Fréttablaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þetta var stórskemmtilegt verkefni og afar áhuga-verð stúdía út frá mann-fræði og í raun samskipta-mynstri fólks,“ segir María Th. Ólafsdóttir búninga-
hönnuður. María, sem er fastagestur í
Vesturbæjarlauginni, stundar masters-
nám í hagnýtri menningarmiðlun við
Háskóla Íslands og sem lokaverkefni í
einum kúrsi í náminu voru fyrirmælin
þau að gera ljósmyndaverkefni sem
væri í tengslum við samfélagið sem
við búum í eða málefni sem stendur
okkur nærri. Hún leitaði ekki langt
yfir skammt og ákvað að búa til ljós-
myndabókina Kominn tími, sem
inniheldur myndir af þeim sem sækja
Vesturbæjarlaugina, auk ýmissa upp-
lýsinga um störf þeirra, á hvaða tíma
dags þeir venja komur sínar á þennan
vinsæla samkomustað og hvað þeir
hafast þar helst að.
„Ég fer sjálf í Vesturbæjarlaugina á
hverju kvöldi um klukkan 20 og hitti
alltaf sama fólkið, sem mér finnst
dálítið magnað. Svo er kúltúrinn í
lauginni líka spennandi, því þar má
eiginlega segja það sem hver og einn
vill og það fer ekki lengra. Þetta er
nánast eins og skuldbindingalaust
svæði. Fólk sest í heitan pott með
öðru fólki sem það þekkir kannski
ekki neitt, tekur þátt í umræðum sem
eru oft og tíðum heitar, en svo fara þær
umræður ekki lengra. Það sem fer fram
í pottinum er skilið eftir í pottinum. Í
lauginni eru allir jafnir og allir hafa rétt
á sinni skoðun, og það er nokkuð sem
við mættum hafa meira í huga úti í
þjóðfélaginu. Það þarf ekki allt að vera
svona svart og hvítt,“ útskýrir María og
bætir við að Vesturbæjarlaugin sé að
mörgu leyti frábrugðin öðrum sund-
stöðum sem hún hefur sótt í gegnum
tíðina. „Vesturbærinn er eins og suðu-
pottur, ólgandi af mannlífi eins og
New York, þar sem ég bjó einu sinni.“
María er farsæll búningahönnuður
til margra ára og lítur á námið í hag-
nýtri menningarmiðlum sem stór-
skemmtilega áskorun fyrir sjálfa sig.
Fyrir verkefnið, ljósmyndabókina
Kominn tími, fékk hún hæstu ein-
kunn og því liggur beint við að spyrja
hvort ekki komi til greina að gefa
bókina út í fleiri eintökum eða halda
sýningu á myndunum. „Ég er ekki
ljósmyndari svo ég hef ekki hugsað
mér að gera neitt meira við þessar
myndir, en hver veit hvað gerist?“
segir hún að lokum.
kjartang@frettabladid.is
Vesturbærinn ólgandi
eins og New York
María Th. Ólafsdóttir búningahönnuður tók myndir af fastagestum
Vesturbæjarlaugarinnar og bjó til ljósmyndabók sem verkefni í hag-
nýtri menningarmiðlun í Háskóla Íslands. Kúltúrinn heillar hana.
María Th. Ólafsdóttir hefur búið í Vesturbænum í tvö ár og stundar Vesturbæjarlaugina grimmt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leikarinn Rúnar Freyr fer í æfingasal,
potta og gufu klukkan 9 á morgnana og
oft líka á kvöldin með börnin. MyND/
MARÍA Th. ÓLAFSDÓTTIR
Neminn Ísak er eitt af viðfangsefnum
Maríu í bókinni. hann notar útiklefann,
fer í barnalaug, „friðar“-pott og gufu milli
20 og 21. MyND/MARÍA Th. ÓLAFSDÓTTIR
Ólafía Þórunn í beinni á Golfstöðinni
FÖSTUDAG OG LAUGARDAG KL. 09:00
4 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r30 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
4
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
0
-A
B
6
8
1
B
3
0
-A
A
2
C
1
B
3
0
-A
8
F
0
1
B
3
0
-A
7
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K