Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 50
Hallveig Rúnarsdótt-ir sópransöngkona og Jóhannes Andr-easen píanóleikari f r á Fæ r e y j u m , koma fram á tón-
leikum í Arctic Concerts röðinni í
Norræna húsinu í kvöld klukkan
20.30. Þar flytja þau blandaða
efnisskrá norrænna sönglaga.
„Ég kom til landsins í gær (fyrra-
dag) til að spila með Hallveigu. Við
höfum hist nokkrum sinnum og
mússíserað en þá með öðrum, til
dæmis í jólaóratóríunni Messíasi.
Nú ákváðum við að vera bara tvö,“
segir Jóhannes Andreasen píanó-
leikari. Jóhannes er færeyskur en
talar lýtalausa íslensku. „Ég bjó hér
í nokkur ár og kenndi við tónlistar-
skóla, aðallega í Kópavogi. Það var
fyrir tuttugu árum en ég hef reynt
að halda tungumálinu við,“ útskýr-
ir hann og fer svo nokkrum orðum
um efnisskrá tónleikanna í kvöld.
„Við völdum að flytja tónlist
eftir Atla Heimi Sveinsson og Grieg
og svo spila ég líka eitt fjögurra
mínútna píanóverk eftir Færey-
inginn Trónd Bogason, mann-
inn hennar Eivarar Pálsdóttur og
nánasta samstarfsmann, svo þetta
verður norrænt prógramm.“
Jóhannes fer lofsamlegum orðum
um tónlist Atla Heimis, segir hana
skemmtilega og vel skrifaða. „Ég
hef oft áður spilað lög eftir Atla
Heimi en ekki þau sem við flytjum
núna.“
Jóhannes starfar bæði við
kennslu og tónleikahald í Færeyj-
um. Kveðst þó ekki fastur í neinni
hljómsveit þar, enda ekki sinfóníu-
hljómsveit þar sem starfar allt árið.
„En ég spila yfirleitt með þegar sett-
ar eru saman sveitir, hvort sem það
eru sinfóníu- eða kammersveitir.“
Hann valdi
þennan fjöl
þjóðlega Hóp
sem fæst við
teikningar,
kvikmyndir,
ljósmyndir og
tónlist.
Gústav Geir
við völdum að
flytja tónlist
eftir atla Heimi sveinsson
og grieg og svo spila ég líka
eitt fjögurra mínútna
píanóverk eftir færeying
inn trónd Bogason, mann
inn Hennar eivarar páls
dóttur og nánasta
samstarfsmann.
Verk eftir Atla Heimi, Grieg og Trónd Bogason
það verða íslensk-færeyskir tónleikar í norræna húsinu í kvöld með Hallveigu rúnarsdóttur og jóhannesi
andreasen en hann bjó hér og starfaði við kennslu fyrir tuttugu árum og talar enn lýtalausa íslensku.
„Við Hallveig höfum hist nokkrum sinnum áður og mússíserað en þá með öðrum,“ segir Jóhannes.
Tíu listamenn frá sex löndum, Arg-
entínu, Bandaríkjunum, Kanada,
Belgíu, Austurríki og Íslandi, koma
sér fyrir í Verksmiðjunni á Hjalteyri
í ágúst og þróa þar innsetningar-
verkið Sumarryk.
Gústav Geir Bollason er lykil-
maður í Verksmiðjunni. Hvernig
komst hann í samband við allt þetta
fólk? „Það var í gegnum hinn kan-
adíska Jim Holyoak teiknara sem
ég hitti hér á landi. Hann gerir fant-
asíukenndar, flæðandi teikningar á
stórum skala sem snúast mikið um
náttúruna, ferðast mikið um heim-
inn og hefur áhuga Íslandi. Hann
valdi þennan fjölþjóðlega hóp sem
fæst við teikningar, kvikmyndir,
ljósmyndir og tónlist.
Hópurinn er valinn út frá hinu
hráa rými og frábæra hljómi sem
er í Verksmiðjunni og þar er líka
gaman fyrir fólk að sýna sem vill
fara svolítið út fyrir rammann, því
þar eru stórir veggir og nóg rými,“
útskýrir hann.
Hluti hópsins ætlar að vera allan
mánuðinn, þar á meðal foringinn
Jim Holyoak. Allt ferlið sem þar fer
fram verður tekið upp til notkunar
síðar og Gústav Geir kveðst vera að
leita að fólki sem á myndir og
minningar úr húsinu og starfsemi
þess þegar þar var síldarverk-
smiðja. „Það sem ég veit er að það
voru Thorsarar sem komu Verk-
smiðjunni upp 1937 þegar síldin
var vaðandi um allan sjó en bræðslu
þar var hætt árið 1966. Fyrst á eftir
var húsið notað undir skreið og
skreiðarpökkun.“
Sýningin Sumarryk verður í
vinnslu allan mánuðinn. Fólk getur
alltaf gengið þar um milli klukk-
an 14 og 17 og um helgar verða
skipulagðir viðburðir. Sá fyrsti á
laugardaginn, 6. ágúst, verður í
formi listamannaspjalls þar mynd-
um af verkum þeirra sem þar dvelja
þennan mánuð verður varpað
upp. Tónlistarmennirnir koma um
miðjan mánuðinn og aðalopnunin
verður 27. ágúst.
Sýningin fær svo að anda áfram
fram í september þó nýr hópur
komi líka með sýningu inn. – gun
Flæðandi teikningar um náttúruna á stórum skala í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Tónlistarmennirnir Nick Kuepfer, Mat Shane og Neil Holyoak spila á hljóðfærin meðan teiknari
skreytir vegginn.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R38 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
2
9
-3
7
A
0
1
A
2
9
-3
6
6
4
1
A
2
9
-3
5
2
8
1
A
2
9
-3
3
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K