Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 52
SauSage Party Grínmynd Aðalhlutverk: Seth Rogen, Kristen Wiig, Jonah Hill, Bill Hader, Michael Cera og James Franco. Frumsýnd 10. ágúst IMDb 7,5/10 Nerve Spennumynd Aðalhlutverk: Emma Roberts, Dave Franco, Emily Meade, Miles Heizer og Kimiko Glenn. Frumsýnd 10. ágúst IMDb 7,5/10 Frumsýningar the ShallowS Spennumynd Aðalhlutverk: Blake Lively, Óscar Jaenada, Angelo Jose. Frumsýnd 17. ágúst IMDb 6,8/10 Ofurhetjumyndin Sui-cide Squad – eða kannski réttara að segja ofurillmenna-myndin – er líklega gefin út sem svar DC við Guardi- ans of the Galaxy og Deadpool, myndum keppinautarins Marvel. Hetjurnar í myndinni eru í raun ill- menni – þar er leikið með andhetju- minnið sem virðist falla ansi vel í kramið hjá aldamótabörnum sem eru löngu komin með leiða á hetjum eins og Superman sem gera aldrei neitt rangt og félaga hans Batman sem, þrátt fyrir að hafa fyrst komið fram sem myrkur og töff karakter, er með mjög strangar siðferðis- reglur. Í myndum Marvel er hins vegar fjallað um morðingja og þjófa sem segja dónabrandara og brjóta fjórða vegginn villt og galið. Í Sjálfs- morðssveitinni eru persónur sem auðveldlega gætu skipað sér í hóp með Deadpool og fleirum sem óút- reiknanlegir og siðferðislega brengl- aðir karakterar, svokölluð „wild cards“, og þar fer fremst í flokki eitt vinsælasta illmenni samtímans og ásinn í ermi DC – Jókerinn. Fyrir frumsýningu Suicide Squad var mikið gert úr þeim mikla undir- búningi sem Jared Leto átti að hafa gengið í gegnum fyrir hlutverk sitt sem Jókerinn. Sögur fóru á kreik á internetinu þar sem því var lýst hvernig Jared Leto lifði og hrærð- ist í gervi Jókersins – enda þurfti leikarinn að fylla upp í ansi stór spor – Heath Ledger sló í gegn í hlut- verkinu í kvikmyndinni The Dark Knight og á undan því var það Jack Nicholson sem brá sér í gervið fyrir útgáfu Tims Burton af Batman. Með- leikarar hans í myndinni töluðu um að hann væri alltaf í karakter á tökustað – Will Smith sagði í við- tali að hann hefði í raun aldrei hitt manneskjuna Jared Leto meðan á tökum stóð, Margot Robbie fékk senda lifandi rottu frá leikaranum og Leto átti víst að hafa hitt morð- ingja, geðsjúklinga og geðlækna til að skilja Jókerinn betur. Á flestum meðleikurum hans var að heyra að þeir væru ekki sáttir við Jared og fannst hann frekar pirrandi og jaðraði hegðun hans jafnvel við áreitni. Aðdáendur Jókersins virðast þó mjög sáttir – enda hefur lengi vel verið gert mikið úr Snillingum leik- listarinnar sem nota óhefðbundnar aðferðir við að koma sér í karakter. Þetta er svokallað „method acting“. Því skýtur það nokkuð skökku við að nú þegar myndin hefur loksins verið frumsýnd taka að hrúgast inn mjög vondir dómar um hana og er hún sögð samhengislaus og illa gerð. Sérstaka athygli vekur að Jókerinn, sem Snillingurinn Jared Leto lét yfir- taka líf sitt, kemur mjög lítið fyrir í myndinni og þrátt fyrir allt púlið fyrir hlutverkið vekur það enga sérstaka athygli – Margot Robbie sýnir hins vegar góðan leik og auk hennar fær Viola Davis mikið lof. Í kringum þær hefur þó aldrei verið nein jákvæð umræða eins og var í kringum Jared Leto – enda er það ávallt svo með goðsögnina um Snill- inginn sem beitir óhefðbundnum aðferðum til að komast í karakter – hann er nánast undantekninga- laust karlmaður. Uppátæki Jareds Leto hljóma eftir á að hyggja eins og auglýsingabrella eða jafnvel til- raun leikarans til að gera sína túlkun jafn eftirminnilega og forvera sinna. Goðsögnin Sir Laurence Olivier sagði eitt sinn að leiklist snerist um að „læra línurnar sínar og passa sig að rekast ekki í húsgögnin“ – hann sendi örugglega aldrei neinum með- leikurum rottur. stefanthor@frettabladid.is Jókerinn Jared Leto Kvikmyndin Suicide Squad hefur fengið slæma dóma og hefur vakið nokkra athygli að Jókernum, leiknum af Jared leto, bregður lítið fyrir í myndinni þrátt fyrir að hann hafi verið auglýstur sérstaklega í öllum stiklum og kitlum sem birtust fyrir útgáfu hennar. Jared Leto ásamt meðleikurum sínum úr Suicide Squad. Ætli Jared sé enn í karakter? 4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R40 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð bíó 0 4 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 2 9 -4 B 6 0 1 A 2 9 -4 A 2 4 1 A 2 9 -4 8 E 8 1 A 2 9 -4 7 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.