Fréttablaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 44
GLAMOUR
Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar
fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku.
l Facebook l Instagram l Twitter
#Glamouriceland
Klæddu þig rétt
fyrir Airwaves
Tónlistarhátíðin Airwaves nær hápunkti sínum um
helgina. Það er sérstakur stíll sem fylgir tónleikagest-
um og hér eru nokkrar lykilflíkur sem Airwaves-farar
af báðum kynjum ættu að skoða. Götutískan er þar í
fyrirrúmi jafnt og þægindin.
Bomberjakkinn
Þessi jakki kom aftur á tískuradarinn
á seinasta ári og er ekkert á leiðinni
neitt þennan veturinn. Þægilegur
jakki, sérstaklega á þessum árstíma,
hvorki of heitur og fyrirferðarmikill
né of þunnur svo maður krókni á
röltinu milli tónleikastaða.
Hettu-peysan
Hetturpeysa er ein
vinsælasta flík lands-
ins um þessar mundir
og má nota við hvað sem er.
Töffaraleg, hlý og svo má bregða
hettunni yfir höfuðið þegar
rignir; hentugt.
Bakpokinn
Er ekki best að reyna að hafa báðar hendur tómar
þegar maður er að dilla sér við taktfasta tóna? Bak-
pokinn er ekki bara fyrir skólabækur heldur einstaklega
góður yfir hátíðir sem þessar þar sem maður er að flakka
á milli í bænum.
Þægilegur skóbúnaður
Það er mjög mikilvægt að vera í þægi-
legum skóbúnaði á tónlistarhátíðum.
Bæði til að geta dansað að vild og svo
stendur maður mikið eða gengur á
milli. Að vera í óþægilegum skóm
getur eyðilagt heilt kvöld – fallegir
flatbotna leðurskór eða bara einfald-
lega strigaskór eru til dæmis gott val.
Höfuðfat
Það er alltaf gaman að skoða klæðaburð gesta tón-
listarhátíða eins og Airwaves en ein flík er yfirleitt
meira áberandi en aðrar og það er hatturinn. Ekki er
vitað hvað það er nákvæmlega við hattinn sem gerir
hann að tilvöldum höfuðbúnaði á tónleikum en hann
gefur óneitanlega skemmtilegt yfirbragð.
Rifnar gallabuxur
Já, það má ekki gleyma aðalflíkinni. Gallabuxuunum. Flíkin
sem kemur í mörgum ólíkum sniðum og stílum en í ár eiga
þær helst að vera ljósbláar og örlítið rifnar neðst eða á hnjám.
Svona ef maður vill fara eftir trendunum góðu.
Netsokka-
buxurnar
eru að koma sterkar
inn aftur.
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r28 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-B
F
2
8
1
B
3
0
-B
D
E
C
1
B
3
0
-B
C
B
0
1
B
3
0
-B
B
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K