir ekki vinnuna þína, þá færðu ekki betri
vinnu. Ef þú þolir ekki heimili þitt, þá færðu
ekki betra heimili og ef þú þolir ekki maka þinn
o.s.frv. Lærðu að þykja vænt um og meta það
sem þú hefur í kringum þig, finndu út hvað er
jákvætt við þína stöðu í dag. Taktu bara eitt skref
í einu.
Aldrei gefast upp
Þú þarft á öllum þínum krafti að halda til að
komast þangað sem þú vilt fara. Þú þarft nauð-
synlega að vera með fókusinn réttan og vera
í góðu formi til þess að allt gangi vel. Þú ert
að nýta þér kraft sem er að koma til þín til að
byggja þig upp eftir töluvert mikið álag undan-
farið. Það er svo mikilvægt að passa sig á öllum
öfgum svo sem eins og í áfengisneyslu; þótt
það fari þér dásamlega vel að vera með glas í
hendi, þá er það taugakerfi þitt sem höndlar það
ekki. Lífið er langhlaup og mottóið þitt næsta
mánuð er að gefast aldrei upp. Það er tákn sigur-
vegarans og hann býr í þér. Ef þér finnst það sem
þú ert að gera rosalega leiðinlegt og það er yfir
þér þungi út af því, gefðu þér þá leyfi til að skipta
um skoðun, því það má svo sannarlega og þetta
er rétti tíminn til þess. Ég veit að kannski finnst
þér þetta vera hálf ömurleg spá en ég er bara
að skýra fyrir þér að fyrir 10 árum gat landsliðið
okkar í fótbolta ekki nokkurn skapaðan hlut og
engan grunaði að það mundi rústa Englend-
ingum á EM. Það sem ég er að reyna að segja þér
er að þú þarft að hafa svolítið fyrir þessu.
Ekkert mun stoppa þig
Þú ert að byrja tímabil sem varir í 12 mánuði
Það er mjög mikilvægt að þú skoðir hvað er
að ganga vel þessa stundina því það mun
margfalda sig á þessu tímabili. Þú ert á vissum
upphafsreit í lífi þínu þótt þú gerir þér ekki
alveg grein fyrir því. Allar hindranir geta gert þig
ótrúlega pirraða og þá magnarðu upp reiði sem
gæti snúist gegn þér. Teldu upp að 10 áður en þú
segir eitthvað sem þú gætir séð eftir. Og mundu
að orðið „fyrirgefðu“ er fallegt orð. Lífsfylling er
fólgin í litlu hlutunum í kringum þig. Farðu að
taka betur eftir þeim, það gerir þig sterkari. Þú
munt fara hnarreist áfram og enginn mun sjá
á þér hvað þú hefur farið í gegnum og það er
akkúrat þetta sem gerir þinn x-faktor, því verk-
efnin í lífi þínu næstu mánuði munu öll leysast
betur með þig svona hnarreista, það er lykillinn
að þeim sigrum sem þú vilt vinna. Ekki horfa
niður, horfðu beint fram, þá sérðu ljósið. Það er
skínandi skært og þá mun ekkert stoppa þig.
Spennandi tímabil
fram undan
Þú ert að skríða inn í mjög spennandi tímabil
og það sem virðist gerast er að örlögin grípa í
taumana og beina þér í rétta átt svo þú verður
hissa. Þetta er magnað tímabil sem þú átt fram
að jólum, í það minnsta. Og þó að þér finnist þú
ekki komast út úr völundarhúsinu sem þú ert í,
þá er það bara á næstu dögum eða vikum sem
hlutirnir munu skýrast og þú finnur að þú ert
kominn í miklu öruggari höfn. Láttu ástina finna
þig, ekki leita að henni. Því þá ertu ekki heima
þegar hún bankar. Það er líka gott fyrir ykkur sem
eruð búin að lenda í ástarvitleysu að íhuga að
ná í maka sem er kannski ekki alveg þín týpa. Því
það hefur ekki virkað fyrir þig að ná í þínar týpur,
svo breyttu til – þá gengur betur! Og fyrir þig,
ef þú ert í föstu sambandi skaltu beina ástríðu
þinni og ást í þá átt, vegna þess að uppgjör í ásta-
málum núna eru ekki vænleg. Tilgangur lífsins er
að leika sér og jörðin er leikvöllur. Þessu muntu
sérstaklega átta þig á, fyrr en þig grunar.
Haltu áfram á miklum hraða
Ég vil að þú sjáir það skýrt að það fer þér betur
að vera óstýrilátur en að fara eftir kerfinu í
kringum þig. Það eiga náttúrulega að vera ein-
hverjar reglur eins og ef það er hægri umferð
í landinu, þá ekur þú ekki á vinstri akrein, og
að vera tillitsamur við fólkið í kringum sig.
Stundum finnst þér eins og þú vitir ekki ennþá
hvað þú ætlar að gera þegar þú verður stór. Þú
þarft ekki að vita það, því þú ert búinn að leggja
góðan grunn að framtíð þinni. Svo haltu bara
áfram á eins miklum hraða og þú getur, því þá
líður þér best. Það er best fyrir þig á næstunni
að drífa af hluti sem þú hefur ekki sinnt nógu
vel og hvíla þig svo aðeins meira. Sofa betur og
alls ekki fara í einhverja megrunarkúra eða setja
ofurkraft í einhverja hreyfingu eða þess háttar.
Svo taktu lífinu fagnandi því það er að gefa þér
gjafir. Þolinmæði gagnvart öðrum í kringum þig
og sjálfum þér eru lykilorð til þess að allt gangi
eins vel og þú þorir að vona.
Ástin elskar þig
Það sem skiptir mestu máli fyrir þig er að hafa
sterka sjálfsmynd. Þú átt það til að fara aðrar
leiðir en fólkinu í kringum þig finnst þú eigir
að fara. Það kemur fyrir að þú sért misskilin og
sumum finnst þú stundum svolítið óvægin við
aðra. Þér finnst svo mikilvægt að hafa sjálf-
stæði þitt á hreinu svo þú getur slegið frá þér
allharkalega ef að þér er vegið. Þú ert svo miklu
tilfinningaríkari heldur en nokkurn í kringum þig
grunar og þú tengist svo sterkum böndum, oft
þeim sem eiga þig ekki skilið, svo nú þarftu að
vega og meta hver á að valhoppa með þér inn
í framtíðina. Þú ert að taka til í kringum þig og
það hafa orðið litlir sigrar og til að auðvelda þér
næstu þrjá mánuði þá er mikilvægt að þú skráir
hjá þér hvað er að ganga vel í lífi þínu til að þú
gleymir ekki að þú ert miklu betur stödd heldur
en fyrir um það bil ári. Þú átt eftir að uppskera
öryggi og staðfestu og það er lífsmottóið þitt.
Ástin elskar þig þannig að elskaðu hana til baka.
Tilfinningasamur
Þú ert svo skemmtilegur kokteill af manneskju,
þú átt auðvelt með að fá okkur hin til að hrífast
með þér. Hins vegar áttu það til að taka að þér
alltof margt í einu. Þú þarft að ákveða strax hvað
skiptir máli. Þú elskar bæði sviðsljósið og ein-
veru. Þú ert þannig kokteill. Þú ert svo skarpur
og veist alveg muninn á réttu og röngu. Þú ert að
fara á miklu léttara sex mánaða tímabil heldur
en síðustu sex mánuðir hafa verið fyrir þig. Þá
er ég ekki að segja að það verði ekki nóg að gera
heldur er ég að segja þér að þú munir finna þér
betri leiðir. Þú ert svo dásamlega tilfinninga-
samur og tekur of mikið inn á þig röfl í öðru
fólki. Næstu mánuðir færa þér mörg ævintýri og
þú þarft ekki neinn með þér ef þú ætlar að fá
þér betri vinnu eða gera eitthvað sem þér finnst
stórfenglega merkilegt. Þú ert frjáls andi og
þegar þú finnur hversu mikill karakter þú ert, þá
halda þér engin bönd.
Það fylgir þér hugrekki
Þótt það hafi nú komið fyrir að þú sért eitthvað
óöruggur þá fylgir þér mikið hugrekki. Þú ert að
fara inn í tímabil þar sem hugrekkið mun njóta
sín og þetta tímabil er líka til þess að þú horfist
í augu við það sem þú hefur frestað og komir
hlutunum í gegn. Þetta tímabil er byrjað þegar þú
lest þessa spá og þú munt þjóta áfram eins og
flugfiskur næstu mánuði. Ekki hafa áhyggjur af
peningum, það er óþarfi því peningar hafa ekki
áhyggjur af þér. Það dettur inn á borð á hárrétt-
um tíma það sem þig vantar. Þannig að slepptu
þessum kvíðaköggli sem læðist stundum aftan
að þér. Ég elska hvað þú ert ólíkur fjöldanum,
lærðu að elska það líka. Þú mátt vera eyðslusegg-
ur á peninga en andlega þarftu að byggja þig upp
og passa að eyða ekki þeirri orku til einskis. Lífið
er svo yndislegt og það er setningin sem þú skalt
segja um leið og þú vaknar, því þá færðu meira af
yndislegu lífi. Mikið hryllilega get ég verið væmin,
en þetta er bara staðreynd.
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
Hér eftir birtist spáin
fyrsta föstudag hvers mánaðar
Elsku ljúfi Hrúturinn minn
Upphafsorð mín eru yfirleitt elsku sterki Hrútur-
inn minn en þú þarft ekkert alltaf að vera sterkur.
Það eru líka tímabil, eins og núna, sem þú mátt
leggjast undir feld og vera latur. Leti getur líka
verið sexí. Þú átt ekki að hafa á þér neinn járnaga.
Því það þýðir ekki að þú sért að gefast upp
heldur þýðir það að þú þarft ekki að stjórna öllu
í kringum þig. Á þessu tímabili sem þú ert að fara
inn í laðar þú til þín öðruvísi fólk. Þú sérð heildar-
myndina af lífi þínu skýrar og setur orkuna þína á
meiri hraða en þú ert vanur að gera. Ef það hafa
verið erfiðleikar í ástamálum þínum, sem kemur
svoldið skýrt fram í kortunum, þá skaltu muna
það, að allt gerist af ástæðu. Það er mjög lítið til
af tilviljunum. Ef þú ert á lausu, hjartað mitt, þá
þarftu að muna að vera ekki feiminn. Hitt kynið á
það til að misreikna þig og halda að þú hafir bara
engan áhuga. Þú skalt segja þeim sem þú hefur
áhuga á, hvort sem það er í ástamálum eða ef
þig vantar einhvern til að vinna með, þá skaltu
segja þeim það skýrt, þú hefur engu að tapa og
allt að vinna, því það er að koma breyting á orku-
stöðvum þínum og þú átt eftir að koma sjálfum
þér á óvart.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r26 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Lífið
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-C
4
1
8
1
B
3
0
-C
2
D
C
1
B
3
0
-C
1
A
0
1
B
3
0
-C
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K