Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 10
Samfélag Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú heim- sóttu Sólheima í gær. Kynntust þau þar hverfinu, íbúum þess og þeirri starfsemi sem þar fer fram. Heim- sóknin var sú fyrsta hjá forsetahjón- unum en Guðni tók við embætti á mánudag. Fánar voru á lofti og íbúar höfðu stillt sér upp sitt hvorum megin við gangstéttina þegar forsetann bar að garði. Forsetahjónin heilsuðu öllum og héldu þaðan í Sesseljuhús þar sem Pétur Sveinbjarnarson, stjórnarfor- maður Sólheima, flutti fyrirlestur um samfélagið sjálfbæra. Þá skoð- uðu forsetahjónin einnig listaverk, gróðurhús og margt fleira. Þegar fjöldi manns vildi taka myndir af sér með Guðna sagði hann að sér liði eins og rokkstjörnu. Reynir Pétur Steinunnarson, íbúi og starfsmaður garðyrkjustöðvar- innar Sunnu, segir að sér lítist einkar vel á Guðna og Elizu. „Þetta er mikill heiður. Þetta er fyrsta opinbera heimsóknin,“ segir Reynir Pétur. Þeir Pétur og Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri Sól- heima, segjast einkar ánægðir með að Sólheimar séu fyrsti staðurinn sem forsetinn heimsækir. „Þetta gefur birtu inn í hjartað,“ segir Guð- mundur og bætir því við að heim- sóknin sé mikill heiður. Guðni segir sjálfur að heimsóknin hafi verið skipulögð stuttu eftir að hann náði kjöri. „Mig langaði til þess að fara hingað. Ég vildi vekja athygli á því góða starfi sem er unnið hérna og ég vissi að hvert sem maður fer í þessu embætti, þá vekur það athygli,“ segir Guðni. Hann segir margt mega læra af samfélaginu á Sólheimum. „Samhjálp og sjálfbærni. Þetta eru stundum innantómir frasar en hér sjáum við hvað hægt er að gera í verki,“ segir Guðni. Hann segist vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir umhverfisvernd en hann breyti engu einn síns liðs. Sjálfbærni segist hann vilja auka í okkar samfélagi og samhjálpina einnig. „Hér eru eru íbúar sem þurfa á smá aðstoð að halda til þess að líða vel og til þess að ná að sýna hvað í þeim býr og hér er fólk sem er boðið og búið til að aðstoða við það. Hér sjáum við í verki hvað hægt er að gera þegar við stöndum saman.“ Guðni segir fleiri heimsóknir á hina ýmsu staði, sem og móttökur gesta, á döfinni. „Svo kemur pólitíkin líka og setur svip sinn á atburðarás- ina frá degi til dags,“ segir hann. Aðspurður hvort kosið verði í haust segir Guðni: „Kosið í haust, miðað við það sem allir hafa sagt frá því í vor, eða nánast allir.“ thorgnyr@frettabladid.is Leið eins og rokkstjörnu á Sólheimum Forseti Íslands og eiginkona hans heimsóttu Sólheima í gær. Heimsóknin var hans fyrsta í embætti. Íbúar Sólheima tóku forsetanum fagnandi og voru hæstánægðir með að vera fyrstu gestgjafar hans. Forsetinn vill beina athyglinni að mikilvægum hlutum samfélagsins. Guðni, Eliza og Pétur Sveinbjarnarson fá sér lambakjöt og grænmeti af grillinu. Valdimar Ingi Guðmundsson, forstöðumaður garðyrkjustöðvarinnar Sunnu, sýnir Guðna og Elizu tómata. Um átján tonn eru framleidd af tómötum þar ár hvert. Reynir Pétur Steinunnarson heldur á íslenska fánanum á meðan tekið er á móti Guðna og Elizu. FRéttablaðIð/GVa Eva Guðbjartsdóttir gaf hjónunum ilmolíur, sápur og fleira framleitt á staðnum. Pétur Sveinbjarnarson sýnir Elizu og Guðna listaverk eftir íbúa. 4 . á g ú S t 2 0 1 6 f I m m t U D a g U R10 f R é t t I R ∙ f R é t t a B l a ð I ð 0 4 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 2 9 -6 D F 0 1 A 2 9 -6 C B 4 1 A 2 9 -6 B 7 8 1 A 2 9 -6 A 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.