Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 42
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Pétur Vignir Yngvason
sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 28. júlí verður
jarðsunginn frá Skútustaðakirkju
föstudaginn 5. ágúst klukkan 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á
Akureyri. Reikningsnúmer 162-05-62158, kt. 570397-2819.
Yngvi Hrafn Pétursson Helena Guðlaug Bjarnadóttir
Inga Gerða Pétursdóttir Jón Ágúst Guðmundsson
Jón Sigurbjörn Pétursson
Ásbjörn Garðar, Arnór Kári, Álfrún Lóa og Áróra Mjöll
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ester Snæbirna
Snæbjörnsdóttir
Seljahlíð,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
sunnudaginn 31. júlí.
Útförin verður frá Seljakirkju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 13.00.
Hafþór Sigurbjörnsson Erla Björg Magnúsdóttir
Sigurður Rósant Sigurbjörnsson Hafdís Ingimundardóttir
Ingibjörg Elín Sigurbjörnsdóttir Sigurður Eyþórsson
Páll I. Blöndal Sigurbjörnsson Elfa Dís Austmann
Aðalheiður (Allý) Sigurbjörnsdóttir
Sigurbjörn Blöndal Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn,
faðir okkar, afi og bróðir,
Birgir Skúlason
lést föstudaginn 22. júlí.
Útför hans fer fram frá Grafarvogs -
kirkju föstudaginn 5. ágúst kl. 13.00.
Freyja Sigurpálsdóttir
Andri Birgisson
Birna Dröfn Birgisdóttir
Viktor Birgisson
afabörn og systkini.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Jóna Sigurðardóttir
frá Urriðaá,
Borgarbraut 65a, Borgarnesi,
sem andaðist laugardaginn 23. júlí,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju
mánudaginn 8. ágúst kl. 14.00.
Svandís Edda Ragnarsdóttir
Hanna S. Kjartansdóttir Anders Larsen
Eyþór Kjartansson
Haukur Kjartansson Svanhildur Ólafsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Þorgerður Þorvaldsdóttir
til heimilis að Valsheiði 23,
Hveragerði,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 30. júlí. Útförin fer fram frá
Hveragerðiskirkju laugardaginn 6. ágúst kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild
Landspítalans sem við færum sérstakar þakkir.
Jón Helgason
Eiríkur Jónsson Dipa Rana Gurung
Þorvaldur Jónsson Disa Thao Thi Pham
Sara Huld Jónsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Jónu Örnólfsdóttur
Hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði.
Jón Þ. Kristjánsson Hjördís Ólafsdóttir
Hildur Jósefsdóttir
Þ. Margrét Kristjánsdóttir Pétur I. Pétursson
Indriði A. Kristjánsson Carolyn Kristjánsson
Hörður Kristjánsson Björk Guðlaugsdóttir
Kristján F. Kristjánsson Guðný H. Yngvadóttir
barnabörn og fjölskyldur.
1796 Hannes Finnsson Skálholtsbiskup deyr. Hann er einn mennt-
aðasti Íslendingur sinnar tíðar. Af ritum hans má til dæmis nefna
Um mannfækkun af hallærum á Íslandi.
1907 Ungmennafélag Íslands er stofnað og er fyrsti formaður þess
Jóhannes Jósefsson.
1914 Fyrri heimsstyrjöldin: Þýskaland ræðst á Belgíu. Í kjölfarið
lýsir Bretland yfir stríði við Þýskaland. Bandaríkin lýsa yfir hlutleysi.
1928 Ásta Jóhannesdóttir syndir frá Viðey til Reykjavíkur. Sundið
tekur tæpar tvær klukkustundir og er um fjórir kílómetrar.
1947 Hæstiréttur Japans er stofnaður.
1984 Efri-Volta tekur upp nafnið Búrkína Fasó.
1993 Alríkisdómari dæmir tvo lögreglumenn frá Los Angeles í þrjá-
tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á réttindum Rodneys King.
2007 NASA sendir geimfarið Fönix út í geiminn.
Merkisatburðir
Í dag verður farin ganga um Grasa-garð Reykjavíkur og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þar sem veitt verður fræðsla um býflugurnar og blómin. Að sögn Jónu Valdís-
ar Sveinsdóttur, garðyrkjufræðings í
Grasagarðinum og eins aðstandenda
göngunnar, eru plönturnar í fullum
blóma um þessar mundir og því verður
spennandi að sjá hvort megi sjá býflugur
frjóvga blómin í Grasagarðinum. Einnig
verða býflugnabúin í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum skoðuð en Tómas Óskar
Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins og annar umsjónar-
maður göngunnar, hefur verið með búin
þar í mörg ár.
„Þetta verður fróðleg ganga en við
byrjum á að kíkja aðeins í Grasagarðinn
og á blómin þar en áhersla göngunnar er
þó á býflugurnar. Svo færum við okkur
yfir í húsdýragarðinn þar sem Tómas er
með býflugnaræktun og hunangsfram-
leiðslu. Býflugnarækt verður sífellt vin-
sælli á Íslandi,“ segir Jóna.
Sambandið milli býflugna og blóma
er ansi áhugavert en það verður á meðal
þeirra atriða sem farið verður yfir í
göngunni. „Þetta er í rauninni hálfgert
viðskiptasamband. Báðir aðilar græða,
getur maður ekki kallað það góð við-
skipti?“ segir Jóna og hlær. „Það er líka
gaman að fylgjast með því að þegar
býflugur finna sér góðan stað þá láta þær
hinar vita með því að dansa.“
Býflugurnar og blómin treysta hvert
á annað til þess að lifa og fjölga sér.
Býflugan þarf prótein úr frjókornunum
í blóminu til þess að lifa og fara svo
með frjókornin á milli blóma til þess að
frjóvga þau. „Náttúran er svo merkileg og
við eigum býflugunum margt að þakka.
Sagt er að býflugurnar eigi heiðurinn af
þriðja hverjum bita sem við borðum. En
það eru fleiri flugur en býflugur sem eru
nytjadýr hérlendis, humlur eru til dæmis
notaðar til þess að frjóvga tómata hérna
á Íslandi.“
Gangan verður farin klukkan 12 í dag
og það er aldrei að vita nema hunangs-
smakk úr Laugardalnum verði í boði
fyrir áhugasama.
gunnhildur@frettabladid.is
Skoða einstakt samband
býflugna og blóma
Ganga verður í Grasagarðinum og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Fræðst verður
um blómin og býflugurnar. Plönturnar eru í fullum blóma um þessar mundir sem og bý-
flugnaræktun húsdýragarðsins og aldrei að vita nema boðið verði upp á hunangssmakk.
Þetta er í rauninni
hálfgert viðskiptasam-
band. Báðir aðilar græða, getur
maður ekki kallað það góð
viðskipti?
Jóna Valdís og Tómas Óskar eru vel að sér í málum blóma og býflugna og munu fræða þátttakendur í göngunni um einstakt viðskiptasam-
band þessara lífvera. Mynd/EyþÓr
4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R30 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A ð I ð
tímamót
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
2
9
-7
7
D
0
1
A
2
9
-7
6
9
4
1
A
2
9
-7
5
5
8
1
A
2
9
-7
4
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K